Víkurfréttir - 23.01.2014, Side 1
Friðjón Einarsson, bæjar-fulltrúi Samfylkingar í
Reykjanesbæ, spyr hvar þing-
menn Suðurnesja séu nú þegar
þarf á þeim að halda. Almenn-
ingssamgöngur á Suðurnesjum
voru aftur teknar til umræðu
á bæjarstjórnarfundi í Reykja-
nesbæ á þriðjudagskvöld vegna
þeirrar stöðu sem komin er upp
eftir að Vegagerðin sleit ein-
hliða samningi við Samband
sveitarfélaga á Suðurnesjum
um einkaleyfi á akstursleiðinni
milli Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar og Reykjavíkur.
„Er þöggun í gangi?,“ spurði
Friðjón á fundinum og vill sjá
þingmenn svæðisins taka málið
upp, enda hafi tugir milljóna
króna verið teknar af sveitar-
félögum á Suðurnesjum með því
að slíta samningnum; milljónir
sem átti að nota til að byggja
upp öflugt kerfi almenningssam-
gangna á Suðurnesjum.
Friðjón fullyrti á bæjarstjórnar-
fundinum að hann hefði sent
þingmönnum fyrirspurn um
málið og ekki fengið svör. „Af
hverju hafa þeir ekki dug í að
tala við okkur?,“ spurði Frið-
jón. Hann hvatti jafnframt
fulltrúa Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar til að tala við sitt
fólk á þingi.
Eysteinn Eyjólfsson, bæjarfull-
trúi Samfylkingar, sagði Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur, innan-
ríkisráðherra, vera að eyðileggja
uppbyggingu í samgöngumálum
á Suðurnesjum. Það væri runnið
undan rifjum hennar að Vega-
gerðin hefði slitið samningnum
við Samband sveitarfélaga á
Suðurnesjum. Málið væri tilbúin
úlfakreppa af hálfu innanríkis-
ráðherra. Nú ætti að einkanýta
feitu bitana en þjóðnýta tapið.
„Hverra hagsmuna er verið að
gæta?,“ spurði Eysteinn og vildi
meina að með þessu væri verið
að draga taum stórfyrirtækja.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, sagði að Samband
sveitarfélaga á Suðurnesjum,
SSS, væri að vinna sína vinnu vel
og að SSS væri með sterka stöðu
í málinu.
Böðvar Jónsson, forseti bæjar-
stjórnar og bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks, sagði það ósmekk-
legt þegar talað væri um að verið
væri að gæta hagsmuna stór-
fyrirtækja. Hann benti jafnframt
á að búið hefði verið að gera
samning við Samband sveitar-
félaga á Suðurnesja og ljóst sé
að það eigi að greiða bætur fyrir
hann.
vf.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUDAGURINN 23. JANÚAR 2014 • 3 . TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Full
búð
af sp
enna
ndi v
örum
fyri
r han
n
BÓN
DA-
DAG
UR
af lyfjum utan greiðsluþátttöku
af lausasölulyfjum og öðrum vörum
Frábært
vöruúrval
og þjónusta
í Reykjanesbæ
16% afsláttur
12% afsláttur
Lyfja Reykjanesbæ
Krossmóa 4
Sími 421 6565
www.lyfja.is
Afgreiðslutími:
mán.–fös. 9–19
laugard. 10–16
sunnud. 12–16
Betri kjör fyrir heldri borgara
Félagar í Félagi eldri borgara
á Suðurnesjum njóta sérkjara
í Lyfju Reykjanesbæ.
Við stefnum að vellíðan.
- Fjörugar umræður um almenningssamgöngur í bæjarstjórn Reykjanesbæjar
Hvar eru þingmennirnir?
REGNBOGI Í REYKJANESBÆ
Flóabandalagið og
Verslunarmanna-
félag Suðurnesja
fella kjarasamning
Flóabandalagið, sem Verka-lýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis á aðila
að, hefur fellt kjarasamning
sem gerður var milli Alþýðu-
sambands Íslands og Samtaka
atvinnulífsins. Verkalýðsfélag
Grindavíkur hefur einnig fellt
samninginn og sömu sögu er
að segja af Verslunarmanna-
félagi Suðurnesja. Verkalýðs-
félag Sandgerðis samþykkti hins
vegar samninginn.
Flóabandalagið
(Efling, Hlíf og VSFK)
Já 46%
Nei 53%
Auðir og ógildir 1%
Samningurinn er felldur.
Verkalýðsfélag Grindavíkur
Á kjörskrá 648, atkvæði
greiddu 172 eða 26%
Já 29 eða 17%
Nei 136 eða 79%
Auðir 7
Samningurinn felldur.
Verslunarmannafélag
Suðurnesja
Á kjörskrá voru 1.222.
139 greiddu atkvæði eða 11.37&
Já 44 eða 32%,
Nei 93 eða 67%
Auðir 2 eða 1%
Samningurinn felldur.
Verkalýðs- og
sjómannafélag Sandgerðis
Á kjörskrá 360, atkvæði
greiddu 107 eða 30%
Já 63 eða 59%
Nei 40 eða 37%
Auðir og ógildir 4 eða 4%
Samningurinn samþykktur.
- Sjá nánar á vf.is