Víkurfréttir - 14.04.2016, Blaðsíða 6
6 fimmtudagur 14. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is
Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta,
vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent-
aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Á sumardaginn fyrsta, 21. apríl næst-
komandi klukkan 20:00, fara fram
í fyrsta sinn einstakir tónleikar í
Hljómahöll í Reykjanesbæ sem bera
nafnið „Hljómlist án landamæra“.
Eins og nafnið gefur til kynna eru
um að ræða viðburð í tengslum við
listahátíðina „List án landamæra“ sem
notið hefur verðskuldaða athygli á
landsvísu á undanförnum árum. Sér-
kenni og jafnframt helsti styrkleiki
hátíðarinnar er að þar gefst öllum sem
áhuga hafa, tækifæri á að koma list-
sköpun sinni á framfæri og fjölbreyti-
leikanum í mannlífinu er fagnað.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni
sveitarfélaganna á Suðurnesjum,
Miðstöðvar símenntunar á Suður-
nesjum og Listar án landamæra. Á
tónleikunum leiða saman hesta sína
fatlaðir og ófatlaðir tónlistarmenn frá
Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu
og Akranesi.
Fram koma Salka Sól, Valdimar, Frið-
rik Dór, Már Gunnarsson, feðgarnir
Sigurður Guðmundsson, Guðmundur
Óskar Guðmundsson og Guðmundur
Sigurðsson, Davíð Már Guðmunds-
son, Margeir Steinar Karlsson, Trú-
badoradúettinn Heiður, Thomas
Albertsson, Sönghópur Suðurnesja
undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar,
Ragnar Vilberg, Lára Ingimundar-
dóttir og Sönghópurinn Geimsteinar
ásamt fleirum. Kynnar á tónleikunum
verða hinir óviðjafnanlegu Auddi og
Steindi.
Aðgangur er ókeypis og vonast að-
standendur til þess að sem flestir sjái
sér fært að mæta og berja okkar bestu
listamenn augum. Verkefnið er styrkt
af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.
Nánari upplýsingar er að finna vef
Reykjanesbæjar.
Nýsköpunarfyrirtækið GeoSilica á
Ásbrú og frumkvöðullinn og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, Fida Abu
Libdeh, eru tilnefnd til verðlaunanna
Nordic Startup Awards. GeoSilica er
tilnefnt í flokknum „Best bootstrap-
ped“ og Fida í flokknum „Founder of
the Year“.
Þá er ekki allt upptalið því Fida er
einnig tilnefnd til Stjórnunarverð-
launa Stjórnvísis árið 2016. Yfir sextíu
stjórnendur hafa verið tilnefndir og
verða þrír útnefndir.
Víkurfréttir völdu Fidu „Mann ársins
á Suðurnesjum 2014“. Hún flutti 16
ára frá Palestínu til Íslands, gekk í
menntaskóla í Reykjavík en náði ekki
að ljúka stúdentsprófi vegna erfiðleika
með íslenskuna. Hún vildi mennta sig
meira og gera meira á lífsleiðinni en
var komin í öngstræti þegar hún upp-
götvaði háskólabrú í Keili á Ásbrú. Þar
var hún greind með lesblindu og fékk
viðeigandi hjálp til að halda áfram að
læra. Það gerði hún með stæl, lauk
stúdentsprófi og síðan í framhaldinu
þriggja ára háskólanámi í umhverf-
is- og orkutæknifræði. Hún stofnaði
síðan frumkvöðlafyrirtæki með skóla-
félaga sínum Burkna Pálssyni og hafa
þau sett á markað hágæða kísilfæðu-
bótarefni, unnið úr náttúrulegum ís-
lenskum jarðhitakísli. Hún lét ekki þar
við sitja á menntunarbrautinni heldur
fór samhliða vinnu sinni í nýja fyrir-
tækinu í MBA nám í Háskólanum í
Reykjavík. Það var ekki alveg nóg því
hún bætti við þriðja barninu en hún
er gift Jóni Kristni Ingasyni viðskipta-
fræðingi. Fjölskyldan býr á Ásbrú og
var með fyrstu íbúunum sem flutti
þangað árið 2007.
FIDA TILNEFND TIL
TVENNRA VERÐLAUNA
Nýsköpunarfyrirtækið GeoSilica á
Ásbrú og frumkvöðullinn og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, Fida Abu
Libdeh, eru tilnefnd til verðlaunanna
Nordic Startup Awards.
Hljómlist án landa-
mæra í Hljómahöll
AÐALSAFNAÐARFUNDUR
KEFLAVÍKURSÓKNAR OG KIRKJUGARÐA KEFLAVÍKUR
verður haldinn mánudaginn 25. apríl kl:17:00 í Kirkjulundi
Dagskrá fundarins:
Venjulega aðalfundarstörf
Sóknarnefnd Keflavíkurkirkju og stjórn Kirkjugarða Keflavíkur
Bílastofan í
Reykjanesbæ
býður alhliða dekkjaþjónustu og bílaviðgerðarþjónustu á frábæru
verði, því lægsta á Suðurnesjum og þó víða væri leitað.
Smurning, hjólastillingar og alhliðabílaviðgerðir
Við bjóðum hin frábæru Infinity dekk sem sannað
hafa gildi sitt við íslensk akstursskilyrði.
R14 175/65 Heilsárs- kr. 10.990,-
R15 195/65 Heilsárs- kr. 12.990,-
R16 215/65 Heilsárs- kr. 17.990,-
R17 225/60 Heilsárs- kr. 20.990,-
Eigum einnig Burðardekk í ýmsum stærðum.
Endilega komdu við eða hafðu samband.
Njarðarbraut 11 Reykjnesbæ // Sími: 421-1251, 861-2319
Opið mánudag - föstudag frá kl. 9:00 - 17:00 og laugardag frá kl. 10:00-14:00.
ATVINNA
Óskum eftir að ráða vanan mann með réttindi á vinnuvélar
(minna prófið kemur til greina), einnig óskast verkamaður til starfa.
Upplýsingar í síma 660 2480 eða 660 2488.