Víkurfréttir - 08.05.2014, Side 16
fimmtudagurinn 8. maí 2014 • VÍKURFRÉTTIR16
LJÓSANÓTT
Á FRÍMERKI
Í dag 8. maí gefur Pósturinn út
frímerki í seríunni „Bæjarhátíðir“.
Eitt þessara frímerkja er tileinkað
Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Skilafrestur
framboðslista
vegna sveitarstjórnarkosninga í
Sveitarfélaginu Vogum 31. maí 2014
Vakin er athygli á að framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi laugardaginn 10. maí.
Tekið er á móti framboðslistum í Álfagerði á milli kl. 10-12 þennan sama dag.
Leiðbeiningar fyrir þá sem hyggjast bjóða fram lista:
• Framboðslisti skal tilgreina skýrlega fullt nafn frambjóðenda, kennitölu þeirra, stöðu og heimili,
til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir eru í kjöri.
• Gæta skal að reglum um hámarks- og lágmarksfjölda á lista.
• Listi með nægilegum fjölda meðmælenda þarf að fylgja. Tilgreina skal nafn meðmælanda,
kennitölu hans og heimili.
• Tilnefna þarf tvo umboðsmenn.
• Tilgreina ber nafn framboðs.
• Heimilt er að skila inn með listanum beiðni um tiltekinn listabókstaf.
Frekari upplýsingar má finna á:
www.kosning.is/sveitarstjornarkosningar-2014
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga
Þegar rætt er um garða og garðyrkju á Íslandi leitar
hugurinn oft til baka og upp
koma myndir af birki og greni-
trjám sem plantað var til skjóls
fyrir þeim hörðu vindum er svo
títt blása hér á norðuhjara ver-
aldar. Eiginleg garðrækt á Íslandi
á sér í raun mjög stutta sögu og
enn þann dag í dag erum við
stöðugt að læra eitthvað nýtt þar
að lútandi. Ræktun rósa, ávaxta
og ýmissa framandi plantna er
orðið að áhugamáli fjölmargra
garðeigenda, um leið og stöðugt
meiri áhersla er lögð á þá um-
gjörð og skipulag sem í kringum
ræktunina er.
Garðrækt víða um heim hefur í
gegnum áranna rás jafnframt tengst
þeirri heimspeki sem að baki liggur
á hverjum stað. Í Persíu studd-
ust menn við sagnir um hvernig
umhorfs væri að líta í Paradís og
formuðu garðana í þeim anda á
meðan hugmyndir Decartes um
strangt útreiknaðar staðsetningar
og skipulag átti sinn hápunkt í út-
færslu Versala og garðanna þar í
kring. En sennilega hefur engin
heimspeki náð jafn hátt og heim-
speki Zen í hönnun hinna jap-
önsku garða. Um leið og þar er lögð
áhersla á ræktun plantna og notkun
vatns og steina, er jafnframt lögð
áhersla á ræktun hugans í eilífri leit
okkar mannanna að andlegri ró.
Japanskir garðar hafa löngum
verið ímynd friðar og fegurðar. Leit
-aðsent pósturu vf@vf.is
■■ Garðyrkjufélag Suðurnesja:
Japanskir garðar og grjóthleðslur
hugans að jiinu og janginu í okkur
sjálfum þar sem við tökumst á við
andstæða póla í okkur sjálfum.
Ró og friður í kringum hvaðeina
er gert er, hlýtur að teljast eftir-
sóknarvert markmið. Í lífinu er
tekist á við margar áskoranir á degi
hverjum, sem krefjast mismunandi
úrlausna. Hraðinn er mikill og oft
á tíðum gefst ekki tækifæri til að
skapa þann innri frið sem hverjum
manni er nauðsynlegur til að lifa
innihaldsríku lífi og í fullri sátt við
sjálfan sig. Fátt er betra en að eiga
góðan tíma með sjálfum sér í garð-
inum á sólríkum morgni eða seint
að kveldi, þar sem maður íhugar
tilgang tilverunnar.
Sammerkt er með flestum þeirra
hugmynda er hér hafa verið raktar,
að í meginatriðum hefur verið not-
ast við staðbundin efni við formun
garðanna, um leið og gerðar hafa
verið tilraunir með ræktun ýmissa
framandi platna. Svipað er þessu
farið hér á landi þar sem landslag
og jafnvel menning hvers svæðis
og hvers garðs hefur oft á tíðum
verið hinn ráðandi þáttur í útliti
þeirra. Má þar nefna hraunhellur,
fjörusteina og svo framvegis.
Nú í vor eins og undanfarin ár hefur
Garðyrkjufélag Suðunesja staðið
fyrir fyrirlestraröð um ýmislegt
það er tengist görðum og garðrækt.
Fimmtudaginn þann 8. maí nk. er
komið að fyrirlestri Þorkels Gunn-
arssonar skrúðgarðyrkjufræðings
er fjalla mun um japanska garða og
notkun á staðbundnum efnum við
útfærslu garða. Allir áhugasamir
eru hvattir til að mæta. Fundurinn
er haldinn í Húsinu okkar (gamla
K- húsið) við Hringbraut fimmtu-
daginn 8. maí kl. 20.00.
Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir félags-
menn, 1000 kr. fyrir aðra.
Léttar veitingar í boði.
Með sumarkveðju
Hannes Friðriksson