Víkurfréttir - 06.10.2016, Blaðsíða 21
21fimmtudagur 6. október 2016 VÍKURFRÉTTIR
Sveindís Jane Jónsdóttir og Marc Mc
Ausland voru valin bestu leikmenn
meistaraflokka Keflavíkur í knatt-
spyrnu en lokahóf knattspyrnudeildar
var haldið síðasta laugardag.
Í lokahófinu voru veittar viðurkenn-
ingar eftir leiktíðina. Tómas Óskars-
son og Aníta Lind Daníelsdóttir voru
valin efnilegust. Þá fengu Sigurbergur
Elisson og Sveindís Jane gullskóinn
fyrir flest skoruð mörk. Silfurskóinn
hlutu Magnús Þórir Matthíasson og
Amber Pennybaker. Þá var Benedikt
Jónsson valinn besti leikmaður 2.
flokks karla.
Keflvíkingar hafa mörg undanfarin
ára veitt fréttagyðjuna. Að þessu sinni
fékk enginn annar en Jón Örvar Ara-
son styttuna en hann hefur verið mjög
duglegur með myndavélina á leikjum
og atburðum félagsins.
Þorvaldur lætur af störfum
■ Þorvaldur Örlygsson, sem tók við þjálfun meistaraflokks karla haustið
2015, lætur nú af störfum sem þjálfari Keflvíkinga og mun að öllum lík-
indum hefja störf hjá Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ) í fullu starfi nú í
haust. Þorvaldur hefur samhliða þjálfun meistaraflokks karla hjá knattspyrnu-
deildinni starfað í hlutastarfi hjá KSÍ sem þjálfari U-19 ára landsliðs karla. KSÍ
hyggst nú gera þetta að 100% starfi sem mun hafa þau áhrif að Þorvaldur getur
ekki þjálfað félagslið samhliða. Knattspyrnudeild Keflavíkur þakkar Þorvaldi
fyrir vel unnin störf á liðnu ári og ánægjulegt samstarf og óskar honum velfarn-
aðar í starfi hjá KSÍ, segir í sameiginlegri fréttatilkynningu.
Keflavík endaði í 3. sæti í Inkasso-deildinni í sumar. All nokkrar væringar voru
um áframhaldandi störf Þorvaldar hjá félaginu og ekki allir á eitt sáttir með hans
störf í sumar.
Sveindís og Marc best hjá Keflavík
Sveindís Jane og Marc með Jóni Ben formanni knattspyrnudeildar og Benediktu Benediktsdóttur, formanni m.fl. Kvenna.
Markahæstu leikmennirnir fengu silfur og gullskó að venju. Sveindís og Sigur-
bergur með gullið.
■ Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir
Newman úr Fimleikadeild Kefla-
víkur var nýlega valin í landslið Ís-
lands í hópfimleikum sem keppir
á Evrópumótinu í Maribor í Sló-
veníu 12. til 15. október næstkom-
andi. Kolbrún segir það hafa komið
skemmtilega á óvart að vera valinn
í hópinn og eitthvað sem hún hafi
aldrei búist við að myndi gerast. Til-
kynnt var um hópinn í ágúst síðast-
liðnum.
Kolbrún er 18 ára gömul og hefur æft
fimleika í 11 ár. Lengst af æfði hún
áhaldafimleika en skipti yfir í hóp-
fimleika fyrir einu ári síðan. Hún mun
keppa í blönduðu liði fullorðinna. Í
liðinu eru sjö konur og átta karlar og
keppa fimm af hvoru kyni í einu og
hinir eru varamenn. Keppt er í dansi,
á dýnu og trampólíni. Landslið Íslands
í þessum flokki hefur ekki hampað
Evróputitli.
Ferðin til Slóveníu kostar um 400.000
krónur fyrir hvern keppanda og
stendur núna yfir söfnun á vegum
Fimleikasambands Íslands undir heit-
inu Vertu mEMm. Sambandið skorar
á fyrirtæki að styrkja landsliðsfólkið.
Sjálfgefin upphæð er 25.000 krónur en
hægt er að hækka hana eða lækka. Þau
fyrirtæki sem styrkja eru svo beðin
um að skora á tvö önnur fyrirtæki
að gera það sama. Einnig er hægt að
styrkja um 1500 krónur, 3000 krónur
eða 5000 krónur með símtali. Nánar
má lesa um söfnunina á vef Fimleika-
sambands Íslands, www.fimleikasam-
band.is.
Kolbrún Júlía var nýlega valin í lands-
lið Íslands sem keppir á Evrópumótinu
í hópfimleikum sem fer fram síðar í
þessum mánuði í Maribor í Slóveníu.
Kolbrún Júlía á EM í hópfimleikum