Víkurfréttir - 28.04.2005, Page 1
�����������������������������������������������������������
���������������������
��������
Vikurfrettir_HEKLU_borði_fin2.FH11 Tue Apr 05 14:42:09 2005 Page 1
Composite
C M Y CM MY CY CMY K
17. tölublað •
26. árgangur
Fimmtudaguri
nn 28. apríl 20
05
Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum
AÐSETUR: GRUNDARVEGUR 23 • 2. HÆÐ • 260 REYKJANESBÆR • SÍMI 421 0000 • WWW.VF.IS • FRÉTTAVAKT: 898 2222
ÓKINDIN
TANNKVASS HÁKARL Í NETIN HJÁ EYJÓLFI ÓLAFSSYNI GK
veidd í grásleppunet við Stafnes
Grásleppukarlarnir Baldvin Reyr Gunnarsson og
Þorbergur Þór Heiðarsson, sem gera úr bátinn
Eyjólf Ólafsson GK til grásleppuveiða, fengu
óvenjulegan feng í grásleppunetin í vikunni.
Þessi hámeri sem var á þriðja metra á lengd
kom í grásleppunetin á sex föðmum undan
Stafnesi. Netin voru lögð á sunnudag og þegar
þeirra var vitjað á þriðjudag var hámerin dauð í
netunum. Þeim félögum brá nokkuð þegar þeir
sáu dýrið og eru ekki vissir um það hvort þeir
hefðu lagt í atlögu við hámerina ef hún hefði
verið á lífi. Kjaftur dýrsins er ófrýnilegur og á
meðfylgjandi mynd er engu líkara en ókindin úr
myndunum um JAWS reki höfuðið upp. Þarna
þorðu þeir félagar að reka fingur í kjaft dýrsins
og meira segja smelltu á það kossi. Hvað yrði um
dýrið var óvíst í gærdag, þegar því var landað í
Sandgerðishöfn.
FRÉTTASÍMINN
898 2222
SÓLARHRINGSVAKT
- fleiri fréttir af sjávarútvegi í blaðinu í dag og á vf.is