Víkurfréttir - 08.05.2014, Side 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUDAGURINN 8. MAÍ 2014 • 18. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Hjá okkur njóta allir sérkjara
af lyfjum utan greiðsluþáttöku
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Framkvæmdir við nýtt 2500 fermetragagnaver eru hafnar á Ásbrú í Reykja-
nesbæ. Gagnaverið rís við gamla Patter-
son-flugvöllinn sem er í útjaðri Ásbrúar og
upp af Fitjum í Njarðvík. Það er Advania
sem stendur að byggingu gagnaversins en
ÍAV annast bygginaframkvæmdir. Mikill
vöxtur hefur verið í gagnaversþjónustu
fyrirtækisins, en Advania tekur einnig
gagnaver í Hafnarfirði.
„Undirbúningur er þegar hafinn og ef vel
gengur með framkvæmdir og öflun við-
skiptavina mun fyrsti áfangi verða tekinn í
notkun í ár,“ segir Eyjólfur Magnús Krist-
insson framkvæmdastjóri Rekstrarlausna
Advania. Hann segir svæðið á Ásbrú mjög
hentugt svæði fyrir gagnaversstarfsemi og
aðgengi að orku er góður. „Fyrir okkur sem
reka gagnaver skiptir mestu máli að hafa gott
aðgengi að orku og svölu lofti sem hjálpar til
við að kæla tölvubúnað á umhverfisvænan og
hagkvæman hátt,“ segir Eyjólfur.
„Það er orðið forgangsmál hjá fyrirtækjum
og stofnunum um allan heim að draga úr
útblæstri gróðurhúsaloftegunda í sinni upp-
lýsingatækni. Við getum boðið græna orku
og fyrirsjáanlegan orkukostnað til langs tíma.
Fyrir viðskiptavini okkar þýðir þessi stækkun
aukna möguleika á að hagnýta svokölluð
tölvuský þar sem hýsa má gögn, hugbúnað
og tölvuumhverfi. Ávinningur þeirra felst í
öruggum, hagkvæmum og sveigjanlegum
tölvurekstri sem knúinn er með grænni orku.
Það er einnig ánægjuefni að geta stuðlað að
uppbyggingu atvinnulífsins í Reykjanesbæ
með þessari framkvæmd,“ segir Gestur G.
Gestsson forstjóri Advania.
„Við erum búin að vinna í því á undanförnum
árum að markaðssetja svæðið fyrir þennan
iðnað. Verne fór af stað fyrir nokkrum árum
síðan og hefur verið í sinni uppbyggingu
en það er ánægjulegt að sjá fleiri aðila velja
þessa staðsetningu, Ásbrú, fyrir sín gagnaver.
Á margan hátt er þetta mjög ánægjulegt og
líka það að þetta er fyrsta nýbyggingafram-
kvæmdin hér á svæðinu. Hver hefði trúað
því fyrir nokkrum árum, þrátt fyrir allan
þennan byggingafjölda hér, að það væri þegar
farið að byggja húsnæði undir nýjan rekstur
hér á svæðinu,“ segir Kjartan Þór Eiríksson,
framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkur-
flugvallar, Kadeco.
– Er allt húsnæði á svæðinu upptekið?
„Nei, það er nú ekki þannig en mikið af þessu
húsnæði sem Advania hefði kannski getað
nýtt undir sína starfsemi er upptekið og en
þetta er sérhæfð aðstaða sem þeir þurfa.
Kosturinn sem þeir sáu fram á var að heppi-
legast væri að fara í að byggja nýtt og sérhæft
húsnæði, sem þeir eru að byggja núna“.
Það svæði sem heyrir undir Ásbrú er mun
meira en bara gamla byggðin á Keflavíkur-
flugvelli. Ásbrú er í raun allt það svæði sem
áður heyrði undir Varnarliðið.
„Þetta eru um 50 ferkílómetrar lands í
kringum Keflavíkurflugvöll sem við erum
að þróa og höfðum það hlutverk að markaðs-
setja og skipuleggja og draga starfssemi á. Og
þetta svæði sem er hérna niðri á Fitjum er
í jaðri þess og við settum inn í aðalskipulag
Reykjanesbæjar ákveðinn reit sem við ætl-
uðum undir þessa gagnaversuppbyggingu
fyrir nokkrum árum. Það er mjög ánægjulegt
að sjá að fyrstu skrefin eru stigin í uppbygg-
ingu þar og ég held að það sé alveg ljóst að
þetta mun mynda grunninn að miklu meiri
uppbyggingu á þessum reit,“ segir Kjartan
Þór Eiríksson í samtali við Víkurfréttir.
Nýtt gagnaver á Ásbrú
■■ Advania byggir 2500 fermetra gagnaver í Reykjanesbæ:
Tæp 60% þátttakendaí könnun Talnakönn-
unar ehf. vilja sjá Árna Sig-
fússon sem næsta bæjar-
stjóra í Reykjanesbæ. 21%
vildu sjá óháðan/ópólit-
ískan bæjarstjóra. Talna-
könnun ehf. gerði könnun
um sveitarstjórnarkosning-
arnar í Reykjanesbæ dagana 3. til 4. maí sl.
Spurt var: Hvern viltu sjá sem næsta bæjar-
stjóra í Reykjanesbæ?
Samkvæmt niðurstöðunni fær Árni Sigfús-
son 59,6% og óháður/ópólitískur bæjarstjóri
21%. Oddvitar annarra framboða fengu mun
minna. Gunnar Þórarinsson fékk 9,6% fylgi í
könnuninn en aðrir oddvitar 1,9% eða minna.
„Ég er mjög þakklátur þeim stuðningi sem
bæjarbúar sýna mér með þessu - en minni á
að það getur orðið flókið að standa í stafni ef
mörg flokksbrot þarf til að mynda meirihluta.
Reykjanesbær þarf skýra sýn áfram og við
megum ekki glutra niður því sem við höfum
byggt upp,“ segir Árni Sigfússon í samtali við
Víkurfréttir um niðurstöður könnunarinnar.
Könnunin var framkvæmd þannig að spyrlar
höfðu aðeins símanúmer en ekki nafn og
heimilisfang þeirra sem hringt var í. Svör voru
skráð í sérstök skjöl og ekki hægt að tengja á
milli þeirra og símanúmeranna. 53% svörun
fékkst við spurningunni um
bæjarstjóra. Byrjað var með úrtak með 1111
símanúmerum. Svör að öllu leyti eða hluta
fengust frá 367 einstaklingum.
- 21% vilja ópólitískan bæjarstjóra
og 9,6% Gunnar Þórarinsson
Talnakönnun með skoðana-
könnun í Reykjanesbæ:
59,6% vilja
Árna sem
bæjarstjóra
Skessan
býður til
Barna-
hátíðar
- síða 2