Víkurfréttir - 16.04.2014, Qupperneq 9
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudagurinn 16. apríl 2014 9
Hafa skal það sem
betur hljómar
Hin nývígða Hljómahöll hefur farið langt fram úr mínum væntingum hvað varðar glæsileika, aðbúnað og aðstöðu. Fyrst
skal nefna Tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem nú hefur flutt starf-
semi sína úr örþreyttu húsnæði á Austurgötu og Þórustíg í aðstöðu
eins og hún gerist best. Var haft á orði að ekki væri skólinn eingöngu
með þeim betri á landinu heldur þyrfti að leita langt út fyrir hina
margfrægu landsteina til að finna jafn góða aðstöðu. Er ég ekki í
nokkrum vafa um að hér eftir sem hingað til mun skólinn ala af
sér afreksmenn í tónlist sem eiga eftir að viðhalda tónlistararfinum
okkar.
Rokksafn Íslands opnaði síðan
hinn 5. apríl við mikla viðhöfn og
frábærar viðtökur. Er það einkar
ánægjulegt að við í Reykjanesbæ
skulum vera fyrst til að koma upp
safni til heiðurs íslenskri hryn-
tónlist. Upphaf þessa safns má
rekja til poppminjasafns sem fyrst
var komið upp á Glóðinni og
vann faðir minn, Rúnar Júlíus-
son, ötullega að því að koma hug-
myndinni áleiðis. Á safninu er
sögu hryntónlistar gerð góð skil í
máli og myndum frá upphafi vega
þegar Jónas Hallgrímsson samdi
lífseigasta „hittarann“ sem enn er
sunginn á mannamótum „Hvað
er svo glatt“. Nýjasti gripurinn er
gítar Brynjars Leifssonar úr Of
monsters and men sem er að gera
garðinn frægan fyrir utan áður-
nefnda landsteina.
Síðast og alls ekki síst skal nefna
vel heppnaðar endurbætur á
Stapanum þannig að nú er þar
fyrsta flokks aðstaða fyrir hvers
konar viðburði, tónleika, árs-
hátíðir og ráðstefnur. Vel fer á
því að flétta þessar þrjár einingar
saman undir nafninu Hljóma-
höll því þær styðja allar hver aðra
og hafa sterka sögulega vísun.
Hljómar, Pónik og Einar, Júdas
og fleiri hljómsveitir áttu Stapa og
Ólafi Sigurjónssyni, Stapahaldara
mikið að þakka og er það ánægju-
legt hve vel hefur tekist til með
tengingu gamla félagsheimilisins
við safnið og skólann.
Í mínum eyrum getur þetta ekki
hljómað betur.
Baldur Guðmundsson
■■ Eysteinn Eyjólfsson bæjarfulltrúi skrifar:
Fjárfestum í fólki frekar en steypu
Sa m f y l k -ingin setti
málefni fjöl-
skyldunnar á
oddinn í kosn-
ingunum 2010.
V i ð v i l d u m
forgangsraða
í rekstri bæjarins til þess að
verja fjölskyldurnar, börn og
unglinga, fyrir verstu áhrifum
kreppunnar. Að okkar mati var
allt of langt gengið í niðurskurði
í þessum málaflokki á kjörtíma-
bilinu; Frístundaskólinn er ekki
svipur hjá sjón, hvatagreiðslur
voru aflagðar, umönnunar-
greiðslur eru lægri hér en í ná-
grannasveitarfélögum og leik-
skólagjöld hafa hækkað – svo
eitthvað sé nefnt.
Við gerðum allt við gátum til að
hnika meirihluta bæjarstjórnar í
rétta átt. Lögðum m.a. ítrekað fram
breytingartillögur við fjárhagsá-
ætlun Reykjanesbæjar sem gerðu
ráð fyrir auknu fjármagni til barna
og unglinga – t.d. til að endurvekja
hvatagreiðslur – og til atvinnumála
og vildum á móti minnka mjög
fjármagn til kynningarmála hjá
bænum og framlög til stjórnmála-
flokka. Þessar tillögur felldu sjálf-
stæðismenn, ítrekað.
En dropinn holar steininn. Barátta
okkar skilaði m.a. því að hvata-
greiðslur hafa verið teknar aftur
upp – en eru samt allt of lágar. Þá
tókst okkur að fá meirihluta sjálf-
stæðismanna til að draga til baka
5% hækkun þjónustugjalda árið
2014 og komum í veg fyrir að leik-
skólagjöld, gjald fyrir skólamáltíðir,
tónlistarskóla og frístundaskóla
væru hækkuð með tilheyrandi
kostnaði fyrir barnafjölskyldur
bæjarins.
Þrefaldar hvatagreiðslur =
hálft hringtorg
Við höfum bent á að það er hægt að
létta hag fjölskyldu- og barnafólks
í bænum okkar með því að for-
gangsraða á nýjan hátt. Sem dæmi
má nefna að rekstrarárin 2013 og
2014 greiðir Reykjanesbær 3-400
milljón krónum minna til EFF.
Við lögðum áherslu á að nýta þetta
tímabundna svigrúm til að hlífa
íbúum Reykjanesbæjar við gjald-
skrárhækkunum sem hafa verið
töluverðar undanfarin ár en ekki í
minnisvarða.
Hvatagreiðslur eru nú 10.000 kr.
á barn sem nýttar eru til þess að
styrkja íþrótta-, menningar- og
tómstundastarf barna. Á síðasta
ári var aðeins sótt um hvata-
greiðslur fyrir 42% barna á grunn-
skólaldri í Reykjanesbæ. Þessu
þarf af breyta. Ef við þreföldum
hvatagreiðslur í 30.000 kr. á barn
og gerum ráð fyrir að foreldrar
60% barna á grunnskólaaldri
nýti sér greiðslurnar myndi það
kosta bæinn um 25 milljónir til
viðbótar á ári. Helminginn af því
sem Parísarhringtorgið kostaði en
heildarkostnaður við torgið nam
55.542.590 kr. samkvæmt upp-
lýsingum framkvæmdastjóra Um-
hverfis- og skipulagssviðs Reykja-
nesbæjar (Vegagerðin greiðir 25
milljónir af þeirri upphæð) og um
það bil jafn mikið og bæjarhliðin
við Reykjanesbrautina kostuðu –
svo við setjum upphæðirnar í sam-
hengi.
Ný sýn – breyttar áherslur
Á málefnafundum Samfylkingar-
innar og óháðra höfum við m.a.
rætt undanfarið hvernig við getum
breytt forgangsröðun til að gera hag
fjölskyldna vænni og bæinn okkar
betri: Brúa bilið milli fæðingaror-
lofs og leikskóla með fjölbreyttum
aðferðum, t.d. hækka umönnunar-
greiðslur og lækka leikskólaaldur,
hækka hvatagreiðslur, efla Frí-
stundaskóla og koma á íþróttaskóla
innan hans, tryggja systkinaafslátt
þvert á íþróttagreinar, efla skóla-
starf á öllum skólastigum og efla
fjölskyldu- og félagsþjónustuna,
svo eitthvað sé nefnt.
Næsta víst er að við munum breyta
áherslum og fjárfesta í fólki frekar
en steypu fáum við til þess brautar-
gengi. Er ekki kominn tími á það?
Eysteinn Eyjólfsson bæjarfulltrúi
3. sæti á lista Samfylk-
ingarinnar og óháðra
-aðsent pósturu vf@vf.is
SUÐURNES | GARÐUR | GRINDAVÍK | REYKJANESBÆR | SANDGERÐI | VOGAR
Vaxtarsamningur Suðurnesja
Verkefnastyrkir – Aukaúthlutun
Vaxtarsamningur Suðurnesja auglýsir eftir styrkumsóknum í hluta þeirra
fjármuna sem sjóðurinn hefur til úthlutunar á grundvelli samnings milli
Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins og Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.
Styrkhæf verkefni eru þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst
stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættar vöru eða þjónustu.
Skilyrði úthlutunar er að viðkomandi verkefni feli í sér samstarf þriggja
eða fleiri fyrirtækja og falli að markmiðum samningsins sem og verklags-
reglum um úthlutun. Styrkir geta verið allt að 50% af styrkhæfum kostnaði
einstakra verkefna, gegn mótframlagi þátttakenda.
Til ráðstöfunar eru 8 milljónir króna.
Skilgreining á styrkhæfum kostnaði, umsóknareyðublöð og aðrar upp-
lýsingar er að finna á vefsíðu Vaxtarsamnings vaxtarsamningur.sss.is.
Umsóknarfrestur er til kl. 16, miðvikudaginn 30. apríl 2014.
Umsóknum skal skilað á netfangið vaxtarsamningur@heklan.is.
Nánari upplýsingar veitir Björk Guðjónsdóttir, verkefnastjóri,
bjork@heklan.is sími 420 3288
heklan.is
Vígsluafmæli Ytri-
Njarðvíkurkirkju
■u Í tilefni 35 ára vígsluafmælis
Ytri-Njarðvíkurkirkju 24. apríl
n.k., sumardaginn fyrsta, verður
boðið til kaffisamsætis að lok-
inni guðsþjónustu sem hefst kl.
11. Systrafélag kirkjunnar mun
formlega afhenda höfðinglega
gjöf til kirkjunnar. Allir velunn-
arar kirkjunnar eru hvattir til að
mæta og taka þátt í guðsþjón-
unni þar sem sóknarprestur
þjónar fyrir altari og kór kirkj-
unnar leiðir söng undir stjórn
organista kirkjunnar. Einnig að
þiggja veitingar í boði sóknar-
nefndar að henni lokinni.
Ók undir áhrifum
kannabis
■uEinn ökumaður var tekinn
úr umferð í vikunni sem leið í
umdæmi lögreglunnar á Suður-
nesjum vegna gruns um að hann
æki undir áhrifum fíkniefna.
Sýnatökur á lögreglustöð stað-
festu að hann hefði neytt kanna-
bisefna. Þá var annar ökumaður
staðinn að akstri án þess að nota
öryggisbelti.
Sótsprenging í
bátskamínu
■uLögreglan á Suðurnesjum
fékk í síðustu viku tilkynningu
um eld í báti sem lá bundinn við
bryggju í Njarðvíkurhöfn. Hafði
vegfarandi orðið var við reyk
sem lagði frá bátnum og lét vita.
Þegar að var komið reyndist hafa
orðið sótsprenging í kamínu í
honum. Nokkur reykur var í lúk-
arnum, en skemmdir af völdum
sprengingarinnar, reyndust
óverulegar.