Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.05.2015, Page 1

Víkurfréttir - 07.05.2015, Page 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA FIMMTUDAGURINN 7. MAÍ 2015 • 18. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR VSFK og VS sameinast í verkfallsaðgerðum: Félagsmenn tilbúnir í verk- fallsslag Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherj- aratkvæðagreiðslu um verkfallsboðun félags- manna Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur og nágrennis og Verslunarmannafélags Suðurnesja. Atkvæða- greiðslan fer fram dagana 12. til 19. maí næst- komandi. Skipulag aðgerða verður með þeim hætti að dagana 28. maí – 5. júní verða tveggja daga verkföll í tilteknum atvinnugreinum á félagssvæði VSFK og VS. Frá og með 6. júní hefst síðan ótímabundið allsherjarverkfall. U.þ.b. 5000 félagsmenn starfa á samnings- svæði þessara félaga. Það er því ljóst að þessar aðgerðir munu hafa veruleg lamandi áhrif á atvinnulíf hér á á Suðurnesjum. „Staðan er afar flókin og erfið. Fyrst og fremst er staðan erfið vegna þess að traust og trúverðug- leika vantar gagnvart ríkisstjórninni. Stjórn- völd hafa svikið launafólk, með samráðsleysi og beinum svikum. Við horfum til þeirrar nýju kjarastefnu sem ríki og sveitarfélög mótuðu þvert á þá kjaramálastefnu sem lögð var á gagn- vart fólki á almennum vinnumarkaði,“ segir Kristján Gunnarsson, formaður VSFK. Kristján bendir á að háskólamenn hjá sveitar- félögum hafi fengið ríflega 9% launahækkun í eins árs samningi, síðan var samið við kennarar á öllum skólastigum um 30% í tveggja og hálfs- árssamningi og lokapunkturinn var svo samn- ingur við lækna um 30% hækkun fyrir hópa sem hafa 1,2 milljónir í meðaltekjur. „Þegar við mætum Samtökum atvinnulífsnis nú við samningaborðið er svigrúmið allt annað, rúm þrjú prósent svona rúmlega þó, annars fer allt á hliðina. Það getur ekki verið að verkafólk eigi eitt að bera ábyrgð á verðbólgu og stöð- ugleika í þjóðfélaginu,“ segir Kristján. „Það eru þung og erfið skref að þurfa að grípa til verkfalla. Tveir mánuðir eru liðnir síðan samn- ingar runnu út og ekkert að gerast sem heitið getur. Félagsmenn hafa gefið það rækilega til kynna að þeir eru tilbúnir í slaginn,“ segir Krist- ján að lokum í samtali við Víkurfréttir. Nauðsynlegt er að tvöfalda Nesvelli í Reykjanesbæ til að til að bregðast við bráðavanda í málefnum sjúkra aldraðra á Suðurnesjum. Reykjanesbær á að taka for- ystu í málefnum aldraðra og hefja strax bar- áttu fyrir fjölgun hjúkrunarrýma í sveitar- félaginu. Þetta var tónninn í bæjarstjórn Reykjanesbæjar á fundi hennar í vikunni. Á fundinum mátti greina kulda í samstarfi sveitarfélaga á Suðurnesjum og það látið falla að samstarfið við hin sveitarfélögin á Suðurnesjum væri Reykjanesbæ dýrt á ýms- um sviðum. Fram kom í máli Baldurs Guðmundssonar, bæjarfulltrúa sjálfstæðismanna, að tilkoma hjúkrunarheimilis Hrafnistu á Nesvöllum hafi í raun tvöfaldað biðlista eftir hjúkrunarrými á Suðurnesjum. Eftir opnun hjúkrunarheimilis- ins hafi umsóknir um heimilisvist tekið stökk vegna þess að aðstaðan þar sé áhugaverður búsetukostur fyrir sjúka aldraða. Baldur sagði að brýnt væri að hefja baráttu strax fyrir öðru eins húsnæði á Nesvöllum þannig að það verði klárt innan 3-4 ára. Stækkun hjúkrunarheimilis að Nesvöllum er eina skynsama lausnin í málefnum sjúkra aldraðra, sagði Kristinn Jakobsson, bæjarfull- trúi framsóknarmanna. Rætt var um það á bæjarstjórnarfundinum að koma þyrfti taumhaldi á stjórn Dvalarheim- ila aldraðra á Suðurnesjum, DS. Í stjórn DS sé lýðræðishalli, stærsta sveitarfélaginu í óhag. Stjórnin samþykkti á aðalfundi sín- um á dögunum tillögu þar sem aðalfundur DS hvatti sveitarfélög á Suðurnesjum til að bregðast við bráðavanda aldraðra og að ná samningum við heilbrigðisráðherra fyrir hönd ríkisvaldsins um endurbyggingu og frekari uppbyggingu hjúkrunarheimilisins Garðvangs þannig að þar verði hægt að reka allt að 30 rýma hjúkrunarheimili. Bent var á það á bæj- arstjórnarfundinum að á aðalfundi DS hafi aðeins 11 af 23 fundarmönnum samþykkt ályktun fundarins, hinir hafi setið hjá. Bæjar- yfirvöld í Reykjanesbæ eru tilbúin að leggjast á árarnar með Garðmönnum að þrýsta á um 15 hjúkrunarrými á Garðvangi, sem myndu nýtast fyrir aldraða sjúka í Garði og Sandgerði. Ályktun DS um 30 rými á Garðvangi hafi því komið Reykjanesbæ nokkuð á óvart. Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar, sagði ályktun DS án allrar ábyrgðar og Böðv- ar Jónsson, bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna, sagði hana úr takti við stefnu Reykjanesbæjar. Ályktunin á eftir að hljóta sérstaka umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi Beinn- ar leiðar, sagði að Reykjanesbær þyrfti fyrst og fremst að hugsa um sitt fólk. Af þeim 57 einstaklingum sem séu í bráðavanda megi áætla að a.m.k. 40 þeirra séu einstaklingar í Reykjanesbæ. „Við eigum að taka hlutverk okkar alvarlega,“ sagði Guðbrandur á fund- inum. Gunnar Þórarinsson, bæjarfulltrúi hjá Frjálsu afli, sagðist ekki vilja hnýta í ná- grannasveitarfélögin en sagði að byggja eigi upp þjónustu fyrir aldraða á Suðurnesjum í Reykjanesbæ og kappkosta að byggja upp á sem hagkvæmastan hátt. D-deild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er ein af birtingarmyndum vandans í málefnum sjúkra aldraðra. Guðný Birna Guðmunds- dóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, upplýsti bæjarstjórn um að D-deild HSS væri hálffull af öldruðum einstaklingum sem komast ekki heim og þyrftu að vera á hjúkrunarheimili. Á sama tíma sé erfitt að leggja inn almenna sjúklinga vegna plássleysis á stofnuninni. n Margir vilja verja ævikvöldinu á Hrafnistu í Reykjanesbæ: Brýnt að hefja baráttu strax fyrir tvöföldun Nesvalla Sjónvarp Víkurfrétta á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30 – og í HD á vf.is þegar þér hentar! SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA Vikulegur sjónvarpsþáttur frá Suðurnesjum Í vikulegum þætti Sjónvarps Víkurfrétta segjum við frá mannlífi, menningu, íþróttum og atvinnulífi á Suðurnesjum. Þátturinn fær áhorf um allt land á ÍNN og á vf.is. Þátturinn er einnig sýndur á rás Kapalvæðingar í Reykjanesbæ. Tilvalið fyrir fyrirtæki og aðila á Suðurnesjum að vekja athygli á sér út fyrir Suðurnesin. Hafið samband við auglýsingadeild VF í síma 421-0001 eða leitið tilboða hjá fusi@vf.is Út að leika Golf í Grindavík Matorka í samstarf við Keili Hestamannafélagið Máni Úti að leika í Innri Njarðvík bls 10 Stjarnan í nýjasta myndbandi Of Monsters and Men

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.