Víkurfréttir - 12.02.2015, Blaðsíða 4
4 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Orlofshús VSFK
Páskar 2015
Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út um páskana:
2 hús í Svignaskarði
3 hús í Húsafelli
2 hús í Ölfusborgum
2 hús í Hraunborgum
1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h á Akureyri
Útleigutímabil er frá miðvikudeginum 1. apríl
til miðvikudagsins 8. apríl 2015.
Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins og á heimasíðu vsfk.is
umsóknarfrestur er til kl. 15:00 föstudaginn 27. febrúar 2015.
Úthlutað verður samkvæmt punktaker.
Orlofsstjórn VSFK
-fréttir pósturu vf@vf.is
Keilir tekur í notkun
fullkominn flughermi
Flugakademía Keilis hefur tekið í notkun fullkominn
flughermi að gerðinni Redbird
MCX. Um er að ræða hreyfan-
legan hátækni flughermi sem
býður uppá fjölbreytta notkunar-
möguleika í þjálfun flugnem-
enda skólans. Bætist hann við ört
stækkandi þjálfunarbúnað fyrir
nemendur í einka- og atvinnu-
flugmannsnámi en hátt í hundrað
einstaklingar stunda nú flugnám
hjá Keili. Auk þess hefur skólinn
um að ráða sjö kennsluvélar að
gerðinni Diamond, þar af eina
tveggja hreyfla DA-42 sem er full-
komnasta kennsluflugvél á Ís-
landi.
Fulltrúar Evrópsku Flugöryggis-
stofnunarinnar (EASA) komu til
landsins á dögunum og tóku út
flugherminn, en það þýðir að Flug-
akademía Keilis er nú samþykktur
rekstraraðili flugherma almennt
og að Redbird MCX flughermirinn
er hæfur til þjálfunar í samræmi
við tilskyldar kröfur og reglugerðir
stofnunarinnar.
Flughermir Keilis mun nýtast til
æfinga allt frá grunnstigum þjálf-
unar, svo sem hliðarlendingum, að
fjölhreyfla og fjöláhafna flugvélum.
Í flugherminum umlykur tækja-
búnaður og skjámynd flugmanninn
þannig að hann hefur öll stjórtæki
flugvélar ásamt 180° sjóndeildar-
hring út fyrir flugvélina. Hreyfigeta
tækisins gerir upplifunina raun-
verulegri og þægilegri fyrir bæði
kennara og nemanda. Hægt er að
skipta út stjórn- og mælitækjum
og þannig líkt eftir eins- og tveggja
hreyfla flugflota Flugakademíu
Keilis frá Diamond flugvélafram-
leiðandanum. Þaning er hægt að
líkja eftir allt frá sígildum „klukku-
mælum“ yfir í háþróaða rafræna
samþætta mæla (electronic flight
instrument systems).
Nánari upplýsingar um Flugaka-
demíu Keilis og flugvélakost skól-
ans má nálgast á: www.flugaka-
demia.is
Frá undirritun samnings við EASA. Á myndinni eru Rúnar Árnason (for-
stöðumaður Flugakademíu Keilis), Hjálmar Árnason (framkvæmdastjóri
Keilis), Friðrik Ólafsson (yfirkennari bóklegra greina), Capt. Iain McClelland
og Kim Jones (fulltrúar EASA), Snorri Páll Snorrason (skólastjóri) og Björn
Þverdal Kristjánsson (gæðastjóri).
Úr flughermi Flugakademíu Keilis.
Frá Bristol og beint á sjúkrahús
– Fékk rútuhlera í höfuðið
XuÞað óhapp varð í gærdag að farþegi sem var að
koma frá Bristol til landsins fékk hlera á farangurs-
geymslu rútu í höfuðið. Verið var að ganga frá far-
angri farþegans þegar vindhviða reið yfir og skellti
hleranum á höfuð hans. Hann hlaut talsverða áverka
sem blæddi úr og var fluttur með sjúkrabifreið undir
læknishendur.
Eldur blossaði upp í bifreið
XuEldur blossaði upp í kyrrstæðri bifreið í umdæmi
lögreglunnar á Suðurnesjum á sunnudagskvöld. Eig-
andinn hafði verið að smala hrossum og notaði við
það ljóskastara á bifreiðinni. Hann skildi hana eftir í
gangi meðan á smalamennskunni stóð en þegar hann
var að ganga aftur að henni blossaði eldurinn upp og
hún varð alelda á svipstundu. Málið er í rannsókn.
Þá var tilkynnt um
mikinn reyk í stigahúsi
í umdæminu. Þegar
lögregla kom á vett-
vang reyndist ástæðan
vera sú að sígarettu-
glóð hafði fa l l ið í
pappírshrúgu á gólfi
og kviknað í henni.
Húsráðandi var búinn
að slökkva í hrúgunni
þegar slökkviliðið kom
á vettvang, en reyk-
ræsta þurfti íbúðina.
Með kannabispoka í brók
XuÖkumaður, sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði
um helgina, vegna gruns um fíkniefnaakstur, reyndist
hafa neytt amfetamíns, kannabisefna og metamfe-
tamíns, að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu.
Þá voru ökuréttindi hans útrunnin. Tveir ökumenn til
viðbótar urðu uppvísir að ölvunarakstri og reyndist
annar þeirra hafa neytt fíkniefna að auki.
Áður hafði lögregla handtekið ökumann bifreiðar og
tvo farþega vegna gruns um fíkniefnaakstur og vörslur
fíkniefna. Ökumaðurinn viðurkenndi neyslu og annar
farþeganna var með kannabispoka í brók. Hann fram-
vísaði pokanum á vettvangi og um það bil 20 grömmum
til viðbótar á lögreglustöð.
Loks var einn ökumaður til viðbótar stöðvaður vegna
gruns um fíkniefnaakstur. Sá grunur reyndist á rökum
reistur. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi að hafa fíkni-
efni í fórum sínum og framvísaði þeim hann þeim.
ATV INNA
Vatnsnesvegi 12 // 230 Reykjanesbæ // 420 7011
Þjónar óskast til starfa á Kef restaurant.
Reynsla æskileg. Unnið á vöktum: 2-2-3.
Vantar einnig þjóna á aukalista.
Umsóknir sendist á jenny@kef.is
ATVINNA
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með símsvörun
á skrifstofu
- Sjá um erlenda
reikningagerð
- Tímaskráningar starfsmanna
- Tollskýrslugerð
- Almenn þjónusta við
viðskiptavini og starfsmenn
Menntun og reynsla:
Almenn góð menntun sem
nýtist í starfi og rík reynsla af
skrifstofu og þjónustu-
störfum.
Hæfniskröfur:
- Hæfni í mannlegum
samskiptum
- Skipulagshæfni
- Samviskusemi
- Sveigjanleiki
- Geta unnið undir álagi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Almenn góð tölvukunnátta
(unnið á DK og Navision)
- Íslensku og enskukunnátta
Skrifstofuþjónusta
Icelandic Ný-Fiskur óskar eftir að ráða starfsmann í 50%
starf við skrifstofuþjónustu.
Almennur vinnutími frá kl 12:30-16:30 alla virka daga en
viðkomandi þarf að geta leyst af í 100% stöðu eftir þörfum.
Icelandic Ný-Fiskur er sjávarútvegsfyrirtæki í eigu Icelandic Group
sem sérhæfir sig í framleiðslu hágæða ferskra sjávarafurða til
útflutnings. Hjá Icelandic Ný-Fiski vinna um 100 manns.
Umsóknir skulu sendar á netfangið katrin@nyfiskur.is
fyrir 20. febrúar nk.