Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.05.2015, Page 8

Víkurfréttir - 07.05.2015, Page 8
8 fimmtudagur 7. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR Allir velkomnir. Sjá heildardagskrá og nánari lýsingar á barnahatid.is M 74 . S tu di o – 20 15 Fimmtudagur 7. maí – Setning Listahátíðar barna í Duushúsum: „Undraheimur bókarinnar,“ leikskólinn „Listaverk í leiðinni,“ grunnskólinn „MYGLA,“ Fjölbrautaskóli Suðurnesja Föstudagur 8. maí Hæfileikahátíð grunnskólanna í Stapa Listahátíð barna og farandsýningin „Þetta vilja börnin sjá“ í Duushúsum Laugardagur 9. maí — Aðal hátíðarsvæðið er við Duushús, Grófinni Fjölskylduratleikur KFUM og K, Hátúni 36, veitingar í lokin Landnámsdýragarðurinn opnar fyrir sumarið Einföld bókagerð á Bókasafninu – skemmtileg fjölskyldusmiðja Komdu og skoðaðu alls kyns fiska á smábátahöfninni Gunni og Ævar vísindamaður lesa fyrir börnin og bregða á leik í Frumleikhúsinu Sprellfjörug barnaspurningakeppni á Kaffi Duus. Nánar barnahatid.is Líttu við í Snjóhúsinu. Leikfangamarkaður barnanna, lifandi tónlist o.fl. Litlir búðarmenn og -konur. Verið með í leikfangamarkaði barnanna. Sjá barnahatid.is Andlitsmálning og blöðrudýr í Bátasafninu í Duushúsum Listahátíð barna og farandsýningin „Þetta vilja börnin sjá“ í Duushúsum Tívolítæki á Keflavíkurtúni Reiðhjólaþrautir – mættu á hjólinu þínu og kepptu í þrautabrautinni Lögreglan með reiðhjólaskoðun Hvernig líta skrímsli út? Komdu og búðu til þitt eigið í Svarta pakkhúsinu Komdu með bangsann þinn og hannaðu á hann föt. Kaffi Duus Töfrandi ljósmyndasmiðja, Grófinni 2 (við hliðina á Kaffi Duus) Grillaðu sykurpúða með skátunum Júdódeildin sýnir glímur og grunntök í judo og Brazilian Jiu Jitzu við Duushús Viltu prófa golf? Snag golf á Keflavíkurtúni Krafta- og aflraunakeppni fyrir kröftuga krakka með krafta í kögglum. Hestateyming á horni Vesturgötu og Vesturbrautar Komdu út að leika. Gömlu góðu útileikirnir á Keflavíkurtúni Skessan býður í lummur í Skessuhelli Fjóla tröllastelpa gefur blöðrur í Skessuhelli Karamelluregn við Duushús Sunnudagur 10. maí Fjölskyldumessa í Keflavíkurkirkju. Lög flutt úr barnasöngleiknum „Líf og friður“ Listahátíð barna og farandsýningin „Þetta vilja börnin sjá“ í Duushúsum Barnaóperan Hans og Gréta í Hljómahöll, Takið með púða til að sitja á Pílufélagið býður börnum í heimsókn, Hrannargötu 6 Frítt í Sambíó. Svampur Sveinsson og Mjallhvít Og margt, margt fleira. Sjá heildardagskrá og nánar á barnahatid.is Allir velkomnir Kl. 10:30 Kl. 12:30 Kl. 16:00 Kl. 10:00-12:00 Kl. 12:00-17:00 Kl. 10:00-12:00 Kl. 11:00-17:00 Kl. 11:00-13:00 Kl. 12:00-16:00 Kl. 13:00-14:00 Kl. 15:00-16:00 Kl. 13:00-16:00 Kl. 13:00-16:00 Kl. 13:00-16:00 Kl. 13:00-17:00 Kl. 13:00-17:00 Kl. 13:00-16:00 Kl. 13:00-15:00 Kl. 13:00-16:00 Kl. 13:00-16:00 Kl. 13:00-16:00 Kl. 13:00-16:00 Kl. 14:00 Kl. 13:00-16:00 Kl. 14:00-16:00 Kl. 14:00-16:00 Kl. 14:00-16:00 Kl. 14:00-16:00 Kl. 14:00-15:00 Kl. 16:00 Kl. 11:00 Kl. 13:00-17:00 Kl. 13:00-14:00 Kl. 14:00-17:00 Kl. 13:00 Svokallað vinaliðaverkefni hófst fyrir skömmu í Grunn- skólanum í Grindavík. Verkefnið gengur út á að hvetja nemendur til meiri þátttöku í leikjum og af- þreyingu í frímínútum og skapa betri skólaanda. Vinaliðaverkefnið er norskt að uppruna, það hefur á fáum árum náð mikilli útbreiðslu og er nú starfrækt í yfir 1000 skólum í Nor- egi. Aðal markmiðið með þessu verkefni er að bjóða öllum nem- endum skólans fjölbreyttara úrval afþreyingar í frímínútum, þannig að nemendur skólans finni eitt- hvað við sitt hæfi. Markmiðið er að allir nemendur skólans hlakki til að mæta í skólann sinn, alla daga. 50 nemendur í 3.-6. bekk sem valdir voru með kosningu í bekknum og hafa farið á námskeið hjá Vinaliðum gegna hlutverki vinaliða í Grunnskóla Grindavíkur en hlutverk þeirra er að setja upp, taka þátt í og aðstoða við afþrey- ingu í frímínútum. Að sýna yngri nemendum sérstaka athygli sem og þeim sem eru einir í frímínút- unum. Að láta vita af því ef vinalið- inn telur að nemendum í skólanum leiðist, séu einmana eða ef hann verður vitni að einelti og útilokun eða öðru sem getur valdið vanlíðan nemenda. Skólalóðin og frímínúturnar eru samkvæmt eineltisrannsóknum einn helsti vettvangurinn fyrir einelti. Vinaliðaverkefnið er ekki eineltisáætlun heldur stuðnings- verkefni við eineltisáætlun skólans og er hugmyndafræðin að þar sem boðið er upp á skipulagt starf, fái gerendur eineltis aðra hluti til að hugsa um. Aðgerðarleysi er nefni- lega oft rótin að slæmum hlutum. Mikilvægt er fyrir börn og ungl- inga að fá fjölbreytta hreyfingu og skemmtun og er það nauðsynlegur hluti af þroska þeirra, enda hafa rannsóknir sýnt að það sé sam- hengi milli hreyfingar og náms- getu. Við viljum því að framboð af hverskonar hreyfileikjum og ann- arri afþreyingu í frímínútunum sé fjölbreytt og skipulagt þannig að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Vinaliðaverkefnið er okkar leið til að mæta þessu, en í verk- efninu eru settir upp leikir og af- þreying af nemendum og á þeirra forsendum. Nemendur skólans hafa svo að sjálfsögðu val um hvort og þá hvaða leikjum þeir taka þátt í. -mannlíf pósturu vf@vf.is Vinaliðar í Grunnskóla Grindavíkur: Aukin þátttaka í leikjum og betri skólaandi „Ég byrjaði sem unglingur að fara á námskeið í málun og hef farið á námskeið í ýmsum listgreinum sl. áratugi. Það sem stendur upp úr er vatnslitamálun, þæfing og pappa- massi. Árið 1999 by r j a ð i é g a ð selja mína list. Ég sel vatnslita- myndir, þæfð sjöl úr ull og silki, hálsskraut úr ull og Flugdýr úr pappamassa,“ segir Hildur Harðar- dóttir, ein af fyrrverandi Gallery-8 listamönnum. Hildur tekur þátt í sýningunni Handverk og hönnun í Ráðhúsinu í Reykjavík 14. - 18. maí. Til sýnis í Ráðhúsinu verða flugdýr sem búin eru til úr pappír, vír, skrúfum, tölum, rennilásum og öllu mögulegu sem til fellur til að skapa dýrin. Hildur er fædd í Reykjavík en hef búið í Keflavík í 31 ár. Hún starfar sem leikskóla- kennari á Gimli. Árið 2014 tók hún þátt í Hand- verkshátíðinni á Hrafnagili og þar voru henni veitt hvatningarverð- laun fyrir flugdýrin. Hönnuðurinn Hildur Harðardóttir tekur þátt í Handverk og hönnun: Sýnir flugdýr í Ráðhúsinu „Ég hef frá unga aldri lagt rækt við söfnun og varðveislu heimilda og skráningu þeirra, einkum á formi myndmiðils. Efnið hef ég lagt fram öðrum til skoðunar, fróð- leiks og ánægju án endurgjalds. Þegar eru komnar minningar frá aðilum sem ekki eru lengur með okkur hér,“ segir Guðmundur Magnússon, kvikmyndagerða- maður og áhugamaður um sögu og varðveislu menningarminja á Suðurnesjum. Hann hefur hrundið af stað átaki í varðveislu á söguheimildum undir nafninu 'Áður en fífan fýkur'. Sérstaðan er nálægð við sjó Garðurinn og Suðurnes eiga sér sína sögu á sama hátt og aðrir landshlutar. Sérstaðan þar er ná- lægð við sjó og nytjar hans. Að sögn Guðmundar hefur þó lengst af verið hófsemi í söfnun og skrán- ingu sögu og sagna af mannlífi. „Það felast mikil verðmæti í þeirri vinnu að grafa upp gamalt efni um Suðurnesin, halda því til haga og festa á filmu það sem gerist á líð- andi stund. Slíkar upplýsingar eru og verða gulls ígildi þegar fram líða stundir. En kvikmyndir og hljóð- upptökur hafa ekki ávallt notið fullrar viðurkenningar sem hluti af menningararfi okkar. Það viðhorf er þó aðeins að breytast.“ Jafnframt segist Guðmundur þess fullviss að nauðsynlegt sé að festa sem mest á filmu og varðveita það sem til er, eins vel og hægt er. „Það er líka nær ómögulegt að fá fjár- magn í heimildasöfnun af þessu tagi hérna á Suðurnesjum og ekki síður erfitt að fá fjármagn í vinnslu og skráningu á efninu. Hvað er þá til bragðs að taka? Þetta gengur hægt og það er mikil vinna eftir og nauðsynlegt að ná frásögnum þessa fólks.“ Guðmundur hefur sett sér þessi markmið fyrir næstu fjögur ár: -Ná sem flestum frásögnum Suður- nesjamanna á aldrinum 70 ára og eldri, af atvinnu, félags- og menn- ingarlífi á Suðurnesjum frá árunum 1930-1980. -Leita uppi gamlar hljóð- og kvik- myndaupptökur frá Suðurnesjum, skrásetja og setja á aðgengilegt form. -Halda stóra sýningu á safnahelgi Suðurnesja árið 2019 á því efni sem safnast hefur, á öllum söfnum á Suðurnesjum. -Setja á laggirnar kvikmynda- og hljóðbókasafn Suðurnesja. Þeir sem hafa áhuga á því að leggja þessu verkefni lið með einhverjum hætti, geta haft samband við Guð- mund í netfangið steinbogi@sim- net.is. Þið sem hafið áhuga á að styrkja þessa vinnu hafi vinsamleg- ast samband í síma 866-0448 eða í fyrrgreint netfang. Einnig er hægt er að leggja framlög til verkefnis- ins inn á reikning 0157-05-400730, kennitala: 700807-2580. Átaksverkefninu 'Áður en fífan fýkur' hrundið af stað: Vill varðveita söguheim- ildir af Suðurnesjum Sandgerðishöfn Starfsmaður í fullt starf til sumarafleysinga við Sandgerðishöfn í allt að fjóra mánuði. Umsóknarfrestur er til og með þriðjudeginum 12. maí 2015. Þjónustumiðstöð (áhaldahús) Starfsmaður í fullt starf til sumarafleysinga í þjónustumiðstöð Sandgerðis- bæjar frá 1. júní – 31. ágúst. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 18. maí 2015. Íþróttamiðstöð Sandgerðis 100% staða við íþróttamiðstöð Sandgerðis. Í starfinu felst m.a. klefavarsla í karlaklefum. Um er að ræða framtíðarstarf. 25% staða til sumarafleysinga við Íþróttamiðstöð Sandgerðis frá 1. júní – 14. júlí. Í starfinu felst m.a. klefavarsla í karlaklefum. 100% staða til sumarafleysinga við Íþróttamiðstöð Sandgerðis frá 15. júlí – 25. ágúst. Í starfinu felst m.a. klefavarsla í karlaklefum. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 18. maí 2015. Sumarvinna 17 – 20 ára unglinga Sandgerðisbær býður ungmennum á aldrinum 17 til 20 ára vinnu í sumar frá 1. júní. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 18. maí 2015. ATVINNA Laus störf hjá Sandgerðisbæ Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar hjá Sandgerðisbæ: Nánari upplýsingar um störfin eru á heimasíðu Sandgerðisbæjar, www.sandgerdi.is og í síma 420-7500.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.