Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.2014, Síða 1

Víkurfréttir - 08.05.2014, Síða 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUDAGURINN 8. MAÍ 2014 • 18. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR Hringbraut 99 - 577 1150 Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Hjá okkur njóta allir sérkjara af lyfjum utan  greiðsluþáttöku Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA Framkvæmdir við nýtt 2500 fermetragagnaver eru hafnar á Ásbrú í Reykja- nesbæ. Gagnaverið rís við gamla Patter- son-flugvöllinn sem er í útjaðri Ásbrúar og upp af Fitjum í Njarðvík. Það er Advania sem stendur að byggingu gagnaversins en ÍAV annast bygginaframkvæmdir. Mikill vöxtur hefur verið í gagnaversþjónustu fyrirtækisins, en Advania tekur einnig gagnaver í Hafnarfirði. „Undirbúningur er þegar hafinn og ef vel gengur með framkvæmdir og öflun við- skiptavina mun fyrsti áfangi verða tekinn í notkun í ár,“ segir Eyjólfur Magnús Krist- insson framkvæmdastjóri Rekstrarlausna Advania. Hann segir svæðið á Ásbrú mjög hentugt svæði fyrir gagnaversstarfsemi og aðgengi að orku er góður. „Fyrir okkur sem reka gagnaver skiptir mestu máli að hafa gott aðgengi að orku og svölu lofti sem hjálpar til við að kæla tölvubúnað á umhverfisvænan og hagkvæman hátt,“ segir Eyjólfur. „Það er orðið forgangsmál hjá fyrirtækjum og stofnunum um allan heim að draga úr útblæstri gróðurhúsaloftegunda í sinni upp- lýsingatækni. Við getum boðið græna orku og fyrirsjáanlegan orkukostnað til langs tíma. Fyrir viðskiptavini okkar þýðir þessi stækkun aukna möguleika á að hagnýta svokölluð tölvuský þar sem hýsa má gögn, hugbúnað og tölvuumhverfi. Ávinningur þeirra felst í öruggum, hagkvæmum og sveigjanlegum tölvurekstri sem knúinn er með grænni orku. Það er einnig ánægjuefni að geta stuðlað að uppbyggingu atvinnulífsins í Reykjanesbæ með þessari framkvæmd,“ segir Gestur G. Gestsson forstjóri Advania. „Við erum búin að vinna í því á undanförnum árum að markaðssetja svæðið fyrir þennan iðnað. Verne fór af stað fyrir nokkrum árum síðan og hefur verið í sinni uppbyggingu en það er ánægjulegt að sjá fleiri aðila velja þessa staðsetningu, Ásbrú, fyrir sín gagnaver. Á margan hátt er þetta mjög ánægjulegt og líka það að þetta er fyrsta nýbyggingafram- kvæmdin hér á svæðinu. Hver hefði trúað því fyrir nokkrum árum, þrátt fyrir allan þennan byggingafjölda hér, að það væri þegar farið að byggja húsnæði undir nýjan rekstur hér á svæðinu,“ segir Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkur- flugvallar, Kadeco. – Er allt húsnæði á svæðinu upptekið? „Nei, það er nú ekki þannig en mikið af þessu húsnæði sem Advania hefði kannski getað nýtt undir sína starfsemi er upptekið og en þetta er sérhæfð aðstaða sem þeir þurfa. Kosturinn sem þeir sáu fram á var að heppi- legast væri að fara í að byggja nýtt og sérhæft húsnæði, sem þeir eru að byggja núna“. Það svæði sem heyrir undir Ásbrú er mun meira en bara gamla byggðin á Keflavíkur- flugvelli. Ásbrú er í raun allt það svæði sem áður heyrði undir Varnarliðið. „Þetta eru um 50 ferkílómetrar lands í kringum Keflavíkurflugvöll sem við erum að þróa og höfðum það hlutverk að markaðs- setja og skipuleggja og draga starfssemi á. Og þetta svæði sem er hérna niðri á Fitjum er í jaðri þess og við settum inn í aðalskipulag Reykjanesbæjar ákveðinn reit sem við ætl- uðum undir þessa gagnaversuppbyggingu fyrir nokkrum árum. Það er mjög ánægjulegt að sjá að fyrstu skrefin eru stigin í uppbygg- ingu þar og ég held að það sé alveg ljóst að þetta mun mynda grunninn að miklu meiri uppbyggingu á þessum reit,“ segir Kjartan Þór Eiríksson í samtali við Víkurfréttir. Nýtt gagnaver á Ásbrú ■■ Advania byggir 2500 fermetra gagnaver í Reykjanesbæ: Tæp 60% þátttakendaí könnun Talnakönn- unar ehf. vilja sjá Árna Sig- fússon sem næsta bæjar- stjóra í Reykjanesbæ. 21% vildu sjá óháðan/ópólit- ískan bæjarstjóra. Talna- könnun ehf. gerði könnun um sveitarstjórnarkosning- arnar í Reykjanesbæ dagana 3. til 4. maí sl. Spurt var: Hvern viltu sjá sem næsta bæjar- stjóra í Reykjanesbæ? Samkvæmt niðurstöðunni fær Árni Sigfús- son 59,6% og óháður/ópólitískur bæjarstjóri 21%. Oddvitar annarra framboða fengu mun minna. Gunnar Þórarinsson fékk 9,6% fylgi í könnuninn en aðrir oddvitar 1,9% eða minna. „Ég er mjög þakklátur þeim stuðningi sem bæjarbúar sýna mér með þessu - en minni á að það getur orðið flókið að standa í stafni ef mörg flokksbrot þarf til að mynda meirihluta. Reykjanesbær þarf skýra sýn áfram og við megum ekki glutra niður því sem við höfum byggt upp,“ segir Árni Sigfússon í samtali við Víkurfréttir um niðurstöður könnunarinnar. Könnunin var framkvæmd þannig að spyrlar höfðu aðeins símanúmer en ekki nafn og heimilisfang þeirra sem hringt var í. Svör voru skráð í sérstök skjöl og ekki hægt að tengja á milli þeirra og símanúmeranna. 53% svörun fékkst við spurningunni um bæjarstjóra. Byrjað var með úrtak með 1111 símanúmerum. Svör að öllu leyti eða hluta fengust frá 367 einstaklingum. - 21% vilja ópólitískan bæjarstjóra og 9,6% Gunnar Þórarinsson Talnakönnun með skoðana- könnun í Reykjanesbæ: 59,6% vilja Árna sem bæjarstjóra Skessan býður til Barna- hátíðar - síða 2

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.