Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.10.2016, Page 8

Víkurfréttir - 06.10.2016, Page 8
8 fimmtudagur 6. október 2016VÍKURFRÉTTIR Gylfi Már Þórðarson er 26 ára keflvískur viðskipta- fræðinemi í Háskóla Íslands. Gylfi er mikill aðdá- andi Huawei Nexus 6p símans síns og reynir að nota hann í eins margt og hann getur en það nær allt frá því að vakna og að því að læra nýtt tungumál. Hann er hvað þekktastur fyrir að hafa aðstoðað við leitina að flóttahundinum Hunter með misjöfnum árangri. Sleep as Android Besta vekjaraklukkan á markaðnum. Ef það væri ekki fyrir þetta app þá mundi ég líklega ekki vakna. Það finnur út hvenær þú sefur lausast og þá fer vekjarinn í gang. Óstaðfestar fregnir segja að þetta hjálpi makanum líka því að auk þess að vera vekjaraklukka þá greinir appið hvort maður hrjóti og reynir að fá mann til að hætta því með því að spila lítinn hljóðbút án þess að vekja mann. Ef það er einhver skvísa þarna úti sem getur hjálpað mér að staðfesta það þá er ég á Facebook. Soundhound Hversu oft kemur það fyrir mann að maður er að hlusta á frábært lag í útvarpinu og bíður spenntur eftir því að útvarpsþáttastjórnand- inn tilkynni hlustendum hvaða stórkostlegi listamaður var að verki en svo fer hann bara að tala um veðrið eða að tilkynna okkur hvað klukkan er? Soundhound er með lausnina á þessu hvim- leiða vandamáli en það virkar þannig að þú kveikir á appinu á meðan lagið óþekkta er í gangi og það segir þér á innan við 10 sekúndum hvert lagið er. Duolingo App sem hjálpar þ é r a ð l æ r a tungumál. Það byrjar á að sýna n o t a n d a n u m my n d i r m e ð orðinu skrifað undir mynd- ina á því tungumáli sem þú vilt læra. Í framhaldi af því eru orðin notuð í setningu sem notandinn þarf að þýða, það koma hlustunaræfingar sem og munnlegar æfingar. Það gæti verið meira spunnið í þetta frábæra app en ég er bara búinn með 3% í leið minni að því að verða reip- rennandi í spænsku. Sjónvarp Símans Að lágmarki þrjú kvöld í viku vippa ég mér í ræktina með það að tilgangi að vera hraustari maður en ég var í gær. Þá vill til að flestir leikir í íþróttum fara fram á kvöldin. Hjá flest- um væri þetta vandamál en ekki hjá Appmann þessa vikuna. Maður kveikir bara á appinu, velur hvaða leik maður vill horfa á, stingur heyrnatólunum í eyrun, rífur í lóðin og ef að það hljómar eins og sá sem lýsir leiknum sé við það að fá flog þá tekur maður símann upp. Þannig getur maður séð það merkilegasta sem gerðist í leiknum án þess að missa af því að skella sér í ræktina. P.s. ég tek 180 kg í réttstöðu og ég nota enga stera. RunPee – Gamechanger. Eina appið á þessum lista sem nýtist mér ekki persónulega en ég held þó mikið upp á. Það vill nefninlega þannig til að góðvinur minn, Sigurvin Þór Sveinsson, er með minnstu þvagblöðru í heimi. Það er yfirleitt ekki stórt vandamál nema þegar að við félagarnir skellum okkur í bíó. Appið virkar þannig að þú velur þá bíómynd sem þú ert að horfa á og því næst setur maður af stað skeiðklukku um leið og myndin byrjar. Síðan þegar að lítið er að gerast í myndinni þá byrjar síminn að titra í vasanum og ég get bent Sigurvin á að drífa sig á klósettið án þess að trufla bíógesti of mikið og Sigurvin missir ekki af neinu merkilegu í myndinni. Allir vinna. „App sem greinir hvort þú hrjótir“ SNJÖLL ÖPP GYLFA: „Að lágmarki þrjú kvöld í viku vippa ég mér í ræktina með það að tilgangi að vera hraustari maður en ég var í gær“ Hverjum treystir þú? Fundir 6. október kl. 17 í Ráðhúsinu Sandgerði og kl. 20 í Verkalýðshúsinu Grindavík Matorka leitar að starfsfólki í fiskeldi félagsins í Grindavík.  Skemmtileg störf í boði í einum mest spennandi iðnaði landsins.  Vinnutími frá kl. 8:30 - 17:00 og ein helgi í mánuði.  Áhugasömum er bent á að senda ferilskrá á matorka@matorka.is. Atvinna FUNDIR Í REYKJANESBÆ PARKINSONSAMTÖKIN Á ÍSLANDI halda fund í Reykja- nesbæ, fimmtudaginn 6. október, kl. 17.00 í Fjölskyldusetrinu, Skólavegi 1. Á fundinum verður starfsemi samtakanna kynnt og Bergþóra Vilhelmsdóttir mun segja frá sinni reynslu af Parkinsonsjúkdómnum. Allir Parkinsongreindir og aðstandendur þeirra á Reykjanesi eru hvattir til að mæta. Reykjanes, félag smábátaeigenda á Reykjanesi, færði björgunarsveitum og bátasjóðum veglegar gjafir að upp- hæð ein milljón og fimmtíuþúsund krónur á aðalfundi sínum sem haldinn var í Salthúsinu í Grindavík nýlega. Forsvarsmenn björgunarsveitanna og bátasjóðanna tóku við gjöfunum sem hver um sig var 150.000 krónur. Á aðalfundi síðasta árs var ákveðið að gefa þessa styrki til björgunarmála og á aðalfundinum í síðustu viku fór formleg afhending fram. Þeir sem hlutu styrk frá Reykjanes, félagi smá- bátaeiganda á Reykjanesi voru: Björg- unarsveitin Þorbjörn, Björgunar- sveitin Suðurnes, Björgunarsveitin Ægir, Björgunarsveitin Sigurvon, Björgunarsveitin Skyggnir og Björg- unarbátasjóðir Grindavíkur og Suður- nesja. Á næsta ári fagnar félagið 30 ára af- mæli en fjöldi félagsmanna er um hundrað manns. Formaður þess er Þorlákur Halldórsson. grindavik.net greinir frá. Smábátafélagið Reykjanes með veglegar gjafir Tveir nýliðar í liði Sandgerðis í Útsvari ■ Lið Sandgerðis í spurningaþætt- inum Útsvari á RÚV í vetur skipa þau Bylgja Baldursdóttir, Sigur- sveinn Bjarni Jónsson og Bergný Jóna Sævarsdóttir. Sandgerði tók fyrst þátt í Útsvari árið 2013 og hefur Bylgja verið í liðinu síðan þá. Þau Sigursveinn og Bergný eru að taka þátt í Útsvari í fyrsta sinn. Fyrsta viðureign Sandgerðis verður gegn Rangárþingi eystra föstudaginn 14. október. Auglýsingasíminn er 421 0001 Viltu starfa á vinnustað þar sem þú virkilega skiptir máli en ert ekki einn af 100? Leitað er að starfsfólki í fullt starf og hlutastarf. • Afgreiðsla bílaleigubíla • Þrif og umsjón bílaleigubíla • Húsasmiður eða aðila með sambærilega menntun/reynslu. • Bílasprautari eða aðila með sambærilega menntun/reynslu. Umsókn skal senda ásamt ferilskrá (CV) á:
 STARF@FAIRCAR.IS Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2016. bílaleiga leitar eftir starfsfólki Við leitum að hressu, skemmtilegu og metnaðargjörnu starfsfólki til að vinna með okkur í ört vaxandi fyrirtæki í þjónustu við ferðamenn.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.