Víkurfréttir - 08.05.2014, Qupperneq 2
fimmtudagurinn 8. maí 2014 • VÍKURFRÉTTIR2
Allir eru með
„Barnahátíð í Reykjanesbæ hefst
með látum á miðvikudag,“ segir
Guðlaug María Lewis verkefnis-
stjóri hátíðarinnar. „Það frábæra er
að allir eru með,“ en þar á Guðlaug
við alla 6 grunnskóla bæjarins, alla
10 leikskólana, Tónlistarskólann,
dansskólana tvo og Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja. „Bærinn er
smekkfullur af skapandi börnum.“
Skólarnir eru allir þátttakendur
í glæsilegri Listahátíð barna sem
myndar hryggjarstykkið á sérstakri
barnahátíð sem nær hámarki um
næstu helgi með fjölbreyttum við-
burðum, smiðjum og skemmti-
legheitum sem börnum og fjöl-
skyldum stendur til boða þeim að
kostnaðarlausu.
Þér er boðið í afmæli! - Ekki missa
af glæsilegri listahátíð barna
Grunnskólarnir sýna brot af því
besta úr listgreinastarfi í vetur,
undir heitinu „Listaverk í leiðinni,“
á vel völdum stöðum í bæjar-
félaginu, gestum og gangandi til
yndisauka. Leikskólarnir bjóða
upp á stóra sameiginlega sýningu í
Listasafni Reykjanesbæjar sem ber
titilinn „Afmæli“ í tilefni þess að
Reykjanesbær fagnar 20 ára afmæli
um þessar mundir. Skrautlegar
veitingar, borðbúnaður og afmæl-
isgjafir af flottustu gerð úr verð-
lausu efni munu gleðja gesti á þess-
ari glæsilegu sýningu
leikskólabarnanna. Á
föstudag fá svo leik-
listarhæfileikarnir
að njóta sín á Hæfi-
leikahátíð grunn-
skólanna í Stapa í
Hljómahöll þar sem
úrval árshátíðarat-
riða úr öllum grunn-
skólunum verða sýnd
fyrir fullu húsi.
Ekki gleyma
bangsanum heima
Að sögn Guðlaugar nær Barna-
hátíðin hápunkti á laugardag og
sunnudag þegar gestum er boðið
heim á margs konar viðburði til-
einkaða börnum og fjölskyldum
þeirra. Á laugardag fer meginþungi
dagskrárinnar fram við Víkinga-
heima. Landnámsdýragarðurinn
verður opnaður, pylsur, tónlist,
hestar, andlitsmálning og alvöru
víkingar eru meðal þess sem mun
gleðja börnin. Leikfangamarkaður
barnanna fer fram í tjaldi við Vík-
ingaheima en þar gefst börnum
kostur á að gerast kaupmenn part
úr degi. Boðið verður upp á sirkus-
smiðju og sýningu, börnin geta
hannað víkingaklæði á bangsann
sinn og skoðað slökkviliðsbíla á
nýrri sýningu. Deginum lýkur með
búningaballi með Ávaxtakörfunni
í 88 húsinu þar sem
nýr ungmennagarður
var tekinn í notkun um
liðna helgi með hoppu-
dýnu, aparólu, minigolfi,
hjólaastólarólu og leik-
tækjum.
Skessa, tröll, galdra-
kallar og nornir. Er
það furða þótt kara-
mellum rigni?
Á sunnudeginum fer
megin dagskráin fram
við Duushúsin, menn-
ingar- og listamiðstöð, þar sem
listahátíð barna er í fullum gangi.
Skessan er í hátíðarskapi og býður
upp á lummur í hellinum sínum
ásamt Fjólu tröllastelpu. Tívolítæki
verða á Keflavíkurtúni, afmælis-
leikjasmiðja, galdrakalla og norna-
smiðja, kraftakeppni krakka og
þá hljóðar veðurspáin upp á kara-
melluregn. Deginum lýkur svo á
skemmtun með Góa í Bíósal.
Dagskrána í heild sinni, með tímasetningum, staðsetningum og nánari
upplýsingum er að finna á vefsíðunni barnahatid.is. með fyrirvara um
breytingar t.d. vegna veðurs. Frítt er á alla viðburði Barnahátíðar.
-fréttir pósturu vf@vf.is
„Ég fór á fund með markaðsstjóra
Krabbameinsfélagsins í febrúar
og bauðst til að sérhanna glasa-
bakka, segla og hálsmen svo og
að útbúa borðstanda fyrir þessar
vörur og selja á sem víðastan
máta. Í framhaldi af þeim fundi
var haft samband við forsvarsað-
ila markaðsdeildar Samkaups-
verslana á Suðurnesjum sem tók
vel í þetta verkefni og gaf leyfi
til að setja upp vörustanda í
verslunum Nettó í Njarðvík og
Grindavík, Samkaupum, Strax og
Kaskó í Keflavík með ljómandi
góðum árangri,“ segir Hrafn
Jónsson, eigandi Raven Design.
Í tilefni af Mottumars ákvað Hrafn
að láta gott af sér leiða með því
að styrkja gott málefni með því
að hanna og framleiða vörur með
myndmerki Mottumars og gefa
allan ágóða til Krabbameinsfélags-
ins.
Hrafn er afar þakklátur þeim sem
höfðu trú á þessu framtaki og voru
með. Hann segist hafa mætt mikilli
velvild hjá Íslandspósti sem hafði til
sölu sérmerktar Mottumarsvörur á
flestum pósthúsum landsins, þar
með talið í Vestmannaeyjum. Sér-
stakar þakkir eru til allra innan Ís-
landspósts fyrir þeirra samstarf og
velvild við þetta verkefni. „Einnig
fékk Krabbameinsfélagið í Eyjum
senda Mottumars-segla sem þeir
sáu sjálfir um að selja. Styrkurinn
hefur verið afhentur forsvars-
mönnum verkefnisins. Þessi
fjárhæð verður notuð til styrktar
baráttunni gegn krabbameini hjá
körlum.“
■■ Höfðingleg gjöf Raven Design:
700 þúsund til Krabbameinsfélagsins
„Undirbúningur við að taka á móti fólkinu hófst fyrir u.þ.b. mánuði
síðan, þegar fréttir bárust af þessum áformum Vísis. Þau eru mjög
velkomin í okkar samfélag og munu líklega aðlagast mjög hratt. Sam-
félagið á Húsavík er ekkert ósvipað og hér. Við bíðum í eftirvæntingu
eftir þessum íbúum og ætlum að taka vel á móti þeim,“ segir Róbert
Ragnarsson, bæjarstjóri Grindavíkur í viðtali við Víkurfréttir.
Eins og fram hefur komið í fréttum
munu 40 manns, sem störfuðu hjá
Vísi, flytjast búferlum frá Húsavík
og Djúpavogi til Grindavíkur. Ró-
bert segir samfélagið í Grindavík
reiðubúið til þess að taka á móti
hópnum. „Við höfum verið að stíla
inn á þetta. Við erum sjávarútvegs-,
ferðaþjónustu- og matvælafram-
leiðslubær og hingað er að koma
fólk með góða þekkingu í þeim
geira.“
Um þriðjungur hópsins sem flytur
til Grindavíkur er af erlendum upp-
runa, aðallega pólskir, og Róbert
segir að bærinn njóti góðs af því
að vera með pólskumælandi starfs-
mann sem hefur aðstoðað við að
kynna væntanlegum íbúum skóla,
leikskóla og aðra þjónustu. „Þannig
höfum við betur skilið þarfir þessa
fólks og getað útskýrt fyrir því hvað
bíður þeirra hér. Við sjáum ekki
annað en að börnin muni komast
að í skólunum strax í haust. Ekki
er um mörg börn að ræða svo að
við höfum gott svigrúm til að taka
á móti þeim og veita þeim þá þjón-
ustu sem þau þurfa.“
Spurður um húsnæðismál segir
Róbert að verið sé að vinna í að
klára íbúðir sem hafa verið óklár-
aðar. „Sérstaklega í fjölbýlishúsinu
sem Íbúðalánasjóður á. Verið er að
vinna að því að koma þeim íbúðum
í notkun. Húsnæðismálin leysast
þannig,“ segir Róbert að lokum.
„Við ætlum að taka vel á móti þessu fólki“
– Íbúum Grindavíkur fjölgar brátt um 40
Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia og Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslu Íslands undirrituðu nýverið samning um endur-
nýjun á VORTAC-flugvita Keflavíkurflugvallar.
Flugvitinn er sambyggður stefnu-
viti fyrir borgaralegt flug (VOR)
og herflug (TACAN) ásamt fjar-
lægðarmæli (DME) og stendur
norðvestan við flugbrautamót
Keflavíkurflugvallar.
Flugvitinn var settur upp á sjötta
áratug síðustu aldar en nú eru
hættir að fást í hann varahlutir. Nýi
búnaðurinn er keyptur af fyrirtæk-
inu Thales í Þýskalandi og verður
hann settur upp á nýjum stað á
flugvellinum.
Kostnaður við verkefnið er um 200
milljónir króna sem að mestu leyti
verða greiddar af Alþjóðaflugmála-
stofnuninni og Mannvirkjasjóði
Atlantshafsbandalagsins. Verklok
eru áætluð í lok þessa árs.
Endurnýja flugvita
á Keflavíkurflugvelli
- Nýr flugviti kostar
200 milljónir króna
Gamli flugvitinn á
Keflavíkurflugvelli.
Skessan í hell-
inum býður til
Barnahátíðar
– í níunda sinn í fjölskylduvænum Reykjanesbæ 7. - 11. maí.
Neikvæður rekstur Voga
■uÁrsreikningur Sveitarfélagsins
Voga var tekinn til fyrri umræðu
á síðasta fundi bæjarstjórnar.
Fram kom á fundinum að
rekstrarniðurstaðan er neikvæð
um tæpar 20 milljónir króna.
Gert hafði verið ráð fyrir að jöfn-
uður yrði milli gjalda og tekna
að því er kemur fram í fréttabréfi
sem Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
sendi frá sér. Þar segir hann að
góðu fréttirnar séu hins vegar
þær að skuldaviðmið bæjar-
félagsins sé komið vel niður fyrir
viðmiðunarmörkin sem sett eru
í sveitarstjórnarlögunum. Hlut-
fallið er nú 109% ef allar skuldir
eru teknar með í reikninginn, séu
hins vegar lífeyrisskuldbindingar
teknar frá er hlutfallið innan við
90%. Lögin heimila 150% að há-
marki. Fjármunamyndun rekst-
ursins er einnig viðunandi, en
veltufé frá rekstri voru liðlega 64
m.kr. Bæjarstjórn Voga mun taka
ársreikninginn til síðari umræðu
á fundi sínum miðvikudaginn
14. maí nk.
– að betra skóla-, íþrótta- og tómstundastarfi
Skólar í fremstu röð
Framfarir hafa verið miklar á síðasta kjörtímabili og munum við halda
áfram að starfa eftir Framtíðarsýn Reykjanesbæjar.
Spjaldtölvuvæðing skólanna
Reykjanesbær hefur tekið forystu í spjaldtölvunotkun í íslensku
skólasamfélagi.
Forvarnir á unglingastigi
Fylgjum eftir einum besta árangri á landinu í forvörnum gegn áfengi,
fíkniefnum og tóbaksnotkun unglinga.
Öflugt foreldrastarf
Samstarf foreldra við skólasamfélagið er grunnurinn að þeim góða árangri
sem náðst hefur í leik- og grunnskólunum á síðustu árum.
Sveigjanlegri opnunartími leikskóla
Könnum áhuga foreldra á því að hafa sveigjanlegri opnunartíma leikskóla.
Fjölbreytni í skólastefnum
Við viljum auka fjölbreytni við rekstur og leita leiða til að bjóða upp á ný
grunnskólaúrræði í samstarfi við rekstraraðila á því sviði.
Morgun- og hádegisverður í grunnskólum
Við viljum bjóða ókeypis hafragraut í morgunmat fyrir þau börn sem þess
óska.
Við munum áfram bjóða ódýrar og hollar hádegismáltíðir í grunnskólunum
og leyfa börnunum að taka þátt í að móta matseðlana með rafrænum
kosningum.
Sköpum tónlistarmenn
Með tilkomu Hljómahallar fengu nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
bestu aðstæður til tónlistarnáms sem í boði eru hérlendis. Við ætlum að
skapa áfram jarðveg sem gefur af sér færustu og frægustu tónlistamenn
landsins.
Samstarf við íþróttahreyfinguna
Vinnum áfram með íþróttafélögunum að því að styrkja innra starf
félaganna og aðstöðu.
Rekstrar- og þjónustusamningar
Styðjum áfram íþrótta-, menningar- og tómstundarfélög í bænum með
rekstrar- og þjónustusamningum líkt og verið hefur og tryggjum þannig
fjölbreytni þeirrar starfsemi sem í boði er fyrir íbúa.
Hærri styrkir til umönnunar, íþrótta og tómstunda
Við munum halda áfram að leita leiða til að lækka kostnað foreldra
við íþróttir og tómstundir barna m.a. með hækkun íþrótta- og
tómstundastyrkja.
Við munum einnig stuðla að því að umönnunargreiðslur hækki strax á
næsta ári.
Endurvekjum frístundarútuna
Við ætlum að leggja enn frekari áherslu á að íþróttaæfingar geti
farið fram á starfstíma skólans og kanna hvort unnt sé að endurvekja
„frístundarrútuna“ þar sem börnum var ekið frá skóla og á æfingar.
Ungmennaráð – 88 húsið
Ungmennaráð hefur verið bæjarstjórn til ráðgjafar um fjölmörg verkefni
sem unga fólkið telur að leggja eigi áherslu á í bænum. Við ætlum að hlúa
vel að þessu samstarfi og því góða starfi sem fram fer innan 88 hússins og
útfæra það enn frekar.
xdreykjanes.is
Vinnum áfram
Vinnum áframSjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ