Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.2005, Page 4

Víkurfréttir - 14.04.2005, Page 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! stuttar F R É T T I R 8 Varnarstöðin á Keflavíkurflugvelli: Bandaríkjamenn sem búsettir eru upp á Keflavíkurflugvelli þurfa ekki að leita langt til að komast í snertingu við ís-lenska menningu. Í Offiséraklúbbnum upp á velli er kaffi- hús sem bíður upp á íslenska myndlist beint í æð. Hugmyndin vaknaði þegar haldin var stór myndlistarsýning í stóra flugskýl- inu þar sem 30 listamenn sýndu verk sín við góðar undirtektir. Klúbburinn Art Council varð til í haust útfrá stóru sýningunni og er ljósmyndari leit við á föstudag var myndlistakonan Bagga að fjar- lægja sín verk sem höfðu verið til sýnis og Eiríkur Árni að setja sín verk upp. Eiríkur mun vera með 13 listaverk til sýnis í klúbbnum sem staðsettur er á kaffihúsinu Geysi í Offiséra klúbbnum, þar sem hægt er að fá sér kaffi og mat. Næst á dagskrá hjá Art Council er kynning á íslenskri tónlist og myndlist og 11. júní mun svo fjöldi listamanna sýna í flugskýlinu. Nú er byrjað að girða í kringum stað-inn þar sem miltisbrandssýking kom upp við bæinn Sjónarhól á Vatnsleysu- strönd í desember í fyrra. Þrjú hross drápust úr miltisbrandssýkingunni og einu var lógað. Hræin voru brennd á staðnum og síðan stóð til að girða hættusvæðið innan nokkurra daga þar sem mikilvægt þótti að halda öllum skepnum fjarri. Það er fyrst núna í aprílmán- uði sem hafist er handa við að girða svæðið af. Það má vera að mönnum hafi þótt erfitt að ákveða nákvæmlega hvar ætti að láta girðing- una liggja því ástæður miltisbrandssýkingar- innar í hrossunum eru ókunnar - ekkert fannst í jarðvegs- og vatnssýnum sem tekin voru á svæðinu. Málið allt er því nokkur ráðgáta því jarðrask hefur ekkert verið á jörðinni nema landbrot vegna brims. Enginn búskapur hefur verið á Sjónarhóli síðan árið 1960 en þrjár fjölskyldur eiga jörðina. Höfðu nokkrir sýnt henni áhuga þar til þetta mál kom upp en verðgildi jarðarinnar hefur að vonum rýrnað þar sem ekki er talið ráðlegt að hafa skepnur á beit í landinu. Hins vegar er ekki talið að mönnum stafi nokkur hætta af því að ferðast þar um. Fjörheimaunglingar seldu armbönd fyrir 321.000 til styrktar BUGL (Barna og unglinga geðdeildar Land- spítala Íslands) í nýafstöðnu átaki. Um var að ræða grænt arm- band sem á stóð GEÐVEIKT en það orð hefur öðlast jákvæða merkingu í málfari ungs fólks í dag. Dorrit Moussaieff forseta- frú veitti fyrsta armbandinu við- töku í Hinu húsinu við upphaf verkefnisins sem var samstarfs- verkefni BUGL og Samfés, Sam- taka félagsmiðstöðva á Íslandi. Það er skemmst frá því að segja að Fjörheimakrakkarnir voru mjög áhugasöm um sölu á armbandinu en 20 stúlkur og 11 drengir tóku þátt í sölu á 640 armböndum. Veitt voru verðlaun fyrir söluhæstu ein- staklinganna en það voru þeir Björn Traustason og Sigurður Björn Teitsson. Þeir fengu inn- eignarnótu afhenta frá samtök- unum Betri bæ að verðmæti 2.500 krónur hvor um sig á sameiginlegu balli með félags- miðstöðinni Truflaðri Tilveru föstudaginn 8. apríl sl. Krakkarnir sem tóku þátt í verk- efninu munu svo taka þátt í Geð- veikri forvarnarnótt sem haldin verður í Fjörheimum föstu- dagsnóttina 15. apríl n.k. En þá munu þau fá allskyns fræðslu ásamt sprelli alla nóttina. Starfsfólk Fjörheima vill koma á framfæri kærum þökkum til allra sem komu að verkefninu á einn eða annan hátt. 8 Duglegir unglingar í Fjörheimum: Söfnuðu 321.000 kr. fyrir BUGL Miltisbrandssvæðið girt af Bæjarstjórn Sandgerðis ákvað á fundi sínum í síðustu viku að standa ekki fyrir sérstöku atvinnu- átaki í sumar. Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja minnti á umsóknarfrest um sér- verkefni, en þar sem atvinnuá- stand í bænum er afar gott um þessar mundir og atvinnuleysi óverulegt sá bæjarstjórn ekki ástæðu til að leggja í slíkt. í fund- argerð kemur fram að ástandið í þessum málaflokki sé hvað best í Sandgerði af öllum bæjarfé- lögum á Suðurnesjum. Gott atvinnu- ástand í Sandgerði Bandaríkjamenn fá íslenska menningu beint í æð Stóra myndin: Unnið að því að girða land Sjónarhóls á Vatnsleysuströnd. Innfellda myndin: Hræ hrossa brennd fyrir áramót eftir að miltisbrandssmit kom upp við Sjónarhól.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.