Víkurfréttir - 12.02.2015, Síða 2
2 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Deiliskipulags-
breytingum fyrir
Helguvík frestað
XXBre y ting u á d ei l i sk ipu-
lagi fyrir Helguvík hefur verið
frestað. Þetta er niðurstaða síð-
asta fundar umhverfis- og skipu-
lagsráðs Reykjanesbæjar. Aðilar
frá Verkfræðistofu Suðurnesja,
Mannvit og Verkfræðistofunni
Vatnaskil mættu á fundinn og
kynntu breytingar á deiliskipu-
laginu fyrir ráðinu.
„Mikilvægt er að álit Skipulags-
stofnunar og athugun óháðs
aðila á samlegðarumhverfisá-
hrifum álvers og tveggja kísil-
vera í Helguvík liggi fyrir áður
en breytingar á deiliskipulaginu í
Helguvík verði sett í auglýsingar-
og kynningarferli svo bæjarbúum
gefist tækifæri til þess að kynna
sér niðurstöðurnar og koma at-
hugasemdum á framfæri áður en
umsagnarfrestur deiliskipulagstil-
lögunnar rennur út,“ segir í af-
greiðslu umhverfis- og skipulags-
ráðs Reykjanesbæjar.
Creditinfo hefur gefið út lista yfir framúrskar-andi fyrirtæki, líkt og það hefur gert undan-
farin ár, en þeim hefur fjölgað um 115 frá því í
fyrra og eru nú 577 talsins. Af þessum fjölda eru 25
framúrskarandi fyrirtæki á Suðurnesjum. Framúr-
skarandi fyrirtækjum fjölgar ört á Suðurnesjum og
voru þau 56% fleiri nú en fyrir ári síðan.
Fyrirtækin eru:
Í Reykjanesbæ: HS Veitur hf., Samkaup hf., IceMar
ehf., Kaffitár ehf., Háteigur fiskverkun ehf., Fríhöfnin
ehf., Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Þróunarfélag Kefla-
víkurflugvallar ehf., A. Óskarsson verktaki ehf., Bústoð
ehf., Verkfræðistofa Suðurnesja ehf., Ísfoss ehf., og Út-
gerðarfélag Guðleifs ehf.
Í Grindavík: Bláa lónið hf., Þorbjörn hf., Örninn
GK-203 ehf., Veiðafæraþjónustan ehf., Sílfell ehf. Jens
Valgeir ehf., Optimal á Íslandi, H.H. Smíði ehf. og
BESA ehf.
Í Sandgerði: Fiskverkun Ásbergs ehf., Skinnfiskur ehf.
og K & G fiskverskun.
Í Vogum: Nesbúegg ehf.
Þetta er í fimmta sinn sem Creditinfo gefur út listann.
Þau fyrirtæki sem teljast framúrskarandi uppfylla
ákveðin skilyrði í rekstri, hafa skilað rekstrarhagnaði
þrjú ár í röð, eignir eru metnar á að minnsta kosti 80
milljónir króna og eiginhlutfall er 20% eða hærra.
-fréttir pósturX vf@vf.is
Framúrskarandi 25 fyrir-
tæki á Suðurnesjum
– á nýjum lista Creditinfo. 56% fleiri nú en fyrir ári síðan.
Óskum eftir safnverði í hlutastarf við safnahús
bæjarins og þá aðallega Víkingaheima. Um er að ræða
helgarvinnu og viðkomandi má ekki vera yngri en 20 ára.
Helstu verkefni:
• Móttaka gesta íslenskra og erlendra.
• Yfirseta og kynning á sýningunum.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða annað sambærilegt nám.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
• Vilji og geta til að afla sér kunnáttu tengdum
sýningum í húsinu.
• Jákvætt viðmót, samviskusemi og þjónustulund
er nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar og verður
viðkomandi að geta hafið störf í byrjun mars.
Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar:
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Nánari upplýsingar veitir menningarfulltrúi, Valgerður
Guðmundsdóttir, menningarfulltrui@reykjanesbaer.is.
Í sumar mun hópur 17 ára nemenda eiga
kost á vinnu í allt að sex vikur.
Nemendur 8. bekkjar eiga ekki kost á
vinnu að þessu sinni.
Nemendur vinna ekki á föstudögum
líkt og síðustu sumur.
Frekari upplýsingar og opnun umsókna
verður auglýst síðar.
Eruð þið að æfa flott
öskudagsatriði?
Mætið í Fjörheima frá
kl. 12 – 15 á öskudag og
flytjið það á sviði.
Dómnefnd veitir verðlaun
fyrir bestu atriðin
og myndir teknar af öllum.
Allir velkomnir.
Bestu vinir í bænum í
samstarfi við Leikfélag
Keflavíkur og Gargandi
snilld kynna fjölskyldu-
leikrit byggt á ýmsum
ævintýrum.
Kynningarfundur
mánudaginn 16. febrúar
kl. 17.00 í Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum í Krossmóa.
Leikstjórar: Guðný Kristjánsdóttir og Halla Karen Guð-
jónsdóttir sem veita nánari upplýsingar í s. 869-1006
og 690-3952.
Verkið verður sýnt á listahátíðinni List án landamæra
25. og 26. apríl.
Allir velkomnir.
HELGARSTARF Í
VÍKINGAHEIMUM
BREYTT FYRIRKOMU-
LAG VINNUSKÓLA 2015
ÖSKUDAGUR
„GOT TALENT“
BLUNDAR Í
ÞÉR LEIKARI?
NÝR RAV4 - ÆVINTÝRIÐ BÍÐUR
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/T
O
Y
70
78
7
10
/1
4
Flugmiði til Evrópu fylgir með*
50
0.0
00
Vi
lda
rp
un
kt
a a
fm
æl
isv
inn
ing
ur
ve
rð
ur
dr
eg
inn
úr
hó
pi
þe
irr
a s
em
fá
ný
ja
To
yo
tu
af
he
nt
a í
fe
br
úa
r**
5 ÁRA ÁBYRGÐ
* Gildir ekki með öðrum tilboðum
** Gildir ekki með öðrum tilboðum. Viðkomandi þarf að vera meðlimur í Icelandair Saga Club.
Bíllinn í þessari auglýsingu endurspeglar ekki endilega það verð og þann búnað sem tilgreindur er. Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur.
Nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum.
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbæ
Sími: 420-6600
Uppgötvaðu ævintýrin í lífi þínu á ný með RAV4. Hann er fullkominn fyrir skemmtun með vinum og fjölskyldu og kemur þér þangað
sem þú vilt fara með nóg rými fyrir farþega og farangur. RAV4 er hljóðlátur, öruggur og með framúrskarandi aksturseiginleika.
Nýjum RAV4 fylgir flugmiði til Evrópu með Icelandair og þeir sem fá nýjan RAV4 afhentan í febrúar eiga möguleika á
500 þúsund Vildarpunkta afmælisvinningi í tilefni af 50 árum Toyota á Íslandi.
Verð frá: 5.370.000 kr.
(RAV4 GX Plus, 2.0 l dísil, 6 gíra, 4WD)
Fáðu nánari upplýsingar á www.toyota.is
Útsvarshækkun Reykjanes-bær nú um áramótin sem
nam 3,7% (úr 14,52% í 15,05%)
mun ekki koma til innheimtu hjá
íbúum fyrr en í ágúst árið 2016
við álagninu opinberra gjalda.
Hækkun á fasteignaskatti er þó
komin í gagnið því hún er fram-
kvæmd strax af bæjarfélaginu.
Reykjanesbær fær þó hækkunina
á útsvarinu strax
í kass ann þv í
ríkið sem er inn-
heimtuaðili skilar
ö l l u g j a l d i n u
strax. Ríkið inn-
heimtir meðaltals
útsvarsálagningu
hjá öllum sveitar-
félögum sem er
14,44% en flest
sveitarfélög inn-
heimta hærra gjald og aðeins örfá
lægra. Mismunurinn er gerður upp
við álagningu opinberra gjalda í
ágúst ár hvert. Þá þurfa þeir íbúar
sem búa í sveitarfélagi með hærra
gjald að greiða mismuninn og þeir
íbúar sem búa við lægra gjald fá
greitt til baka.
Dæmi um hækkun á útsvari til
einstaklings sem er með 350 þús.
kr. í mánaðarlaun nemur rúmum
22 þús. króna á ári eða 1855 kr. á
mánuði. Hjón með um 700 þús. kr.
greiða því um 45 þús. kr.
ASÍ sendi út fréttatilkynningu í vik-
unni um álagningu fasteignaskatts
hjá sveitarfélögum. Hækkunin er
mest hjá Reykjanesbæ eða 67%. Fer
úr 0,03 í 0,05%. Aðeins eitt sveitar-
félag af um tuttugu stærstu á land-
inu er með hærri
fasteignaskatt en
það er Ísafjörður
með 0,63%. Þá
er Fjarðabyggð
með 0,48% og
Vestmannaeyjar
0,42%. Ef miðað
er við eign upp
á 25 millj. kr. þá
nemur hækkunin
á ári hjá íbúa í
Reykjanes um 50 þús. kr.
Guðbrandur Einarsson oddviti
Beinnar leiðar sagði í viðtali við
Bylgjuna að skattahækkanir væru
ekki neitt fagnaðarefni. Ekki væri
óalgengt að hækkun útsvars og
fasteignaskatts næmi um 100 þús.
kr. á heimili.
Útsvarshækkunin
greidd í ágúst 2016
K & G ehf. fiskverkun í Sandgerði er á
lista Creditinfo yfir framúrskarandi
fyrirtæki á Suðurnesjum. Tíu af 25
fyrirtækjunum eru í sjávarútvegi.
VF-mynd: pket