Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.02.2015, Side 20

Víkurfréttir - 12.02.2015, Side 20
20 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR „Senn fer vorið á vængjum yfir flóann“, söng hinn s í u n g i R a g n a r B j a r n a s o n í dægurlagamessu ætluð fermingar- b ö r n u m h é r á Akranesi er ritari mætti til leiks. Hann gat þess sjálfur að hann myndi ekki alltaf textana á lög- unum sem hann syngi, en það kæmi ekki að sök, því þá skáldaði hann bara það sem upp á vant- aði og enginn skildi hvort sem er textana sem hann syngi. Í þessum upphafsorðum er fólgin hin einlæga eftirvænting eftir því lífi sem sofnaði á haustmánuðum og við bíðum eftir að kvikni aftur. Í eftirvæntingunni felst minningin um öll hin vorin sem við höfum fengið að lifa. Sum köld, önnur hlý. Sum slæm, önnur góð. Endur- tekningin skilur eftir sig mögu- leika á samanburði. Hver áramót eru upphaf nýrrar hringrásar hér á norðurslóðum, þar sem ferlið er hið sama frá ári til árs. Við sem hér búum erum í raun forréttindar- hópur því eftirvæntingin skapar ákveðna spennu í líf okkar, þar sem aldrei er á vísan að róa. Hver dagur er óræður. Blæbrigðin eru almennt hvetjandi og vekja menn til dáða. Þeir sem yndi hafa af veiðiskap og kvöddu síðasta sumar fremur sneyptir eftir lélega afkomu eru nú fullir eftirvæntingar eftir nýjum ævintýrum. Tekin hafa verið fram áhöld til fluguhnýtinga og mynd- ræn draumsýnin líður um hug- ann um leið og ný fluga er hnýtt. „Vaknar allt af vetrarblundi“. Þeir garðanördar sem gjarnan skríða í moldinni þegar aðrir standa uppréttir hafa ekki bein- línis riðið feitum hesti frá blómgun síðustu tveggja ára hér á suð-vestur horninu. Blómstrandi runnar, þar með talið rósir, fóru sérlega illa út úr sumrinu 2013, þegar rign- ingarkalsinn nánast gerði útaf við þá. Eftirhreyturnar sem tóku að laufgast árið eftir áttu erfitt upp- dráttar, enda ástandið slæmt þegar lagst var til hvílu þá um haustið. Blómgunin tók langan tíma og þá loks hún varð, var nánast komið haust. Á hinn bóginn féllu síðustu blómknúpparnir ekki fyrr en undir jól var, enda nóvember með ein- dæmum hlýr. Það er því spenn- andi að vita hvað gerist nú í sumar þar sem ástand runna var almennt gott er lagst var til hvílu nú á haust- mánuðum Rósin, sú eðla jurt, hefur verið sam- ferða mannkyninu a.m.k. 4700 ár. Allar viltar rósir eiga sér sama for- foreldri væntnalega einhvers staðar í Asíu. Hvati til framræktunar var upphaflega vegna ilmsins, fram- leiðslu rósaolía og snyrtivara. Síðar sáu menn fegurðina í einstakling- um og tóku þá að rækta fram af- burða einstaklinga hvað form og litafegurð varðaði. Rósin prýðir gjarnan dýrustu perlur hinnar trúarlegu málaralistar miðalda, þótt ekki sé vitað til þess að hún hafi vaxið í alingarðinum Eden. Saga rósaræktar á Norðulöndum spannar rúmlega 100 ár, en að- eins tugi ára hér á Íslandi, þar sem veðurskilyrði hafa aðeins á seinni árum talin henta til slíkra ævin- týra. Með framræktun harðgerð- ari kvæma sem flutt hafa verið til landsins hefur árangur rósaræktar orðið sýnilegri. Miklum efnivið hefur verið safnað í gagnagrunn, sem tekur mið af staðháttum hvers landsvæðis. Fjölbreytileiki þeirra tegunda sem vert er að reyna eykst stöðugt, Þó má ætíð búast við aföllum þegar veðurskilyrði eru slík sem við höfum upplifað á síðustu tveimur árum. Að undaförnu hefur m.a. náðst góður árangur af ræktun kanadískra rósa hér á landi. Suðurnesjadeild Garðyrkjufélags Íslands hefur nú vaknað upp af vetrardvala og ætlar að hefja fræðsludagskrá sína á umfjöllun um hvaða rósir þrífast best við ís- lensk veðurskilyrði. Fyrsti fundur félagsins verður haldinn þann 18. febrúar kl. 20 í húsi Rauða Kross Íslands, Smiðju- völ lum 8 Reykjanesbæ (ath. breyttan fundarstað) Fyrirlesari er Vilhjálmur Lúðvíksson formaður Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Ís- lands. Allir eru velkomnir og boðið verður upp á léttar veitingar. Að- gangseyrir er 500 kr. Konráð Lúðvíksson, formaður -aðsent pósturu vf@vf.is ■■ Konráð Lúðvíksson, formaður Rósir við íslenskar aðstæður Það þurfti ekki að bíða lengi eftir hörðum við- b r ö g ð u m t a l s - manna Samtaka atvinnulífsins við k röfugerð s ex- tán aðildarfélaga Starfsgreinasam- bands Íslands í síðasta mánuði vegna komandi kjaraviðræðna. Sama dag og kröfugerðin var birt höfnuðu vinnuveitendur viðræðum og skelltu í lás, enda færi allt á hvolf í þjóðfélaginu yrði gengið að kröfum verkalýðs- hreyfingarinnar. Miðað við af- stöðu vinnuveitenda er ljóst að verkafólk þarf að standa fast á kröfunum og þjappa sér saman um að ná fram réttlátum leiðrétt- ingum. Kröfugerðin og afstaða vinnu- veitenda í Grindavík Lítum aðeins á kröfurnar, sem mótuðust á fundum í verkalýðs- félögunum og á vinnustöðum um land allt með hliðsjón af viðhorfs- könnunum. Á félagssvæði Verka- lýðsfélags Grindavíkur var efnt til opinna funda, þar sem félags- mönnum gafst kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif. Sömu sögu er að segja um önnur verkalýðsfélög sem standa að kröfugerð Starfsgreina- sambandsins. Miðað er við krónu- töluhækkanir á laun og að lægstu taxtar verði 300 þúsund krónur á mánuði innan þriggja ára og að sérstaklega verði horft til gjalds- eyrisskapandi atvinnugreina við launahækkanir. Launatöflur verði endurskoðaðar, desember- og or- lofsuppbætur hækki, lágmarksbó- nus í fiskvinnslu verði tryggður og að ný starfsheiti verði skilgreind í launatöflu. Þessar kröfur setja sem sagt þjóð- félagið lóðrétt á hausinn að mati talsmanna Samtaka atvinnulífs- ins. Reyndar hefur lítið heyrst frá vinnuveitendum á félagssvæði Verkalýðsfélags Grindvíkur. Ég skora þess vegna á þá að láta í sér heyra. Því verður vart trúað að vinnuveitendur í Grindavík séu sömu skoðunar og forysta Samtaka atvinnulífsins. Afleiðingar langs vinnudags Lægstu laun í dag eru um 201 þúsund krónur á mánuði. Grund- vallaratriði hlýtur að vera að fólk lifi af dagvinnulaunum í stað þess að þurfa að stóla á yfirvinnu, auka- vinnu og akkorð til að framfleyta sér og sínum. Auk þess hefur marg- oft verið bent á að langur vinnu- dagur og mikið álag dregur úr framleiðni og eykur samfélagslegan kostnað, til dæmis í heilbrigðis- kerfinu. Meira að segja vinnuveit- endur eru sammála þessu. Engu að síður er afar takmarkað svigrúm til að hækka lægstu launin að mati Samtaka atvinnulífsins, sem kallar eftir þjóðarsátt. Launin nærri þriðjungi lægri á Íslandi Íslendingar miða sig gjarnan við hin Norðurlöndin. ASÍ birti nýlega könnun á launum reglulegra dag- vinnulauna á almennum vinnu- markaði á Norðurlöndunum og þar sést svart á hvítu hversu mikið hallar á almennt verkafólk á Ís- landi. Í ljós kemur að dagvinnu- laun stjórnenda á Íslandi eru í raun 5% hærri en að meðaltali á hinum Norðurlöndunum. Já, segi og skrifa 5% hærri. Dagvinnulaun verkafólks eru hins vegar allt að 30% lægri hér á landi en að meðaltali á hinum Norður- löndunum. Já, segi og skrifa 30% lægri. Aðgerðir á ábyrgð vinnuveitenda Kröfur verkafólks eru sanngjarnar og eðlilegar. Vonandi þarf ekki að grípa til aðgerða. Komi hins vegar til einhverra aðgerða í kjarabarátt- unni er ábyrgðin alfarið Samtaka atvinnulífsins. Verkafólk krefst sanngjarnra kjara og ég er sannfærður um að þorri landsmanna er sammála. Það er nefnilega ekki verkafólk þessa lands sem ógnar stöðugleik- anum. Magnús Már Jakobsson, Formaður Verkalýðs- félags Grindavíkur. ■■ Magnús Már Jakobsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur skrifar: Kröfur verkafólks ógna ekki stöðugleikanum ÞJÓNUSTUFULLTRÚI Í BÍLALEIGU Leitum að öflugum þjónustufulltrúa í bílaleigu Dollar Thrifty í Keflavík. Sæktu um núna á www.brimborg.is Umsóknarfrestur er til 14. febrúar 2015 DOLLAR THRIFTY Í KEFLAVÍK Vantar þig aðstoð með Bókhaldið - Afstemmingar - Launavinnslu Ársreikningsgerð - Skattframtal Gerum föst verðtilboð. Hafðu samband í síma 580-3463 eða á netfangið abg@deloitte.is Hjá Deloitte í Reykjanesbæ starfa átta öflugir sérfræðingar.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.