Víkurfréttir - 26.02.2005, Page 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Undirritaður ekur daglega eftir Reykjanes-braut milli Suðurnesja og Reykjavíkur - stundum tvær ferðir á dag. Ekki þarf að
fara mörgum orðum um hvílíkur
munur það er að aka „tvöfalda”
kaflann. Tilhlökkunin að sjá tvö-
földunina ná alla leið er því mikil.
Tilefni þessara skrifa er hins vegar
ánægja með þá menningu sem virð-
ist vera að þróast á brautinni.
Eftir að „axlirnar” voru lagðar á
einfalda hlutanum virðast stöðugt
fleiri vera að læra á þær og víkja fyrir bílum sem
ekið er hraðar. Grun hef ég um að Suðurnesja-
menn fari þar í fararbroddi enda brautin mest
nýtt af þeim. Axlirnar draga úr slysahættu og létta
umferðina. Sá siður er að verða nokkuð algengur
að þakklátir bílstjórar sýna hug sinn í verki með
því að setja „blikkljósin” á eitt augnablik - svona
rétt til að þakka þeim fyrir sem vikið hefur út á
axlirnar. Þetta er skemmtilegur siður og sýnir að
á brautinni er að þróast jákvæð og glaðvær um-
ferðarmenning. Fyrir það ber að þakka.
Hjálmar Árnason,
alþingismaður.
P.s. Það vakti athygli mína í þokunni í vikunni að
rétt áður en maður kemur að sunnan á tvöfalda
kaflann stendur merki sem bannar framúrakstur.
Á veginum sjálfum er hins vegar brotin lína sem
leyfir framúrakstur. Við slæm skilyrði sést merkið
ekki og getur óbrotna lína því gefið rangar og
hættulegar upplýsingar. Ég hafði strax samband
við Jónas Snæbjörnsson hjá Vegagerðinni og lofar
hann úrbótum hið bráðasta.
öKASSINNPÓST
Kurteisi á Brautinni
8 Hjálmar Árnason alþingismaður skrifar:
Krabbameinsfélag Suð-urnesja hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatil-
kynningu þar sem fermingar-
börn eru vöruð við hættunni
sem fylgir ljósalampanotkun.
Aðvörun - Hættan er ljós
Fermingar í kirkjum lands-
ins eru einn af vorboðunum.
Góður tími fyrir væntanleg ferm-
ingarbörn. Fermingarfræðslunni
sem þjappaði þeim saman í hóp
með prestinum er að ljúka og
fermingin sjálf á næsta leiti. Til
að gera athöfnina eftirminnilega
halda flestir fermingarveislu, fá
fermingarföt og fermingargjafir.
Margt fleira er í boði sem byrjar
á fermingar- þetta eða hitt og
þar á meðal að fara í ljós. Til
hvers að fara í ljós? Hver vill
flýta fyrir öldrun húðarinnar
eða jafnvel því að fá húðkrabba-
mein ef hann er spurður? Ör-
ugglega enginn.
Kæru fermingarbörn, verið eins
og þið eruð af Guði gerð, komið
fram í hvíta kirtlinum og stað-
festið skírnarsáttmálann. Látið
ekki koma ykkur úr jafnvægi á
þessum merku tímamótum í lífi
ykkar með þeirri hugmynd að
þið þurfið að fara í ljós til þess
að fermast. Takið ábendingum
og upplýsingum um að aukin
tíðni húðkrabbameina er rakin
til ljósalampanotkunar.
Hjartanlegar hamingjuóskir
með ferminguna.
Krabbameinsfélag Suðurnesja
Vara við ljósaböðum
8 Krabbameinsfélag Suðurnesja skrifar:
Félagar á Suðurnesjum í Ættfræðifélaginu
ætla að hittast á Bókasafni Reykjanesbæjar
þriðjudagskvöldið 1. mars 2005 kl. 20:00.
Allir áhugasamir um ættfræði eru velkomnir.
Ættfræðikvöld á Bóka-
safni Reykjanesbæjar
Afmæli
Páll Orri Pálsson varð sex
ára í fyrradag, 22. feb. Nú
er hann orðinn svolítið
stór og á leið í skóla næsta
haust. Svolítið flottur í
löggubúningnum! Kveðja frá
Valgerði (í Seattle) og Hildi.