Víkurfréttir - 13.01.2005, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR I 2. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 13. JANÚAR 2005 I 13
utan til Danmerkur þar sem
hún gekkst undir flókna húð-
græðsluaðgerð. Aðgerðin tókst
vel og Allý er komin aftur til
landsins, þó svo hún eigi langt
í land með að ná fullum bata.
Hátíð ársins:
Ljósanóttin enn og aftur
Það hefur ekki farið framhjá
nokkrum manni að Ljósanótt í
Reykjanesbæ er önnur stærsta
hátíð sem haldin er hér á landi
á eftir sjálfri menningarnóttinni
í Reykjavík. Tugþúsundir venja
orðið komu sína á Ljósanótt til
að njóta menningar og mannlífs
eins og það gerst hvað best á
landinu - einmitt á Ljósanótt.
Síðasta ársins:
1000 ára smalamennsku
á enda
Það voru
mögnuð spor
sem stigin voru
við Grindavík í
haust þegar þar
var smalað fé
af fjalli í síðasta
sinn og þar með
lokið 1000 ára, já eittþúsund
ára, sögu smalamennsku á
Reykjanesskaganum. Frí-
stundabændur hafa framvegis
skjátur sínar í girðingu heima
en reka ekki fé til fjalla.
Vinnudeildur ársins:
2900 börn sátu heima
á Suðurnesjum
Um 2900 börn og 240 kennarar
sátu heima í verkfalli grunn-
skólakennara á þessu hausti.
Verkfallið hafði mikil áhrif á
skólastarf. Börnin fundu sér þó
eitthvað að gera og sum þeirra
höfðu aðgang að frístundaskóla.
Hollywood-fans ársins:
Stórstjörnur leika á Suð-
urnesjum
Stórmyndin A Little Trip to Hea-
ven var að hluta til tekin upp á
Suðurnesjum í sumar og haust.
Ekki minni leikarar en Forest
Whitaker og Julia Stiles fara
með aðalhlutverk í myndinni.
Myndin var annars vegar tekin
við Rockville á Miðnesheiði og
hins vegar í Innri Njarðvík. Þar
hitti Kristófer Viktor Karlsson
leikarana góðkunnu, átti við
þá spjall og lét Whitaker taka
mynd af sér og Juliu Stiles.
Akademía ársins:
Íþróttafólki búin full-
komin námsaðstaða
Framkvæmdir hófust á árinu
við byggingu Íþróttaakademíu
í Reykjanesbæ. Um 30 nem-
endur munu hefja nám við
akademíuna næsta haust en
nemendur verða 90 þegar aka-
demían hefur að fullu tekið
til starfa. Það eru Íslenskir
aðalverktakar sem byggja skóla-
húsið gengt Reykjaneshöllinni.
Vinsælustu bæir ársins:
Flestir vilja í Garðinn
Endalaust er verið að birta
tölur um aðflutta og brott-
flutta. Flestar benda þessar
tölur til þess að Garðurinn sé
vinsælastur en flestir fluttu frá
Reykjanesbæ. Þessi brottflutn-
ingur úr Reykjanesbæ kemur
samt ekki í veg fyrir það að
fleiri hundruð lóðum hefur
verið úthlutað í nýju Tjarn-
arhverfi í Innri Njarðvík.
Flutningar ársins:
Vínið flæðir á
Hafnargötunni
Vínbúðin er farin úr Hólmgarði
og nú eru rautt og hvítt til sölu
á Hafnargötunni ásamt bjór og
sterku. Nýtískulegri og hlýlegri
verslun en bara miklu
minni en sú gamla og það
eru ekki allir sáttir við.
Níðingsverk ársins:
Eignaspjöll í kirkjugarði
Níðingsverk voru unnin í
kirkjugarðinum í Keflavík
á haustmánuðum þar sem
skemmdir voru unnar á fjölda
leiða. Ómetanlegt tjón var
víða unnið og tilfinningar
margra voru særðar djúpum
sárum. Krossar voru rifnir upp,
minningarsteinar brotnir og
legsteinum velt um koll. Verkn-
aður sem á ekki að þekkjast og
ljóst að þeir sem spjöllin unnu
eru ekki heilir á geðsmunum.
Kveðjuathöfn ársins:
Vopnin kvödd í Keflavík
Varnarliðið pakkar smá saman
sínu hafurtaski í flutningaflug-
vélar og flytur það til annarra
herstöðva. Mikið magn vopna-
búnaðar hefur farið frá landinu
á síðustu misserum og oftar
en ekki eru flugvélar hlaðnar
í skjóli myrkurs. Nú er svo
komið að herstöðin er nær
vopnlaus og því gagnslaus...
Óvissa ársins:
Kemur stálpípan eða
ekki?
Enn voru fluttar
fréttir af seinkun
framkvæmda
við stálpípu-
verksmiðju í
Helguvík á árinu.
Fyrr á árinu átti
að hefja fram-
kvæmdir fyrir síðustu áramót
en þegar langt var liðið á árið
var ljóst að þeir stálpípufélagar
þurfa enn meiri tíma til að
næla í pening fyrir verkefnið...
Padda ársins:
Könguló lifir á ódýrara
bensíni
Svakalega feit
og pattaraleg
könguló komst í
fréttirnar í sumar
þegar hún var við
að spinna sinn
vef í glugga hjá
Olís á Fitjum í
sumar. Hún komst aftur í frétt-
irnar í byrjun desember þegar
hún var orðin miklu feitari en
áður og var enn að spinna vef
hjá Olís. Enginn samráðsvefur...
Fréttaannáll Víkurfrétta • seinni hluti
Samantekt: Hilmar Bragi Bárðarson - Ljósmyndir: Ljósmyndarar Víkurfrétta og fleiri.
Árni Ragnar Árnason
alþingismaður lést á
líknardeild Landspítalans
16. Ágúst í sumar, 63 ára
að aldri. Árni
Ragnar var mikill
Suðurnesjamaður og
vann alla tíð ötullega
að málefnum
kjördæmisins og
kom mörgu til leiðar.
Árni Ragnar var
fyrst kosinn á alþingi
árið 1991 sem þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins.
Árni Rangar greindist fjórum
sinnum með krabbamein,
fyrst árið 1995. Hann var
alla tíð tilbúinn að ræða
opinskátt um sjúkdóm
sinn og var mörgum
krabbameinssjúklingum stoð
og stytta vegna þess. Árni
Ragnar beitti sér m.a. fyrir
því að Alþingi samþykkti
þingsályktunartillögu
sem fjallaði um
auknar forvarnir gegn
krabbameinssjúkdómum
í meltingarvegi og öðrum
sjúkdómum þeim tengdum.
Eftirlifandi eiginkona
Árna Ragnars er Guðlaug
P. Eiríksdóttir og eiga þau
fjögur uppkomin börn.