Víkurfréttir - 13.01.2005, Page 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Lánleysi ársins:
Þrjú sjálfsmörk í þremur
leikjum
Lánleysi var með Keflvíkingum
í knattspyrnunni á síðasta
sumri. Yfirleitt þarf ekki að
kvarta yfir því þegar mörk
eru skoruð en þegar þrjú sjálfs-
mörk eru skoruð í jafnmörgum
leikjum, þá ratar það á frétta-
síðurnar. „Lánleysi Keflvíkinga
algert!” sagði í blaðinu í sumar.
Borgar sig nokkuð að rifja
upp hverjir skoruðu mörkin?
Ellismellur ársins:
30 rúma hjúkrunarheimili
í Reykjanesbæ
Aldraðir sáu ástæðu til að
kætast á árinu þegar sveitar-
félögin, stjórn Dvalarheimila
aldraðra á Suðurnesjum og
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
undirrituðu yfirlýsingu þess
efnis að komið verði upp 30
rúma hjúkrunarheimili í Reykja-
nesbæ og aðstaða á Garðvangi
í Garði verði bætt. Þetta er
gert í kjölfar viðræðna stjórn-
málamanna á Suðurnesjum og
embættismanna ríkisins. Ein-
hverjir varnaglar voru þó í sam-
komulaginu en framkvæmdir
eiga að hefjast á þessu ári.
Gámavæðing ársins:
Löggur í gámum
Húsnæðismál
lögreglunnar á
Keflavíkurflug-
velli hafa verið
til umræðu allt
síðasta ár. Mikið
hefur verið rætt
um byggingu
stjórnsýsluhúss á Keflavíkurflug-
velli en á meðan fjölgar gámum
sem lögreglan hreiðrar um sig
í. Myndarlegasta gámabyggð
er bæði í Grænási og við Leifs-
stöð. Þá fengu lögreglumenn
í Grænáshliði sumarbústað
sem vinnuaðstöðu í árslok.
Ekkert gámafólk þar...
Ljósmyndarar ársins:
Varnarliðinu séð fyrir
hlutverki á Íslandi
Ljósmyndarar Víkurfrétta sáu
til þess í sumar að Varnarliðið
hefði tilgang með veru sinni
hér á landi. A.m.k. þurftu
vopnaðir hermenn ítrekað
að hafa afskipti af störfum
ljósmyndara blaðsins. Eitt
tilvikið átti sér stað í kirkju-
garðinum við Garðveg, annað
á Reykjanesbrautinni ofan
byggðar í Grænási, það þriðja á
Pattersonflugvelli og þá fengu
ljósmyndarar líka að kynnast
skotvopnum Varnarliðsins á
hafnarsvæðinu í Helguvík.
Alltaf höfðu Víkurfréttir sigur í
stríði sínu við herinn, sem var
að verða hálf vopnlaus í árslok.
Var haft á orði að flugeldalager
björgunarsveitarinnar væri öfl-
ugri en verjur varnarliðsins...
Tvöföldun ársins:
Tvær akreinar í báðar
áttir!
Reykjanesbrautin var tvöfölduð
úr Hvassahrauni frá bæjar-
mörkum Hafnarfjarðar og Voga
og vel áleiðis að gatnamótum
við Voga eða upp á miðja
Strandarheiði. Nú eru eftir um
11 kílómetrar og þrjú mislæg
gatnamót, sem vegagerðin
segir að kosti um 1,9 milljarða
króna að leggja. Heimamenn
vilja meina að verkefnið kosti
ekki svo mikið og hvetja stjórn-
völd til að tryggja fé til að ljúka
verkinu. Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra mun ætla
að finna fé, en það hefur enn
ekki komið í leitirnar...
Lending ársins:
Púllarar í Leifsstöð
Það var mikið að gera hjá
stjörnufréttamönnum Vík-
urfrétt á árinu, enda hver
stórstjarnan á fætur annarri
annað hvort á leiðinni inn í
landið eða að hafa viðkomu
í Leifsstöð. Þannig vakti
flugvél með leikmönnum
Liverpool athygli þar sem hún
tók eldsneyti við Leifsstöð.
Leikmennirnir fóru hins vegar
fæstir frá borði og ollu þannig
stuðningsmönnum sínum
vonbrigðum... Þetta hefðu leik-
menn Arsenal aldrei gert...
Fljóð ársins:
Léttklæddar Suðurnesja-
stúlkur á ströndinni
Bændur á Stafnesi voru óeðli-
lega mikið að sinna málum
niðri í fjöru þetta sumarið þegar
sól var hátt á lofti og hitinn
var hvað mestur. Ljósmyndari
Víkurfrétta vandi nefnilega
komur sínar í fjörur Stafness
með fögur fljóð þar sem þær
fækkuðu margar hverjar fötum
fyrir myndavélina. Allt fyrir
frægðina en stúlkurnar voru
annað hvort að taka þátt í fyrir-
sætukeppninni Qmen-stúlkan
eða að auglýsa sundfatnað fyrir
sportvöruverslanir svæðisins.
Heimshornaflakk ársins:
Hasar á Suðurnesjum
Sjónvarpstökulið
frá hinum heims-
þekkta sjónvarps-
þætti Amazing
Race gerðu víð-
reist um Suður-
nes í sumar þegar
nóttin var hvað
björtust. Allt átti að fara leyni-
lega fram en sérlegur útsendari
Víkurfrétta klæddist felulitum
og festi á filmu hasarinn sem
fylgir þáttunum í hrauninu við
Bláa lónið og í flugstöðinni.
Gestir ársins:
Hillary fékk sér ekki
pulsu í Bláa lóninu
Hillary Clinton, öldungadeild-
arþingmaður og eiginkona Bill
Clinton, fyrrum Bandaríkjafor-
seta, hafði viðkomu í Bláa lón-
inu á árinu ásamt John McCain,
þekktu andliti úr bandaríska
þinginu. Þau eru meðal þekkt-
ustu gesta Bláa lónsins á árinu,
og þó verður gestalistinn vart
talinn fámennur þegar kemur
að stjörnum. Á sama tíma sporð-
renndi Clinton einni með sinn-
epi á Bæjarins bestu í Reykjavík.
Hann hefði betur farið á Pulsu-
vagninn til Villa í Keflavík og
losnað við sjúkrahúsleguna...
Hetja ársins:
Send til aðgerðar
í Danmörku
Lesendur Víkurfrétta kynntust
sannkallaðri hetju á árinu þegar
þeir fengu að kynnast Allý litlu,
stúlku á öðru aldursári sem
brenndist alvarlega af heitu
vatni í Keflavík. Hún hlaut mjög
alvarleg brunasár og var send