Víkurfréttir - 07.05.2015, Síða 10
10 fimmtudagur 7. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
„Ég var nýorðinn 14 ára gamall
þegar ég var sendur í fóstur til
Karenar og Villa árið 2003. Upp-
runalega átti ég bara að vera í þrjá
mánuði en ég endaði með að vera
hjá þeim í tvö ár. Ég var fyrsta
fósturbarnið sem kom til þeirra,“
segir Atli Freyr og bætir við að
hann hafi lært mjög mikið á þeim
tíma. „Það er alveg ótrúlegt hvað
heilbrigt og stöðugt umhverfi er
mikilvægt á unglingsárunum.“
Upplifði heilbrigt heimilislíf
Atli Freyr rifjar um tímann í Akur-
húsum: „Mér líkaði rosalega vel
hjá þeim. Ég fékk mikinn áhuga
á hestamennsku og við fórum í
marga góða túra. Svo spilaði ég fót-
bolta á kvöldin með börnum þeirra
Villa og Karenar og fleiri Garð-
búum. Á sumrin fékk ég að vinna
í fiski og lærði að þéna mínar eigin
tekjur. Mikilvægast var þó að ég
fékk að upplifa heilbrigt heimilislíf.
Akurhúsa-fjölskyldan á svo stóran
part í mér. Ég er þeim alveg afskap-
lega þakklátur.“ Aðspurður segist
Atli Freyr vera miðbæjarrotta í húð
og hár, fæddur í Reykjavík. „Það
voru því töluverð viðbrigði fyrir
mig að heyra ekki lengur í bílum,
heldur bara að heyra ekki lengur
í bílum heldur bara i öldunum og
vindinum í umhverfi Akurhúsa.“
Með eina ferðatösku og stóra
drauma
Árið 2011 fannst Atla Frey Ísland
vera orðið of lítið fyrir sig. „Mig
langaði að upplifa heiminn
og þá var ég í sambandi með fær-
eyskum listamanni sem var bú-
settur i Danmörku. Einn daginn
keypti ég mér stakan miða til
Kaupmannahafnar. Flúði Klak-
ann með eina ferðatösku og stóra
drauma.“ Þar starfar Atli Freyr fyrst
og fremst sem förðunarfræðingur
og listamaður. Hann tekur t.a.m.
að sér förðunarverkefni fyrir alls
kyns myndatökur, kvikmyndir,
auglýsingar og önnur sérstök verk-
efni. „Þrisvar í viku vinn ég hjá
M•A•C cosmetics og svo er ég hlut
af tískuverkefni sem heitir Unfair-
fashion (www.unfairfashion.dk) og
í tengslum við Copenhagen Fas-
hion Week.“
Logandi Facebook síða eftir
að myndbandið kom út
Það besta við vinnuna sína segir
Atli Freyr vera tækifærin til að fá að
ferðast um heiminn,
vera skapandi og hafa eldmóðinn
fyrir því sem hann er að gera. „Og
besta af öllu - að gera það sem þú
elskar.“ Spurður um hvernig það
hafi komið til að hann var beðinn
um að leika í myndbandi Of Mon-
sters and Men segist Atli Freyr hafa
verið staddur í Kína. „Ég var að
vinna að myndaþátt þegar Nanna
Bryndís söngkona hringdi i mig
og spurði hvort ég væri ekki til í að
leika i nýja myndbandinu þeirra.
Auðvitað stökk á það, flaug til
Kaupmannahafnar frá Kína og var
kominn þangað 12 tímum áður en
ég fór svo áfram til Íslands.“ Þar var
förinni heitið beinustu leið i stúdíó,
Atli Freyr setti sig í karakter og
svo beint í tökur. „Þetta var raka-
lega skemmtileg upplifun og ég hef
fengið mikil og góð viðbrögð eftir
að myndbandið kom út. Facebook-
síðan mín logar.“
Giftir sig í lok ársins
Spurður um framtíðarplön segist
Atli Freyr ætla að vera hamingju-
samur, eignast fjölskyldu og gera
allt sem hann vill. Hann mun flytja
til Bandaríkjanna í byrjun næsta
árs. „Sjáum hversu langt ég kemst i
Los Angeles. Já, svo er ég að fara að
giftast unnusta mínum og sjólið-
anum Raul Bolivar í lok þessa árs.
Ég bara brosi alltaf og vinn mikið
og hugsa jákvætt. Þá bara koma
hlutirnir til mín,“ segir Atli Freyr
kátur að endingu.
-viðtal pósturu olgabjort@vf.is
Stjarnan í nýjasta myndbandi Of Monsters and Men bjó um tíma í Akurhúsum í Garði:
Fyrsta fósturbarn
Villa og Karenar
Atli Freyr Demantur hefur að undanförnu vakið mikla athygli fyrir framgöngu sína í nýjasta myndbandi
Of Monsters and Men, I Of the Storm. Hann bjó um tíma hér á Suðurnesjum, nánar tiltekið í Akurhúsum hjá
Karen Jónsdóttur og Vilhjálmi Einarssyni, sem voru til umfjöllunar í síðasta tölublaði Víkurfrétta. Atli Freyr
var fyrsta fósturbarnið sem þau tóku að sér. Í dag er hann búsettur í Danmörku þar sem hann vinnur sem
förðunarfræðingur og listamaður. Hann er að fara að gifta sig í lok ársins.
Mikilvægast
var þó að ég
fékk að upplifa heil-
brigt heimilislíf
-aðsent pósturu vf@vf.is
Til sóknarbarna
Keflavíkurkirkju!
Á morgun, föstudaginn 8. maí, er prestkosning í Keflavíkur-
kirkju. Að öllu jöfnu væri ekki við
hæfi að sóknarnefndarformaður
skipti sér af prest-
kosningu, en þar
sem aðeins er einn
í framboði, sé ég
ekki að ég brjóti
siðareglur með
því að leggja orð í
belg.
Þar sem séra Erla
er ein í kjöri og
þarf aðeins meirihluta greiddra at-
kvæða til að hljóta embættið má
ætla að fólk sjái ekki tilganginn í
því að mæta á kjörstað og kjósa.
En það er mjög mikilvægt fyrir
Erlu að fá góðan stuðning í starfið.
Það væri hvatning fyrir hana til að
vinna vel og það væri þakklætis-
vottur til hennar fyrir það framúr-
skarandi starf sem hún hefur unnið
fyrir söfnuðinn þann tíma sem
hún hefur sinnt æskulýðsmálum
safnaðarins, fyrst sem æskulýðs-
fulltrúi og síðan sem æskulýðs-
prestur, eftir að hún hlaut vígslu.
Það er líka mikilvægt fyrir kirkjuna
að kosningin verði góð því það
sýnir styrk samfélagsins og hug
þess til kirkjunnar og þess starfs
sem þar er verið að vinna.
Séra Erlu prýða margir góðir kostir.
Hún er falleg og glaðlynd kona,
sem er samviskusöm og vandar
sig í hverju verki. Hún hefur góða
skipulagshæfileika og er dugleg
og framtakssöm, hugmyndarík og
hefur góða nærveru. Hún er góður
hlustandi og tekur öllum jafnt. Hún
er góð eiginkona og hamingjusöm
móðir þriggja barna, Keflvíkingur,
sem vill vinna bænum sínum allt til
blessunar og til viðbótar við þetta
allt á hún einlæga og fallega trú.
Komið og kjósið og sýnið vilja
ykkar í verki til áframhaldandi
kröftugs og uppbyggilegs safnaðar-
starfs í Keflavíkurkirkju.
Kosið verður í Oddfellowhúsinu,
Grófinni 6 frá kl. 13 - 18.
Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir,
formaður sóknarnefndar.
Bækur eru flestar listaverk á sinn hátt. Gamlar bækur á
Bókasafni Reykjanesbæjar hafa
nú öðlast nýtt líf sem listaverk. Á
safninu hefur verið opnuð sýn-
ing sem nefnist „Endurbókun“.
Á sýningunni eru verk sem eru
unnin úr gömlum bókum sem
hafa lokið sínu fyrra hlutverki.
Hópur tíu listakvenna sem kalla
sig ARKIR standa að bókverka-
gerðinni, en þær sinna öllu jafna
fjölbreyttri listsköpn á sviði
málara- og grafíklístar, texíl- og
ritlistar, myndlýsinga og hönn-
unar, en eiga það sameiginlegt að
hrífast af bókverkum.
Listakonurnar sem eiga verk
á sýningunni eru Anna Snædís
Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp
Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir,
Helga Pálína Brynjólfsdóttir,
Ingiríður Óðinsdóttir, Kristín
Þóra Guðbjartsdóttir, Sigur-
borg Stefánsdóttir og Svanborg
Matthíasdóttir.
Meðfylgjandi myndir tók Hilmar
Bragi við opnun sýningarinnar.
Athyglisverð listsýning í Bókasafni Reykjanesbæjar:
Bækur öðlast nýtt
líf sem listaverk
Atli Freyr og Raul Bolivar, verðandi eiginmaður hans.