Víkurfréttir - 07.05.2015, Qupperneq 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
FIMMTUDAGURINN 7. MAÍ 2015 • 18. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR
VSFK og VS sameinast
í verkfallsaðgerðum:
Félagsmenn
tilbúnir í verk-
fallsslag
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherj-
aratkvæðagreiðslu um
verkfallsboðun félags-
manna Verkalýðs- og
sjómannafélags Kefla-
víkur og nágrennis og
Verslunarmannafélags Suðurnesja. Atkvæða-
greiðslan fer fram dagana 12. til 19. maí næst-
komandi. Skipulag aðgerða verður með þeim
hætti að dagana 28. maí – 5. júní verða tveggja
daga verkföll í tilteknum atvinnugreinum á
félagssvæði VSFK og VS. Frá og með 6. júní
hefst síðan ótímabundið allsherjarverkfall.
U.þ.b. 5000 félagsmenn starfa á samnings-
svæði þessara félaga. Það er því ljóst að þessar
aðgerðir munu hafa veruleg lamandi áhrif á
atvinnulíf hér á á Suðurnesjum.
„Staðan er afar flókin og erfið. Fyrst og fremst er
staðan erfið vegna þess að traust og trúverðug-
leika vantar gagnvart ríkisstjórninni. Stjórn-
völd hafa svikið launafólk, með samráðsleysi
og beinum svikum. Við horfum til þeirrar nýju
kjarastefnu sem ríki og sveitarfélög mótuðu
þvert á þá kjaramálastefnu sem lögð var á gagn-
vart fólki á almennum vinnumarkaði,“ segir
Kristján Gunnarsson, formaður VSFK.
Kristján bendir á að háskólamenn hjá sveitar-
félögum hafi fengið ríflega 9% launahækkun í
eins árs samningi, síðan var samið við kennarar
á öllum skólastigum um 30% í tveggja og hálfs-
árssamningi og lokapunkturinn var svo samn-
ingur við lækna um 30% hækkun fyrir hópa
sem hafa 1,2 milljónir í meðaltekjur.
„Þegar við mætum Samtökum atvinnulífsnis
nú við samningaborðið er svigrúmið allt annað,
rúm þrjú prósent svona rúmlega þó, annars fer
allt á hliðina. Það getur ekki verið að verkafólk
eigi eitt að bera ábyrgð á verðbólgu og stöð-
ugleika í þjóðfélaginu,“ segir Kristján.
„Það eru þung og erfið skref að þurfa að grípa til
verkfalla. Tveir mánuðir eru liðnir síðan samn-
ingar runnu út og ekkert að gerast sem heitið
getur. Félagsmenn hafa gefið það rækilega til
kynna að þeir eru tilbúnir í slaginn,“ segir Krist-
ján að lokum í samtali við Víkurfréttir.
Nauðsynlegt er að tvöfalda Nesvelli í Reykjanesbæ til að til að bregðast við
bráðavanda í málefnum sjúkra aldraðra á
Suðurnesjum. Reykjanesbær á að taka for-
ystu í málefnum aldraðra og hefja strax bar-
áttu fyrir fjölgun hjúkrunarrýma í sveitar-
félaginu. Þetta var tónninn í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar á fundi hennar í vikunni.
Á fundinum mátti greina kulda í samstarfi
sveitarfélaga á Suðurnesjum og það látið
falla að samstarfið við hin sveitarfélögin á
Suðurnesjum væri Reykjanesbæ dýrt á ýms-
um sviðum.
Fram kom í máli Baldurs Guðmundssonar,
bæjarfulltrúa sjálfstæðismanna, að tilkoma
hjúkrunarheimilis Hrafnistu á Nesvöllum hafi
í raun tvöfaldað biðlista eftir hjúkrunarrými á
Suðurnesjum. Eftir opnun hjúkrunarheimilis-
ins hafi umsóknir um heimilisvist tekið stökk
vegna þess að aðstaðan þar sé áhugaverður
búsetukostur fyrir sjúka aldraða. Baldur sagði
að brýnt væri að hefja baráttu strax fyrir öðru
eins húsnæði á Nesvöllum þannig að það verði
klárt innan 3-4 ára.
Stækkun hjúkrunarheimilis að Nesvöllum
er eina skynsama lausnin í málefnum sjúkra
aldraðra, sagði Kristinn Jakobsson, bæjarfull-
trúi framsóknarmanna.
Rætt var um það á bæjarstjórnarfundinum að
koma þyrfti taumhaldi á stjórn Dvalarheim-
ila aldraðra á Suðurnesjum, DS. Í stjórn
DS sé lýðræðishalli, stærsta sveitarfélaginu
í óhag. Stjórnin samþykkti á aðalfundi sín-
um á dögunum tillögu þar sem aðalfundur
DS hvatti sveitarfélög á Suðurnesjum til að
bregðast við bráðavanda aldraðra og að ná
samningum við heilbrigðisráðherra fyrir hönd
ríkisvaldsins um endurbyggingu og frekari
uppbyggingu hjúkrunarheimilisins Garðvangs
þannig að þar verði hægt að reka allt að 30
rýma hjúkrunarheimili. Bent var á það á bæj-
arstjórnarfundinum að á aðalfundi DS hafi
aðeins 11 af 23 fundarmönnum samþykkt
ályktun fundarins, hinir hafi setið hjá. Bæjar-
yfirvöld í Reykjanesbæ eru tilbúin að leggjast
á árarnar með Garðmönnum að þrýsta á um
15 hjúkrunarrými á Garðvangi, sem myndu
nýtast fyrir aldraða sjúka í Garði og Sandgerði.
Ályktun DS um 30 rými á Garðvangi hafi því
komið Reykjanesbæ nokkuð á óvart.
Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar,
sagði ályktun DS án allrar ábyrgðar og Böðv-
ar Jónsson, bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna,
sagði hana úr takti við stefnu Reykjanesbæjar.
Ályktunin á eftir að hljóta sérstaka umræðu og
afgreiðslu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.
Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi Beinn-
ar leiðar, sagði að Reykjanesbær þyrfti fyrst
og fremst að hugsa um sitt fólk. Af þeim 57
einstaklingum sem séu í bráðavanda megi
áætla að a.m.k. 40 þeirra séu einstaklingar í
Reykjanesbæ. „Við eigum að taka hlutverk
okkar alvarlega,“ sagði Guðbrandur á fund-
inum. Gunnar Þórarinsson, bæjarfulltrúi
hjá Frjálsu afli, sagðist ekki vilja hnýta í ná-
grannasveitarfélögin en sagði að byggja eigi
upp þjónustu fyrir aldraða á Suðurnesjum í
Reykjanesbæ og kappkosta að byggja upp á
sem hagkvæmastan hátt.
D-deild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er
ein af birtingarmyndum vandans í málefnum
sjúkra aldraðra. Guðný Birna Guðmunds-
dóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, upplýsti
bæjarstjórn um að D-deild HSS væri hálffull
af öldruðum einstaklingum sem komast ekki
heim og þyrftu að vera á hjúkrunarheimili.
Á sama tíma sé erfitt að leggja inn almenna
sjúklinga vegna plássleysis á stofnuninni.
n Margir vilja verja ævikvöldinu á Hrafnistu í Reykjanesbæ:
Brýnt að hefja baráttu strax
fyrir tvöföldun Nesvalla
Sjónvarp Víkurfrétta
á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30
– og í HD á vf.is þegar þér hentar!
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA
Vikulegur sjónvarpsþáttur frá Suðurnesjum
Í vikulegum þætti Sjónvarps Víkurfrétta segjum við frá mannlífi,
menningu, íþróttum og atvinnulífi á Suðurnesjum.
Þátturinn fær áhorf um allt land á ÍNN og á vf.is.
Þátturinn er einnig sýndur á rás Kapalvæðingar í Reykjanesbæ.
Tilvalið fyrir fyrirtæki og aðila á Suðurnesjum
að vekja athygli á sér út fyrir Suðurnesin.
Hafið samband við auglýsingadeild VF í síma 421-0001
eða leitið tilboða hjá fusi@vf.is
Út að leika
Golf í Grindavík
Matorka í samstarf við Keili
Hestamannafélagið Máni
Úti að leika í Innri Njarðvík
bls 10
Stjarnan í nýjasta
myndbandi
Of Monsters and Men