Víkurfréttir - 13.10.2005, Síða 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Nú á dög un um bauð Heil brigð is stofn un Suð ur nesja velunn-
urum sínum í kaffisamsæti
þar sem þeim var þakkað fyrir
hlýjan hug og höfðingsskap í
garð stofnunarinnar.
HSS hefur fengið fjöldann allan
af gjöfum frá fyrirtækjum, ein-
staklingum, samböndum og fé-
lögum á þessu ári. Fram kom í
kaffisamsætinu að það sé löngu
þekkt hve góða og sterka bak-
hjarla HSS hefur og hafa læknar
og stjórnendur heilbrigðisstofn-
ana á öllu landinu öfundað HSS
fyrir það. Þær gjafir sem hafa
borist á þessu ári eru:
-Málverk frá Höllu Haralds-
dóttur.
-Ein milljón króna frá ÍAV í
minningu Margrétar Haralds-
dóttur, en það verður notað til
þess að bæta aðstöðu fyrir verð-
andi og nýbakaða foreldra.
-Augnsmásjá frá Hitaveitu Suð-
urnesja.
-Sjálfvirkan blóðþrýstingsmæli
frá SpKef.
-Hjartarafsjá á 2. D-álmu frá
SpKef, D-álmusamtökunum og
Verkstjórasambandi Íslands.
-Hjartarafstuðtæki frá Styrktar-
félagi HSS.
-Garðhúsgögn frá Húsasmiðj-
unni.
-Ytri öndunarvél frá Félagi
hjartasjúklinga á Suðurnesjum.
-Hjartalínuritstæki frá Iðn-
sveinafélagi Suðurnesja, Starfs-
mannafélagi Suðurnesja, Verka-
lýðs- og sjómannafélagi Kefla-
víkur og Verslunarmannafélagi
Suðurnesja.
HSS þakkar velunnurum góðar gjafir
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja:
Opið alla daga frá kl. 11:00 - 01:00
og á föstud. og laugard. frá kl. 11:00-03:00
Veitingastaður með frábært útsýni
Borðapantanir í síma 421 4601
www.rain.is
*
*
*
Fimmtudagur:
Mugison á Ránn, húsið opnar kl. 21
Hljómsveitin Hafrót
með siglfi rskasveifl u
alla helginaInga Rósa Kristinsdóttir sýnir um þessar mundir sextán vatnslitamyndir
í sýningarsal byggðasafns-
ins á Garðskaga í Garði.
Um er að ræða uppstillingar,
myndir af dýrum og fleira.
Sýningin stendur til 19. októ-
ber.
Inga Rósa er fædd í Stykk-
is hólmi en hef ur búið í
Reykjavík og Hollandi. Hún
er í dag búsett í Keflavík og
stundar þar list sína. Sýn-
ingin er opin á opnunartíma
veitingasölunnar Flasarinnar,
sem er í byggðasafninu.
Sýnir myndlist
á Garðskaga