Víkurfréttir - 06.10.2016, Side 8
8 fimmtudagur 6. október 2016VÍKURFRÉTTIR
Gylfi Már Þórðarson er 26 ára keflvískur viðskipta-
fræðinemi í Háskóla Íslands. Gylfi er mikill aðdá-
andi Huawei Nexus 6p símans síns og reynir að nota
hann í eins margt og hann getur en það nær allt frá
því að vakna og að því að læra nýtt tungumál. Hann
er hvað þekktastur fyrir að hafa aðstoðað við leitina
að flóttahundinum Hunter með misjöfnum árangri.
Sleep as Android
Besta vekjaraklukkan á markaðnum.
Ef það væri ekki fyrir þetta app þá
mundi ég líklega ekki vakna. Það
finnur út hvenær þú sefur lausast og
þá fer vekjarinn í gang. Óstaðfestar
fregnir segja að þetta hjálpi makanum
líka því að auk þess að vera vekjaraklukka þá greinir
appið hvort maður hrjóti og reynir að fá mann til
að hætta því með því að spila lítinn hljóðbút án þess
að vekja mann. Ef það er einhver skvísa þarna úti
sem getur hjálpað mér að staðfesta það þá er ég á
Facebook.
Soundhound
Hversu oft kemur það fyrir mann að maður
er að hlusta á frábært lag í útvarpinu og bíður
spenntur eftir því að útvarpsþáttastjórnand-
inn tilkynni hlustendum hvaða stórkostlegi
listamaður var að verki en svo fer hann bara
að tala um veðrið eða að tilkynna okkur hvað
klukkan er? Soundhound er með lausnina á þessu hvim-
leiða vandamáli en það virkar þannig að þú kveikir á
appinu á meðan lagið óþekkta er í gangi og það segir þér á
innan við 10 sekúndum hvert lagið er.
Duolingo
App sem hjálpar
þ é r a ð l æ r a
tungumál. Það
byrjar á að sýna
n o t a n d a n u m
my n d i r m e ð
orðinu skrifað undir mynd-
ina á því tungumáli sem þú
vilt læra. Í framhaldi af því
eru orðin notuð í setningu
sem notandinn þarf að þýða,
það koma hlustunaræfingar
sem og munnlegar æfingar.
Það gæti verið meira spunnið
í þetta frábæra app en ég er
bara búinn með 3% í leið
minni að því að verða reip-
rennandi í spænsku.
Sjónvarp Símans
Að lágmarki þrjú kvöld í viku vippa ég mér í
ræktina með það að tilgangi að vera hraustari
maður en ég var í gær. Þá vill til að flestir
leikir í íþróttum fara fram á kvöldin. Hjá flest-
um væri þetta vandamál en ekki hjá Appmann
þessa vikuna. Maður kveikir bara á appinu,
velur hvaða leik maður vill horfa á, stingur heyrnatólunum
í eyrun, rífur í lóðin og ef að það hljómar eins og sá sem
lýsir leiknum sé við það að fá flog þá tekur maður símann
upp. Þannig getur maður séð það merkilegasta sem gerðist
í leiknum án þess að missa af því að skella sér í ræktina. P.s.
ég tek 180 kg í réttstöðu og ég nota enga stera.
RunPee – Gamechanger.
Eina appið á þessum lista sem nýtist mér ekki
persónulega en ég held þó mikið upp á. Það
vill nefninlega þannig til að góðvinur minn,
Sigurvin Þór Sveinsson, er með minnstu
þvagblöðru í heimi. Það er yfirleitt ekki
stórt vandamál nema þegar að við félagarnir
skellum okkur í bíó. Appið virkar þannig að þú velur þá
bíómynd sem þú ert að horfa á og því næst setur maður
af stað skeiðklukku um leið og myndin byrjar. Síðan þegar
að lítið er að gerast í myndinni þá byrjar síminn að titra í
vasanum og ég get bent Sigurvin á að drífa sig á klósettið án
þess að trufla bíógesti of mikið og Sigurvin missir ekki af
neinu merkilegu í myndinni. Allir vinna.
„App sem greinir
hvort þú hrjótir“
SNJÖLL ÖPP GYLFA:
„Að lágmarki þrjú kvöld í viku vippa ég mér í ræktina
með það að tilgangi að vera hraustari maður en ég var í gær“
Hverjum treystir þú?
Fundir 6. október kl. 17
í Ráðhúsinu Sandgerði
og kl. 20 í Verkalýðshúsinu
Grindavík
Matorka leitar að starfsfólki í fiskeldi félagsins í Grindavík.
Skemmtileg störf í boði í einum mest spennandi iðnaði landsins.
Vinnutími frá kl. 8:30 - 17:00 og ein helgi í mánuði.
Áhugasömum er bent á að senda ferilskrá á matorka@matorka.is.
Atvinna
FUNDIR Í REYKJANESBÆ
PARKINSONSAMTÖKIN Á ÍSLANDI halda fund í Reykja-
nesbæ, fimmtudaginn 6. október, kl. 17.00 í Fjölskyldusetrinu, Skólavegi 1.
Á fundinum verður starfsemi samtakanna kynnt og Bergþóra Vilhelmsdóttir mun
segja frá sinni reynslu af Parkinsonsjúkdómnum.
Allir Parkinsongreindir og aðstandendur þeirra
á Reykjanesi eru hvattir til að mæta.
Reykjanes, félag smábátaeigenda á
Reykjanesi, færði björgunarsveitum
og bátasjóðum veglegar gjafir að upp-
hæð ein milljón og fimmtíuþúsund
krónur á aðalfundi sínum sem haldinn
var í Salthúsinu í Grindavík nýlega.
Forsvarsmenn björgunarsveitanna og
bátasjóðanna tóku við gjöfunum sem
hver um sig var 150.000 krónur.
Á aðalfundi síðasta árs var ákveðið
að gefa þessa styrki til björgunarmála
og á aðalfundinum í síðustu viku fór
formleg afhending fram. Þeir sem
hlutu styrk frá Reykjanes, félagi smá-
bátaeiganda á Reykjanesi voru: Björg-
unarsveitin Þorbjörn, Björgunar-
sveitin Suðurnes, Björgunarsveitin
Ægir, Björgunarsveitin Sigurvon,
Björgunarsveitin Skyggnir og Björg-
unarbátasjóðir Grindavíkur og Suður-
nesja.
Á næsta ári fagnar félagið 30 ára af-
mæli en fjöldi félagsmanna er um
hundrað manns. Formaður þess er
Þorlákur Halldórsson. grindavik.net
greinir frá.
Smábátafélagið Reykjanes
með veglegar gjafir
Tveir nýliðar í
liði Sandgerðis
í Útsvari
■ Lið Sandgerðis í spurningaþætt-
inum Útsvari á RÚV í vetur skipa
þau Bylgja Baldursdóttir, Sigur-
sveinn Bjarni Jónsson og Bergný
Jóna Sævarsdóttir. Sandgerði tók
fyrst þátt í Útsvari árið 2013 og
hefur Bylgja verið í liðinu síðan þá.
Þau Sigursveinn og Bergný eru að
taka þátt í Útsvari í fyrsta sinn.
Fyrsta viðureign Sandgerðis verður
gegn Rangárþingi eystra föstudaginn
14. október.
Auglýsingasíminn er
421 0001
Viltu starfa á vinnustað þar sem þú virkilega
skiptir máli en ert ekki einn af 100?
Leitað er að starfsfólki í fullt starf og hlutastarf.
• Afgreiðsla bílaleigubíla
• Þrif og umsjón bílaleigubíla
• Húsasmiður eða aðila með sambærilega menntun/reynslu.
• Bílasprautari eða aðila með sambærilega menntun/reynslu.
Umsókn skal senda ásamt ferilskrá (CV) á:
STARF@FAIRCAR.IS
Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2016.
bílaleiga leitar eftir
starfsfólki
Við leitum að hressu, skemmtilegu og metnaðargjörnu
starfsfólki til að vinna með okkur í ört vaxandi fyrirtæki
í þjónustu við ferðamenn.