Víkurfréttir - 29.09.2005, Qupperneq 13
VÍKURFRÉTTIR I 39. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 29. SEPTEMBER 2005 I 13
Boðið verður upp á Tólf spora starf í Keflavík-urkirkju í vetur. Við
hvetjum ykkur til að koma og
kynna ykkur þetta samfélag
sem opnað hefur mörgum nýja
sýn á lífið.
Fyrsti fundur verður í Kirkju-
lundi fimmtudaginn 29. Septem-
ber kl. 19:00. Þar gefst tækifæri
til að kynna sér hvernig Tólf
sporin eru unnin í kirkjunni.
Fundirnir verða vikulega kl.
19:00 til 21:00 og er farið yfir
kynningarefnið á fyrstu fjórum
fundunum en á fjórða fundi er
hópunum lokað og fleirum ekki
bætt við í það skiptið.
Kirkjan býður þátttakendum
upp á þetta starf þeim að kostn-
aðarlausu utan þess að þeir
þurfa að greiða fyrir vinnubók
sem kostar kr. 2.900.-.
Kirkjan okkar! það er gott að
hugleiða hvað kirkjan okkar
merkir. Við erum kirkjan og
eigum saman kirkjuhúsið og
safnaðarheimilið. Það er enginn
til þess að annast um kirkjuna
nema við sjálf. Við gæðum hana
lífi og vináttu með því að koma
þar saman og njóta samveru-
stundanna. Látum kirkjuna vera
okkar annað heimili.
Upplýs ingar um Tólf spora
námskeiðið veitir: María Hauks-
dóttir í símum 864-5436 og
421-5181 og einnig starfsfólk
Kirkjulundar í síma 420-4300.
Tólf sporin - Andlegt ferðalag
Lykil Ráðgjöf Teymi gerði í síðustu viku samning við Bláa Herinn og Leið-
sögumenn Reykjaness.
Samningarnir fela í sér eftirfar-
andi:
1. Markaðssetning Ferðaþjón-
ustu á Reykjanesi
a. Uppbygging og ímyndar-
sköpun í ferðaþjónustu á svæð-
inu
b. Tengingar við Blue Diamond
verkefnið og umhverfismál
2. Þróunarvinna í ferðamálum
c. Undirbúningur - Tengsla-
vinna
d. Samfélagsleg þróun - Um-
hverfistengd ferðaþjónusta
3. Lykilráðgjöf Teymi ásamt
samstarfsaðilum leggja til úlpur
fyrir Bláa Herinn og Leiðsögu-
menn Reykjaness.
e. Liðsmenn Bláa Hersins og
Leiðsögumenn Reykjaness klæð-
ast merktum úlpum við starf
sitt.
f. Samhæfð kynning á framtíðar-
sýn svæðisins
Í samningnum segir að mark-
mið og stefna Lykil Ráðgjafar
með Blue Diamond verkefninu
fari afar vel saman við tilgang
Leiðsögumanna Reykjaness og
Bláa Hersins; Stuðla ber að auk-
inni kynningu á svæðinu. Efla
skal jákvæða ímynd svæðisins
sem ferðamannastaðar fyrir er-
lenda jafnt sem innlenda ferða-
menn.
Með sam starfs samn ing um
þessum munu aðilar vinna að
því að kynna starfsemi hvors
annars til þess að auka vægi
ferðaþjónustu á Reykjanesi og
færa þá framtíðarsýn sem unnið
hefur verið að inní raunveruleik-
ann.
Ríkharður Ibsen, framkvæmda-
stjóri, skrifaði undir samning-
ana í Flösinni fyrir hönd Lykil
Ráðgjafar, en Tómas Knútsson
og Bergur Sigurðsson skrifuðu
undir fyrir hönd Bláa Hersins
annars vegar og Leiðsögumanna
Reykjaness hins vegar.
Vinna að auknu vægi
ferðaþjónustu á Reykjanesi
Eiríkur Smith og
konurnar í Baðstofunni
Athygli er vakin á því að listasýning Eiríks Smith og kvennanna
í Baðstofunni er enn opin
í sýn ing ar sal Lista safns
Reykja nes bæj ar í Duus-
húsum.
Sýningin hefur vakið mikla
athygli en á henni má finna
tæplega 50 verk eftir Eirík
og fimm fyrrverandi nem-
endur hans í Baðstofunni,
þær Ástu Árnadóttur, Ástu
Pálsdóttur, Sigríði Rósinkars-
dóttur, Soffíu Þorkelsdóttur
og Þórunni Guðmundsdóttur.
Eiríkur sýnir olíuverk en lista-
konurnar vatnslitamyndir.
Bað stof an er rúm lega 30
ára gamalt menningarfélag
í Reykja nes bæ og kenndi
Eiríkur hópnum myndlist í
rúman áratug.
Sýningin opnaði á Ljósanótt,
og stendur til 16. október.
Listasafnið er opið alla daga
frá kl. 13-17.30.
Ríkharður Ibsen og Bergur Sigurðsson handsala
saamninginn milli TKC og Leiðsögumanna Reykjaness
Ríkharður Ibsen og Tómas Knútsson með úlpu af þeirr
gerð sem Blái Herinn og Leiðsögumenn Reykjaness mun
klæðast við störf sín.
SAMVINNA SKIPTIR ÖLLU