Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.10.2016, Qupperneq 14

Víkurfréttir - 06.10.2016, Qupperneq 14
14 fimmtudagur 6. október 2016VÍKURFRÉTTIR www.n1.is facebook.com/enneinn Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægisíðu 440-1320 Langatanga Mosfellsbæ 440-1378 Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372 Dalbraut Akranesi 440-1394 Opið mán –fös kl. 08-18 www.n1.is  Hluti af vetrinum Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is Cooper Weather-Master WSC Öflugt og gott grip við erfiðar aðstæður Mikið skorið og stefnuvirkt munstur fyrir jeppa og jepplinga Flott dekk fyrir íslenskt veðurfar Cooper Discoverer M+S Frábært neglanleg vetrardekk fyrir jeppa Einstaklega endingargóð með mikið skorið snjómunstur Nákvæm röðun nagla eykur grip á ísilögðum vegum Cooper WM SA2+ Míkróskorið óneglanleg vetrardekk Afburða veggrip og stutt hemlunarvegarlengd Mjúk í akstri með góða vatnslosun Rúllaðu inn í veturinn á nýjum dekkjum t tí f rir j s i ti . 1.is LEIKHÚSFERÐ Félags eldri borgara verður farin 30. okt 2016. Farið verður í Þjóðleikhúsið að sjá „Djöaeyjuna“ Farið frá SBK kl. 17:30, komið við í Hornbjargi, Nesvöllum, Grindavíkur og Vogatorgi. Sýningin hefst kl. 19:30. Miði og rúta kr. 6.500,- Pantanir hjá Ólu Björk síma 898-2243 , Björgu 865-9897,Guðrúnu 659-0201 og Ásthildi 861-6770. Miðar seldir á Nesvöllum miðvikudag 19. október kl. 16:00-17:00. Erum ekki með posa. Leikhúsnefnd. Er ekki nóg að senda teppi? Enska ljóðskáldið John Dunne orti fyrir um 400 árum síðan: Enginn maður er eyland, einhlítur sjálfum sér. Sérhver maður er brot af meginlandinu, hluti veraldar. … Dauði sérhvers manns smækkar mig, af því ég er íslunginn mannkyninu. Spyr þú því aldrei, hverjum klukkan glymur. Hún glymur þér. Hvenær mun okkur eiginlega skiljast að þetta er svona og hvað það þýðir? Hörmungar skekja Sýrland og íbúar þess flýja fósturjörð sína til þess að leita skjóls og finna frið. Mæður og feður reyna í örvæntingu sinni að koma börnum sínum undan stríðstólum valdasjúkra og siðalausra stríðsherra. Stríðsherra sem nota vopn sem framleidd eru á Vesturlöndum og eru rækilega studdir af Bandaríkjunum annars vegar og Rússum hins vegar. Þessar hörmungar af mannavöldum sem eru að leggja líf margra milljóna manneskja í rúst eru því að miklu leyti í boði ríkja sem vilja kenna sig við lýðræði, mannréttindi og frelsi en finnst þegar öllu er á botninn hvolft enn þá mikilvægara að græða á daginn og grilla á kvöldin. Og vilja lítið á sig leggja og alls engu fórna af forrétt- indum sínum og veraldlegum munaði. Er ekki bara hægt að senda þessu fólki teppi? Ekki viljum við þetta fá þetta fólk hingað, er það nokkuð? Við berum ábyrgð Við berum auðvitað öll og saman ábyrgð á börnum sem missa foreldra sína og systkini sem falla fyrir vestrænum morð- tólum. Við berum að sjálfsögðu ábyrgð á því að þau geta ekki lifað áhyggjulaus og hlaupið létt og glöð út á leikvöll að róla sér eða vega salt. Við berum ábyrgð á því að þau mega þola skelfilegar mis- þyrmingar og misnotkun. Og við berum vitaskuld ábyrgð á þeirri staðreynd að mannvonska og fáfræði gerir það að verkum að þau búa við aðstæður sem sviptir þau rétti og möguleika til að vita og skilja hvað náungakærleikur er. Að þau vita ekki hvað er að vera boðinn velkomin, að vera elskaður, að eiga fjöl- skyldu og öruggt skjól. Hvílík ósvinna og hvílík lágkúra Það er hræðilega dapurleg staðreynd að hér í okkar ríka velmegunarsamfélagi er fólk sem er tilbúið að loka á þessi börn og aðra sem neyðast til að flýja heimalönd sín vegna stríðshörmunga og ömurlegra aðstæðna. Það er til fólk í okkar friðsama og ríka landi sem virðist ekki sjá neitt athugavert að segja við eldri borgara og öryrkja og alla þá sem standa höllum fæti að ekki sé hægt að veita þeim mannsæmandi lífskjör vegna þess að við eyðum svo miklum peningum í hjálpa öðru fólki í brýnni neyð. Fólk sem stendur á sama um eða virðist ekki gera sér ekki grein fyrir að með orðum sínum er það að sá fræjum fordóma og haturs í garð þeirra sem þurfa svo mikið á stuðningi, skilningi og velvilja að halda og geta síst af öllum varið sig fyrir illvilja, illum orðum og illum verkum. Hvílík ósvinna og hvílík lágkúra! Kakan er nógu stór Margt af þessu fólki sem svona hugsar og talar styður stjórnmálaflokka sem mestar áhyggjur hafa af ónógum tæki- færum þeirra ríku til að græða meira og tala fjálglega um að „stækka þurfi kökuna“. Því að þá munu allir fá meira þegar henni verður skipt og hún étin. Því að þá munu molar úr stóru kökunni hrökkva til þeirra sem er ekki boðið sæti við borðið þegar kakan er skorin í sneiðar og þeir gráðugu háma þær í sig. Kakan okkar er alveg nógu stór til þess að allir geti fengið sæti við borðið og fengið nógu stórar sneiðar. Og hún er alveg nógu stór til þess að við getum veitt fólki sem til okkar leitar í neyð sinni skjól, stuðning og virðingu og boðið fjölskyldum þess og börnum sæti við borðið með okkur, fjölskyldum okkar og börnum. Það eina sem þarf er viljinn til að láta réttlæti og mannúð stjórna orðum okkar, gerðum og gæta þess að þeir sem stjórn- ast af græðgi fái ekki að skipta kökunni og hlusta ekki á orð þeirra sem einkenn- ast af lágkúru, fordómum og þröngsýni. Við kennum börnum okkar að sælla sé að gefa en þiggja og eigum auðvitað að sýna þeim það í verki að við meinum eitthvað með því. Kakan er alveg nógu stór ●● Ef●græðgin●ræður●því●ekki●hvernig●henni●er●skipt Páll Valur Björnsson þingmaður Bjartrar framtíðar AÐALFUNDUR TÓNLISTARFÉLAGS REYKJANESBÆJAR verður haldinn 13. október 2016 kl.17:00 í Rokksafni Íslands, Hljómahöll Á dagsskrá eru venjubundin aðalfundarstörf. Félagar eru sérstaklega hvattir til að mæta. Stjórnin

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.