Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.10.2016, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 06.10.2016, Qupperneq 6
6 fimmtudagur 6. október 2016VÍKURFRÉTTIR Það er svolítið óhugnanlegt að rifja upp einn sérstæðasta atburð í sögu Suðurnesjamanna sem gerðist fyrir tíu árum síðan. Þá fór stærsti vinnu- veitandi svæðisins til hálfrar aldar í burtu frá landinu kalda, með manni og mús. Mikill fjöldi fólks, langflestir íbúar á Suðurnesjum, misstu vinnuna út af þessari brottför. Við erum auðvitað að tala um Varnarliðið. Ungir lesendur, ja, ef ekki flestir undir tvítugu vita varla að hér hafi verið bandarískur her á Keflavíkurflugvelli. Skilja líklega ekkert hvað hér er verið að fjalla um, nema að foreldrar eða frekar amma eða afi hafi sagt þeim frá því að þau hafi starfað í verslun Varnarliðsins, á símanum, í Messanum eða „pöblik-vörks“ og spyrja eflaust, hvað var það? Varnarlið sem veitti þúsundum manna störf í hálfa öld hvarf af landi brott með nokkur þúsund Ameríkana og skildi rúmlega þúsund Íslendinga eftir atvinnulausa. Fyrirvarinn þegar ákvörðun hafði verið tekin hjá bandarískum stjórnvöldum, um að hverfa á brott, var ekki mikill. Hálft ár leið frá ákvörðun þar til varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli, þar sem Varnarliðið hafði aðstöðu, geymdi aðeins byggingar, gamla orustuþotu og rúmlega hálfrar aldar sögu. Allt fólkið var farið. Kanaútvarpið þagnað. Margir Íslendingar, flestir Suðurnesjamenn, trúðu þessu ekki eða vildu ekki trúa þessu. „„Það var líkt og það hefði komið stór jarðskjálfti. Fólk var auðvitað skelfingu lostið,“ rifjar Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja upp en margir starfsmenn á Vellinum voru í því stéttarfélagi en einnig í Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis. Kristján Gunnarsson, formaður þess, rifjar þetta líka upp í viðtali við VF og segir meðal annars að nokkrum árum áður en herinn fór, var umræða á Suður- nesjum um að sú staða gæti komið upp að Varnarliðið væri farið að huga að brottflutningi. Kristján fór þá ásamt Jóhanni Geirdal, þáverandi formanni Verslunarmannafélags Suðurnesja, á fund Steingríms Hermannssonar, þáverandi forsætisráðherra, til að ræða um undirbúning ef til þess kæmi. Kristján segir fólk utan Suðurnesja almennt ekki hafa deilt áhyggjum þeirra. „Það var horft á okkur eins og við værum eitthvað skrítnir því brottför varnarliðsins þótti svo fjarstæðukennd.“ Hann segir að verkalýðsforkólfar um landið hafi heldur ekki haft mikla samúð með Suðurnesjamönnum þegar varnarliðið fór og að ríkið hafi ekki á neinn hátt veitt byggðaaðstoð til að takast á við atvinnumissi svo margra. Nokkuð athyglisverð ummæli verkalýðsforingjans en segja nokkuð um við- brögð stjórnvalda og margra aðila sem fannst þetta ekki mikið mál. Það vildi til að svonefnt góðæri var í hæstu hæðum á árinu 2006 þegar Varnarliðið fór og því fengu margir fljótt önnur störf þó svo að margir, sérstaklega eldra fólk, fengi ekki nýja vinnu. En svo þegar bankahrunið bankaði á dyrnar voru margir fyrrum starfsmanna Varnarliðsins sem fengu fyrstir uppsögn. Nú eru liðin tíu ár. Suðurnesjamenn þóttu hafa farið offari í góðærinu og fengu ekki mikla samkennd eða samúð í mesta atvinnuleysi seinni tíma en fljótlega eftir bankahrun fór atvinnuleysi í hæstu hæðir á svæðinu. Þegar Kristján verkalýðsforingi nefnir í viðtalinu „byggðaaðstoð“ er ekki svo vit- laust að velta því fyrir sér ef við setjum töluna 1000 í annað samhengi, segjum til dæmis að svona hefði gerst á höfuðborgarsvæðinu, sem er um það bil tíu sinnum stærra svæði en Suðurnesin. Hvað hefði gerst ef tíu þúsund manns hefðu misst vinnuna? Sá sem þetta ritar setur þetta fram til umhugsunar því ríkisvaldið og Alþingi, þeir sem ráða miklu, gerðu ekkert til að lækna þetta sár, gáfu varla sprautu til að deyfa sársaukann. Hefði ekkert verið gert ef tíu þúsund manns hefðu misst vinnuna á höfuðborgarsvæðinu eða 100 til 200 manns misst vinnuna á Vestfjörðum? Við birtum viðtöl við verkalýðsforingja, fyrrverandi bæjarstjóra og upp- lýsingafulltrúa Varnarliðsins í þessu blaði og í sjónvarpsþætti vikunnar. Þeir rifja upp viðbrögð og hvað hafi verið gert. Okkur finnst þetta nefnilega ansi merkilegt í sögu svæðisins og munum fjalla meira um málið á næstunni. Skoða til dæmis hvernig hafi tekist til við endurreisn gamla varnarsvæðisins. Hvað er eiginlega gert þegar nokkur þúsund manna bæjarfélag fer bara í burtu? Hvað er gert við byggingarnar og hvernig tóku Íslendingar við stórum verkefnum sem Varnarliðið hafði greitt fyrir milljarða í mörg ár og séð um í áratugi? Mjög margir vita að endurreisn Keflavíkurflugvallar, sem áður hýsti Amerík- ana, orustuþotur og herþyrlur þeirra, hefur gengið vel og þar er nú orðið nokkuð magnað og flott samfélag með framtíð. Meira um það síðar. Páll Ketilsson ritstjóri ÓHUGNANLEG UPPRIFJUN RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent- aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Tónlist hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Trúbrots verður flutt á tónleikum í Stapa á morgun, föstu- daginn 7. október. Á tónleikunum verður platan Lifun flutt er hún er af mörgum talin eitt helsta meistara- verk íslenskrar tónlistarsögu. Að sögn Tómasar Young, framkvæmdastjóra Hljómahallar, er það æskudraumur marga þar innanhúss að Trúbrot komi fram í Stapa. Til að mynda hefur hann sjálfur lengi átt sér þann draum, sem og hljóðmaður Hljómahallar sem lengi hefur dreymt um að vera hljóð- maður á tónleikum með Trúbroti. „Það er því mjög gaman að þessi goð- sagnakennda hlómsveiti spili hér,“ segir Tómas. Platan Lifun verður flutt í heild sinni á tónleikunum auk annarra laga Trú- brots. Í ár eru 45 ár síðan Lifun kom út en hún var tekin upp í London. Tómas segir ljóst að meðlimir Trú- brots hafi verið á undan sinni samtíð. Gunnar Jökull Hákonarson, heitinn, var trommuleikari Trúbrots og tók hann trommusettið sitt með sér til London í upptökurnar og segir Tómas það hafa verið afar fátítt á þeim tíma að tónlistarmenn flyttu svo stór hljóð- færi á milli landa. Trommusettið góða prýðir nú Rokksafnið og geta gestir litið á það á leiðinni á tónleikana. Gunnar Þórðarson og Magnús Kjart- ansson, meðlimir Trúbrots, skipa hljómsveitina, ásamt góðum hópi tónlistarmanna, þeim Stefáni Jak- obsssyni, Andra Ólafssyni, Stefaníu Svavarsdóttur, Eyþóri Gunnarssyni, Gulla Briem, Pétri Grétarssyni, Friðrik Karlssyni og Jóhanni Ásmundssyni. ●● Trommusettið●sem●spilað●var●á●við●upptökur●á●Lifun●prýðir●Rokksafnið Platan Lifun var leikin í heild sinni á tónleikum í Hörpu fyrr árinu og var myndin tekið við það tilefni. ÆSKUDRAUMUR AÐ TRÚBROT SPILI Í STAPA RAUÐAKROSSBÚÐIN Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ Opnunartímar Miðvikudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Fimmtudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Fatnaður og skór. Rauði krossinn á Suðurnesjum Kaldavatnslaust vegna framkvæmda Vegagerðar ríkisins og Reykjanesbæjar við undirgöng Hafnaveg HS Veitur hf tilkynna Vegna þessa verður lokað fyrir kalda vatnið miðvikudaginn 12. október kl. 22:00 á eftirfarandi stöðum: Keavík, Njarðvík og Sandgerði. Áætlað er að vatn verði komið á aftur og fullur þrýstingur mmtudaginn 13. október kl. 11:00. Vegna gerð undirganga við Hafnaveg þarf að færa til 600 mm stofnlögn kalda vatnsins í vegkanti Reykjanesbrautar. HS Veitur hf flytja tærustu afurðir þjóðarinnar inn á hvert heimili Sími 4225200 www.hsveitur.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.