Víkurfréttir - 13.10.2005, Síða 28
28 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Grunnskólar í Reykjanesbæ:
Annað stærsta ræstingarþjónustufyrirtæki á Íslandi er starfandi á Suðurnesjum en það varð til eftir sameiningu Allt Hreint
ehf. og Hilmar R. Sölvason ehf. sem gekk í gegn í
júní síðastliðnum. Fyrirtækið heitir Allt Hreint/
Hilmar R. Sölvason og eru um 80 starfsmenn
sem starfa hjá fyrirtækinu eftir sameininguna.
Halldór Guðmundsson, einn eigenda fyrirtækis-
ins, sagði í samtali við Víkurfréttir að ein af þeim
ástæðum sem liggja að baki sameiningarinnar sé
að fyrirtækin verði töluvert sterkari á landsvísu.
Bæði fyrirtækin hafa mikla reynslu í ræstingar-
þjónustu en Allt Hreint var um 12 ára gamalt
áður en það sameinaðist en Hilmar R. Sölvason
ehf. um 23 ára.
Þetta nýja fyrirtæki býður bæði einstaklingum
og fyrirtækjum upp á ræstingar, hreingerningar,
gluggahreinsun, rimlagardínuhreinsun, teppa-
hreinsun, bónhreinsun, bónun gólfa og dúka
ásamt því að sjá um þrif á flísum, þrif á loftræsti-
kerfum, stéttum, bílastæðum ásamt almennum
bílaþvætti.
„Fyrirtækið hefur á bak við sig ræstingafólk
sem hefur áratuga reynslu af ræstingum en við
leggjum sérstaklega áherslu á persónuleg sam-
skipti við verkkaupa. Við veitum einnig alla þá að-
stoð sem þörf er á hvað varðar ráðgjöf og fleira,”
sagði Halldór og bætti því við að ásamt því að sjá
um ræstingar flytji þeir inn að mestu leiti öll hrein-
gerningarefni sjálfir.
Meðal þeirra verkefna sem hið nýja fyrirtæki
sér um er meðal annars öll þrif fyrir Sambíóin í
Reykjavík.
„Það er alltaf nóg að gera hjá okkur,” sagði Hall-
dór og var að vonum ánægður með nýtt og sam-
einað fyrirtæki.
Með allt á hreinu
Guðrún Hjörleifsdóttir miðill starfar fimmtudaginn 20. október
hjá Sálarrannsóknafélagi Suðurnesja. Skúli Lórentsson starfar
miðvikudaginn 19. október.
Þeir sem vilja fara í bænahring vinsamlegast skráið ykkur í síma
421-3348 eða í síma 866-0621.
Starfið hjá SRFS
Á evrópskum tungumála-degi og degi stærðfræð-i n n a r v a r b r yd d a ð
upp á ýmsum skemmtilegum
verkefnum fyrir nemendur í
Holtaskóla.
Á evrópskum tungumáladegi
æfðu nem end ur yngsta og
miðstigs sönginn um Meistara
Jakob á fjórum tungumálum.
Eftir hádegið buðu yngri nem-
endur þeim eldri á sal skólans
og sungu hátt og snjallt fyrir þá.
Þá skoruðu þeir á unglingana
í keðjusöng og að lokum sam-
einuðust allir nemendur í söng
á íslenskum Meistara Jakob. Á
unglingastigi voru dyr dönsku-
og enskustofu opnaðar upp á
gátt og gátu nemendur flakkað
á milli stofa og spilað borðspil
á ensku og dönsku og leyst ýmis
konar tungumálaverkefni.
Ekki var minna um að vera á
þriðjudag, degi stærðfræðinnar.
Á öllum stigum var sérstök
áhersla lögð á stærðfræðitengd
verkefni, spiluð voru spil, búnar
til klukkur og margt fleira. Allir
nemendur skólans fóru á sal
þar sem nemendur 9. og 10.
bekkjar höfðu útbúið einstak-
lega skemmtileg veggspjöld með
margvíslegum spurningum á
borð við hve þungt mannsheil-
inn vegur. Möguleikar voru
gefnir á svörum og síðan fengu
nemendur að handfjatla hluti
af sömu þyngd. Unglingarnir
kepptu einnig sín á milli í því
að vera sem fyrst að leysa eina
Su Ko Du þraut. Einnig tóku
allir nemendur skólans þátt í
stærðfræðigetraun sem kenn-
arar höfðu útbúið. Á unglinga-
stigi áttu nemendur að finna
út hversu marga kassa sem er
rúmmetri að stærð þyrfti til að
fylla upp í nýja salinn okkar.
Miðstigsnemendur glímdu við
flatarmál og yngsta stigs nem-
endur við lengd. Á hverju stigi
voru að sjálfsögðu veitt vegleg
verðlaun í boði Langbest og því
var kapp nemenda mikið við
að komast sem næst réttu svari.
Nemendur stóðu sig með stakri
prýði báða dagana og leystu þau
verkefni sem fyrir þá voru lögð
vel af hendi og með bros á vör.
Líf og fjör í Holtaskóla!
Viðskipti og Atvinnulíf: