Víkurfréttir - 02.11.2006, Blaðsíða 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 44. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
������
����������������
�������������������������������
����������������������������������������������
�������������������������������������������
�������������������������������������
���������������������������������������
��������������������������������������������������������
��������������������������������
�������������
� � � �
Flugvélin frá flugfélag-inu Continental sem kom til öryggislend-
ingar á Keflavíkurflugvelli á
miðvikudag í síðustu viku og
þótti lendingin takast ágæt-
lega. 172 farþegar voru um
borð og var viðbúnaður mik-
ill sökum þessa.
Björgunarsveitir frá höfuðborg-
arsvæðinu og á Suðurnesjum
voru í við bragðs stöðu og
bátar á sjó við Reykjanes voru
einnig látnir vita. Þrjár þyrlur
Landhelgisgæslunnar fylgdu
vélinni inn t i l lendingar.
Viðbúnaðurinn var einn sá
mesti sem um getur í sögu
Keflavíkurflugvallar í svona
málum.
Ástæða öryggislendingarinnar
var sú að annar hreyfill vélar-
inar væri bilaður en hinn var á
skertu afli. Vélin var á leið frá
Lundúnum vestur um haf.
Samtals 12,2% nemenda í 10. bekkjum grunnskól-anna á Suð ur nesj um
hafa notað hass eða marijúana
samkvæmt Landshlutaskýrslu
Lýðheilsustofnunar og Háskól-
ans á Akureyri um heilsu og
lífsskjör skólanema. Er þetta
hlutfall nokkuð yfir lands-
meðaltalinu sem er 9,5%. Að-
eins Reykjavík er með hærra
hlutfall hvað þetta varðar eða
12,6%. Aðrir landshlutar eru
með nokkuð lægra hlutfall en
lægst er það á Norðurlandi
vestra eða 5,5%.
Þegar spurt var um ölvun einu
sinni eða oftar síðustu 12 mán-
uði svöruðu 36,2% játandi. Það
er nokkuð lægra hlutfall en í
sumum öðrum landshlutum en
á Austurlandi var þetta hlutfall
hæst, eða 49,4%. Landsmeðal-
talið var 39,5% .
Ef kynjahlutfallið er skoðað í
þessu samhengi kemur í ljós að
tæp 12% stúlkna í 10. bekk á
Suðurnesjum hafa notað hass
eða marijúana einu sinni eða
oftar. Aðeins í Reykjavík er
þetta hlutfall hærra, eða 12,3%.
Aðrir landshlutar koma langt á
eftir en landsmeðaltalið er 8%.
12,5% drengja í 10. bekk á Suð-
urnesjum höfðu notað umrædd
vímuefni einu sinni eða oftar en
landsmeðaltalið var tæp 11% á
meðal drengjanna.
Hassneysla nem enda hef ur
verið nokkuð sveiflukennd und-
anfarinn ár en er nú
komin í svipað far og fyr ir
rúmum áratug, segir í skýrsl-
unni. Eftir mikla aukningu á
milli áranna 1995 og 1999 hefur
neyslan farið stigminnkandi
og 1 af hverjum 10 nemendum
kveðst nú hafa prófað hass yfir
ævina. Hlutfall þeirra nemenda
sem notað hafa hass á síðustu
30 dögum hefur þó hækkað
sem gefur til kynna að fjöldi
reglulegra neytenda hafi aukist
á síðustu árum, segir ennfermur
í skýrslunni.
Alls svöruðu rúmlega 11.800
nemendur á landinu öllu og var
svarhlutfall um 86%.
Rúm 12 prósent hafa notað
hass eða marijúana
10. bekkingar á Suðurnesjum:
Öryggislendingin lukkaðist vel
www.kaffitar.is
Kaffitár hefur með frumkvæði og forystu lagt sitt af mörkum
til fjölbreytileikans í kaffilífi þjóðarinnar. Megin áhersla
Kaffitárs er að gera vel við kaffibændur sem og viðskiptavini
sína - og að gera alltaf betur. Grundvöllur þess er vitanlega
ástríða okkar að finna og framleiða hið allra besta úrvalskaffi
og leyfa öðrum að njóta þess.
Starfið:
Óskað er eftir starfsmanni í fullt starf (hlutastarf kemur
einnig til greina) á kaffihús okkar að Stapabraut 7,
Reykjanesbæ.
Starfssvið:
Sala á úrvalskaffi, kaffivörum og gjafavörum - sem og
öðrum vörum. Framleiðsla á veitingum og kaffidrykkjum.
Hæfniskröfur:
Við leitum að áhugasömum og þjónustuljúfum einstaklingi
með metnað og frumkvæði.
Skriflegum umsóknum má skila með tölvupósti á
lilja@kaffitar.is eða á kaffihús Kaffitárs. Frekari upplýsingar
veitir Lilja Pétursdóttir í síma 696-8805.
Kaffitár ehf., stofnsett árið 1990, rekur kaffibrennslu og kaffihús
í aðalstöðvum sínum í Njarðvík. Auk þess má finna
kaffibúðir/kaffihús í Bankastræti, Kringlunni, í Þjóðminjasafninu
í Reykjavík, Listasafni Íslands og í Leifsstöð.
Kaffitár er reyklaus vinnustaður án vínveitinga.
-leggur heiminn að vörum þér
Þakkarkveðja.
Innilegar þakkir til allra sem
heiðruðu mig,með heimsókn
gjöfum,skeytum og góðum
kveðjum á níræðis afmæli
mínu þann 11.október sl.
Sigrún Oddsdóttir
Nýjalandi