Víkurfréttir - 08.05.2014, Qupperneq 4
fimmtudagurinn 8. maí 2014 • VÍKURFRÉTTIR4
-mannlíf pósturu vf@vf.is
BÓKASAFN
REYKJANESBÆJAR
TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR
TÓNLEIKAR
Í KEFLAVÍKURKIRKJU
Sýning á myndum úr teiknimyndasögunni The
Wandering Ghost eir Moki
stendur nú yfir á neðri hæð bókasafnsins. Fígúrur úr
sögunni sitja í sófum í sýningarrými.
Sagan er ævintýrasaga sem lýsir ferðalagi og
hamskiptum lítillar vofu, án texta.
Sýningin stendur út maí og er opin á opnunartíma
safnsins, 9-18 virka daga og 11-17 laugardaga.
Strengjasveit skipuð nemendum frá Kristiansand í
Noregi og Strengjasveit Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar halda tónleika í Keflavíkurkirkju
mánudaginn 12. maí kl.19.30.
Mjög ölbrey efnisskrá, m.a. Konsert fyrir orgel og
strengi eir Hildigunni Rúnarsdóur.
Stjórnendur eru Unnur Pálsdóir og Adam Grüchot.
Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir.
Skólastjóri
AKURSKÓLI
ATVINNA
KENNARAR ÓSKAST
Viltu vinna á faglegum, kraftmiklum og skemmti-
legum vinnustað? Þá er Akurskóli staðurinn fyrir þig.
Kennarar óskast til starfa næsta skólaár.
Umsóknarfrestur er til 21. maí en ráðið er í stöðurnar
frá 1. ágúst. Hluti af stöðunum eru afleysingastöður
vegna barneignaleyfa. Þeir sem þegar hafa sótt um
þurfa ekki að endurnýja umsóknir sínar.
Starfssvið:
Umsjónarkennsla á yngsta- og miðstigi
Sérkennsla
Smíðakennsla
Menntunar- og hæfniskröfur:
Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
Góð íslenskukunnátta
Þekking á þeirri hugmyndafræði sem höfð er að
leiðarljósi í skólastarfinu
Góð mannleg samskipti
Metnaður til að bæta námsárangur og vinna að
framkvæmd framtíðarsýnar Reykjanesbæjar í
skólamálum
Umsókn fylgi afrit af leyfisbréfi og ferilskrá ásamt
upplýsingum um meðmælendur.
Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna FG en Akurskóli hefur
verið með samkomulag vegna greinar 2.1.6.3 (bókun 5) s.l.
skólaár.
Karlmenn jafnt sem konur eru hvött til að sækja um störfin.
Sjá nánar um Akurskóla: www.akurskoli.is
Sækja skal um störfin á vef Reykjanesbæjar
http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Róbertsdóttir,
skólastjóri í síma 420-4550 eða 849-3822.
Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið
sigurbjorg.robertsdottir@akurskoli.is
Nemendur á listnámsbraut við Fjölbrautaskóla Suðurnesja fengu það verkefni í vetur að vinna tillögur að útilistaverkum við
strandleiðina í Reykjanesbæ undir stjórn kennara síns, Írisar Jóns-
dóttur. Nemendur voru sendir út af örkinni til að kynna sér þau verk
sem fyrir voru í bænum og einnig skoðuðu þau og upplifðu strand-
leiðina.
Valgerður Guðmundsdóttir fram-
kvæmdastjóri menningarsviðs
Reykjanesbæjar kom síðan í heim-
sókn í kennslustund og kynnti það
helsta sem nemendur gætu nýtt
sér við hugmyndavinnu listaverk-
anna og afhenti þeim m.a. kort af
bænum þar sem sjá má öll uppsett
listaverk og staðsetningu þeirra í
bæjarfélaginu og ýmis önnur upp-
lýsingarit. Einnig kynntu listnáms-
nemendur sér þjóðsögur frá svæð-
inu, öfluðu sér upplýsinga af netinu
og nýttu eigin upplifun og reynslu
frá svæðinu.
Nemendur skissuðu hinar ýmsu
hugmyndir og þegar þeir voru
komnir með lokaniðurstöðu
bjuggu þeir til líkön af verk-
unum og upplýsingaspjöld sem
þeir kynntu svo fyrir bæjarstjóra,
menningarráði og skipulagsráði á
sérstökum kynningarfundi í Duus-
húsum.
Að sögn Valgerðar var góður rómur
gerður að vinnu nemendanna og
leitað verður leiða til að koma ein-
hverju þessara verka í framkvæmd.
Verkin verða til sýnis í Duushúsum
á barnahátíð og eru íbúar hvattir til
að koma og skoða þessar skemmti-
legu hugmyndir.
Nemendur í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja á listnámsbraut
sem tóku þátt í verkefninu.
Agatha Mist Atladóttir
Alexander Róbertsson
Daníel Snær Jónasson
Guðrún Sveinsdóttir
Hjörtur Már Atlason
Lovísa Björgvinsdóttir
Magnús Helgi Einarsson
Ylfa Rán Erlendsdóttir
Kolkrabbi við Strandleiðina!
Glæsileg afmælishátíð Björgunar-
sveitarinnar Suðurnes og Slysa-
varnadeildarinnar Dagbjargar
var haldin í húsnæði sveitarinnar
þann 1. maí sl.
Björgunarsveitin fagnaði 20 ára
afmæli og slysavarnadeildin 10 ára
afmæli en veðrið lék við gesti dags-
ins og þótti hátíðin takast með ein-
dæmum vel. Margir komu og sóttu
sveitina heim og kíktu á búnað og
þáðu kaffiveitingar.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í
afmælishátíðinni.
■■ Björgunarsveitin Suðurnes og Slysavarnadeildin Dagbjörg:
Glæsileg afmælishátíð