Víkurfréttir - 13.10.2005, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR I 41. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 13. OKTÓBER 2005 I 13
Skipulagsstofnun hefur sam-
þykkt tillöguna sem gerir ráð
fyrir að línan verði lögð með
austurhlíð Sýrfells suður að
skarðinu á milli Sýrfells og Sýr-
fellsdraga. Þar verður línan lögð
vestur um skarðið að spennu-
virki Reykjanesvirkjunar.
Með þessu fyrirkomulagi mun
línan liggja lægra í landinu og
nær iðnaðarsvæðinu en fyrri
áform gerðu ráð fyrir. Svæðinu
sem línunni er ætlað að fara um
hefur þegar verið raskað með
vegi og vatnslögn. Umhverfis-
rask vegna vega slóða o.þ.h.
verður því óverulegt.
Sam kvæmt sam komu lag i
Hitaveitu Suðurnesja, Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands og
Landverndar verður allt að 2
km af loftlínunni skipt út með
jarðstreng innan 8 - 10 ára svo
fremi sem rannsóknir á jarð-
skjálftavirkni og yfirborðsjarð-
hita leiði ekki í ljós að slíkt sé
tæknilega óframkvæmanlegt,
segir í tilkynningu frá Náttúru-
verndarsamtökum Íslands.
Útgáfutónleikar Matta Ó l a f ó r u f r a m í Fr um leik hús inu í
Reykjanesbæ á fimmtudags-
kvöld. Tabula Rasa, sem sam-
anstendur af þeim Finnbirni
Benónýssyni og Fríðu Dís Guð-
mundsdóttur, hitaði upp fyrir
Matta Óla en Finnbjörn og
Fríða vöktu nokkra athygli og
þóttu standa sig með miklum
ágætum.
Matti Óla hóf útgáfutónleikana
einn síns liðs vopnaður klassíska
gítarnum sínum en smátt og
smátt týndust spilafélagar hans
upp á svið með honum. Matti
var duglegur að spjalla við sal-
inn á milli laga og var persónu-
legur og einlægur í samtölum
sínum. Meðal annars fengu tón-
leikagestir að vita að það versta
sem getur komið fyrir karlmann
sé að gleyma afmælisdegi konu
sinnar. Að þeim fróðleiksmola
loknum fékk salurinn að heyra
afsökunarbeiðni Matta til konu
sinnar.
Matti lék lög af nýútkominni
geisla plötu sinni „Nak inn”
ásamt nýjum lögum sem hann
hefur verið að semja að undan-
förnu. Umgjörðin í kringum tón-
leikana var eins og best verður á
kosið og áheyrendur klöppuðu
Matta ákaft lof í lófa þegar hann
hafði lokið tónleiknum.
Reykjanesvirkjun:
Ný línuleið og jarð-
strengur eftir 8-10 ár
Hitaveita Suðurnesja hefur gert samkomulag við Náttúru-verndarsamtök Íslands og Landvernd þess efnis að leggja allt að 2 km langan jarðstreng í stað háspennulínu frá
virkjuninni á Reykjanesi innan 8 - 10 ára. Í kjölfar samkomulags-
ins hefur verið leitað til Skipulagsstofnunar um samþykki fyrir
nýrri leið fyrir loftlínuna sem mun flytja orku frá virkjuninni þar
til jarðstrengurinn verður lagður.
PERSÓNULEGUR
OG EINLÆGUR