Víkurfréttir - 23.01.2014, Page 12
fimmtudagurinn 23. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR12
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ
PRÓFKJÖR
Auglýsing eftir framboðum til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ
Samþykkt var á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ að efna til
prófkjörs til að velja á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar 31. maí 2014. Prófkjörið fer fram 1. mars 2014.
Kosið verður um sjö efstu sæti listans.
Frambjóðendur í prófkjörinu skulu valdir þannig:
A) Gerð er tillaga til kjörnefndar fyrir kl. 18.00, mánudaginn 10. febrúar 2014.
Tillagan er því aðeins gild að hún sé bundin við einn flokksmann.
Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri en sex tillögum.
B) Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönnum búsettum í Reykjanesbæ. Kjörnefnd er
heimilt að tilnefnda prófkjörsframbjóðendur til viðbótar framjóðendum samkvæmt A-lið.
Hér með auglýsir kjörnefnd fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ eftir fram-
bjóðendum til prófkjörs sbr. A-lið hér að ofan. Skal framboð vera bundið við flokks-
bundinn einstakling enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til
prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í bæjarstjórnarkosningunum í
Reykjanesbæ 31. maí 2014. Tillögum að framboðum ber að skila, ásamt mynd af viðkom-
andi og stuttu æviágripi á tölvutæku formi á netfangið xd.profkjor2014@gmail.com
Allar nánari upplýsingar um prófkjörið veitir formaður kjörnefndar
Ragnar Örn Pétursson á netfanginu xd.profkjor2014@gmail.com
Framboðsfrestur er til 10. febrúar 2014 kl. 18.00.
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ
Skipasmíðastöð Njarðvíkur hefur óskað eftir afstöðu At-
vinnu- og hafnarráðs Reykjanes-
bæjar til þess hvort það geti fallist
á breytta notkun eignanna Sjávar-
götu 6-8 í Reykjanesbæ, sem nú
hýsa skrifstofur, mötuneyti og
trésmíðaverkstæði Skipasmíða-
stöðvar Njarðvíkur. Hugmyndir
eru uppi um að breyta húsinu
þannig að þar verði komið upp
gistiheimili.
Ráðið telur fyrirhugaðar breytingar
geta fallið innan þessa iðnaðar-
og hafnarsvæðis og vísaði málinu
áfram til umhverfis- og skipulags-
sviðs Reykjanesbæjar.
Það tekur undir afgreiðslu Atvinnu-
og hafnarsviðs en segir að þegar
teikningar og endanleg ákvörðun
liggi fyrir þurfi að grenndarkynna
málið og umhverfis- og skipulags-
svið Reykjanesbæjar taki endan-
lega ákvörðun þegar niðurstaða
grenndarkynningar liggur fyrir.
Skipasmíðastöð breytt í gistiheimili?
Ásýnd hafnarsvæðisins
í Grindavík breytist
Ásýnd hafnarsvæðisins í Grindavík mun breytast ansi mikið en nú er verið að rífa gömlu lýsistankana sem hafa staðið ónotaðir
eftir brunann mikla í fiskifjölsverksmiðjunni á þessu svæði fyrir um
áratug síðan.
Hauktak á lóðina og er fyrirhuguð uppbygging á þessu atvinnusvæði
við höfnina sem taka mun miklum breytingum eftir þetta, ekki síður
eftir að landfyllingu við Suðurgarð lýkur.
www.vf.is
LESTUR
VINSÆLASTI FRÉTTAMIÐILL Á SUÐURNESJUM
+ 83%
Við leitum að
fólki sem kann
að meta vont veður
Hæfniskröfur:
• Brennandi áhugi á útivist og hreyfingu.
• Þátttaka í starfi björgunarsveitanna er kostur.
• Mjög góð enskukunnátta.
• Kunnátta í Norðurlandamáli, þýsku
eða öðrum tungumálum er kostur.
• Þjónustulund og jákvætt viðmót.
• Reynsla af sölustörfum.
• Stúdentspróf.
• Framhaldsmenntun er kostur.
66°NORÐUR leitar að dugmiklum
útivistargörpum til sölustarfa
í verslanir sínar í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar í sumar.
Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar nk.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn
ásamt ferilskrá á netfangið starf@66north.is með
fyrirsögninni „Umsókn – Starfsmaður í FLE“.
Rammagerðin
auglýsir eftir starfsfólki til starfa í verslanir
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í sumar
Rammagerðin er ein elsta gjafavöruverslun landsins
og hefur selt íslenskt handverk síðan 1940
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
International Airport
Við leitum að starfsfólki sem er vel að sér í íslenskri sögu
og hefur áhuga á íslensku handverki.
Umsækjendur þurfa einnig að hafa áhuga á sölumennsku
og hafa til að bera ríka þjónustulund.
Annað:
• Góð tungumálakunnátta, íslenska og enska eru skilyrði.
• Færni í samskiptum og ríkir samstarfshæfileikar.
• Öguð vinnubrögð og sveigjanleiki.
Um er að ræða hluta- og heilsdagsstörf þar sem unnið er
á vöktum. Bæði karlar og konur eru hvött til að sækja um.
Aldursviðmið er 20 ár.
Umsóknir óskast sendar á:
atvinna@rammagerdin.is fyrir sunnudaginn 2. febrúar.
Skipasmíðastöð Njarðvíkur vill breyta þessu húsi í gistiheimili.
VF-mynd: Hilmar Bragi