Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.10.2016, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 06.10.2016, Qupperneq 2
2 fimmtudagur 6. október 2016VÍKURFRÉTTIR Viðskiptavinir HS Veitna sjá ekki reikninga sína í netbönkum um mán- aðamót. Eftir að fyrirkomulagi á gerð reikninga hjá HS Veitum var breytt í byrjun árs koma reikningarnir í net- banka 6. til 8. hvers mánaðar. Eindagi reikninganna er svo 23. dag mánaðar. Fólk sem aðeins opnar netbanka sína um mánaðamót sér reikn- inga frá HS Veitum því ekki, í byrjun mánaðar eru reikn- ingar ekki komnir inn í net- banka og um næstu mánaða- mót á eftir eru komið yfir eindaga og reikningar farnir til frekari innheimtu. Í svari frá HS Veitum segir að ástæða þess að reikning- arnir eru gefnir út 6. til 8. hvers mánaðar sé sú að nú sé raunnotkun færð á þá í stað áætlana. „Sem reyndar hefur þann ókost að reikningar eru sendir út síðar,“ segir í svari HS Veitna. Nú eru sendir út reikningar stuttu eftir mánaðamót með innheimtu fyrir notkun síðasta mánaðar en notkun ekki áætluð síðari hluta mánaðar eins og áður var. Ákveðið hefur verið að skipta út öllum mælum og setja inn mæla sem skila álestri beint í gegnum netið og er gert ráð fyrir að eftir fimm til sex ár verði allir mælar þeirrar gerðar. Þá verður óþarfi að lesa af á staðnum og áætlanir óþarfar og eru þegar komnir þúsundir slíkra mæla í rekstur. Þegar lesa þurfti af mælum og áætla var miðað við að lesa af síðari hluta mánaðar og áætla síðan það sem á vantaði til mánaðar- móta og senda reikninginn þá fyrir mánaðamót. Í svari HS Veitna segir að það séu úrelt vinnubrögð þegar álesturinn liggi fyrir og þá sé unnt að reikningsfæra raunnotkun hvers mán- aðar í stað áætlana. Af þessi leiði hins vegar að bíða þurfi fram yfir mán- aðamót eftir rauntölum og því seinki reikningagerðinni. Þeim fyrirspurnum hefur verið beint til HS Veitna hvers vegna ekki sé notast við tímabilið 20. til 20. næsta mánaðar þannig að reikningar séu tilbúnir fyrir mánaðamót. „Því er til að svara að við gætum þetta að hluta til en ekki öllu leyti því að samkvæmt skattalögum þurfum við að telja til tekna allar tekjur vegna viðkomandi árs á því ári og það sama á í raun við varðandi sex mánaða uppgjör. Við yrðum þá, að minnsta kosti á þessum t í m a m ótu m , a ð á æ t l a notkunina til mánaðamóta og draga svo væntanlega frá í næsta mánuði. Þetta hefur líka áhrif á uppgjör raforku- taps í kerfinu sem HS Veitur þurfa að kaupa. Það sem fer inn á kerfið okkar er ná- kvæmlega mælt af Landsneti um miðnætti lokadags en mælingu þess sem fer út af kerfinu væri þá háttað með öðrum hætti sem leiddi til mismunar,“ segir í svari HS Veitna. Þegar fyrirkomulagi á reikningagerð var breytt var tilkynnt um þær á út- gefnum reikningum og á heimasíðu og Facebook síðu fyrirtækisins. Í svari fyrirtækisins við fyrirspurn Víkurf- rétta er bent á að sé greitt með boð- greiðslum af einhverju tagi sé vanda- málið úr sögunni. „Það er skoðun okkar að það fyrirkomulag sé einfald- ara og þægilegra fyrir alla aðila þegar málið er skoðað í heild.“ Reikningar frá HS Veitum ekki sjáanlegir um mánaðamót ●● Viðskiptavinir●sem●aðeins●opna●netbanka●um●mánaðamót●missa●af●reikning- um●frá●HS●Veitum● Dagsetningum●gjald-●og●eindaga●breytt●eftir●að●byrjað●var● að●innheimta●fyrir●raunnotkun●í●hverjum●mánuði Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitar- félagsins Voga lýsir yfir áhyggjum sínum af slælegri umgengni á fjölda lóða á hafnarsvæðinu og við Iðndal í Vogum. Telur nefndin mikilvægt að fyrirtæki fari fram með góðu for- dæmi og að lausamunir á lóðum séu umfram það sem talist geti til dag- legs reksturs. Jafnframt lýsir nefndin yfir áhyggjum sínum er kemur að úr- ræðum sem Heilbrigðiseftirlit Suður- nesja ætti að beita. Málið var tekið fyrir og rætt á síðasta fundi nefndarinnar. Þar var rætt um ástand, umhirðu og frágang lóða og lausamuna víða í sveitarfélaginu og leiðir til úrbóta. Niðurstaða fundar Umhverfis- og skipulagsnefndar var að ákveðið var að senda ítrekun á fyrri bréf vegna stöðuleyfa og umhirðu lóða. Bygg- ingarfulltrúa var jafnframt falið að fylgja málinu eftir og upplýsa nefnd- ina um framgang þess á næsta fundi. Málið var jafnframt tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar Voga fyrir helgi og svo- hljóðandi bókun lögð fram: „Bæjarstjórn lýsir yfir áhyggjum sínum af úrræðum sem HES (Heil- brigðiseftirlit Suðurnesja) ætti að beita og óskar eftir upplýsingum um fyrirhugað eftirlit í umhverfismálum í Sveitarfélaginu Vogum.“ Slæleg umgengni á fjölda lóða veldur áhyggjum í Vogum ■ Ýmsar skemmdir hafa verið unnar á Skessunni í hellinum við smábáta- höfnina í Reykjanesbæ að undanförnu. Í síðustu viku lagfærðu starfsmenn Reykjaneshafnar fingur og tennur Skessunnar sem búið var að brjóta. Skemmdir unnar á Skessunni í hellinum Búið var að brjóta fingur á Skessunni en starfsmenn Reykjaneshafnar hafa lag- fært hann. ■ Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson, fyrrum umsjónarmenn Hraðfrétta á RÚV hafa ráðið sig sem háseta á frystitogarann Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 sem Þorbjörn í Grindavík gerir út. Frá þessu var greint í Fréttatímanum. Skipið mun láta úr höfn þann 25. október næstkomandi og verður ferðin tekin upp og sýnd á RÚV á næsta ári. Í Fréttatímanum segir að Fannar hafi farið einn túr á sjó þegar hann var tvítugur og þá legið í koju í tvo daga og langað að deyja. Það mun það hafa farið mikið í taugarnar á Benedikt þegar Fannar rifjar þá tíma upp. Benedikt tók í fyrstu ekki vel í þá hugmynd að fara á sjóinn en lét svo til leiðast. Hraðfréttamenn á sjóinn frá Grindavík FARÞEGAAFGREIÐSLA IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg og skemmtileg störf hjá fyrirtækinu. Um er að ræða störf í farþegaafgreiðslu Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi, sveiganleika og árvekni. Unnið er á vöktum. Nánari upplýsingar um aldurstakmark og hæfniskröfur: FARÞEGAAFGREIÐSLA - Starfið felst m.a. í innritun farþega og annarri tengdri þjónustu við þá. - Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf æskilegt en ekki skilyrði, almenn ökuréttindi, góð tungumála -og tölvu- kunnátta Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið Umsóknum er skilað inn rafrænt á vefsíðu IGS sjá www.igs.is fyrir 13. október 2016

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.