Læknablaðið - 01.04.2017, Page 3
LÆKNAblaðið 2017/103 163
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Hávar Sigurjónsson (í leyfi)
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1900
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
14.900,- m. vsk.
Lausasala
1490,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu. Blað þetta má eigi
afrita með neinum hætti, hvorki að hluta
né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráð-
ar (höfundar, greinarheiti og útdrættir)
í eftirtalda gagnagrunna: Medline
(National Library of Medicine), Science
Citation Index (SciSearch), Journal Cita-
tion Reports/Science Edition, Scopus
og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Ein tafla á dag
Varnar heilablóðfalli og segareki að lágmarki til jafns við warfarín
Sambærileg blæðingarhætta og í meðferð með warfaríni en
marktækt færri innankúpublæðingar og dauðsföll vegna blæðinga
Að taka lyf einu sinni á dag við hjarta- og æðasjúkdómum
eykur líkur á því að lyfið sé leyst út af sjúklingi
eykur líkur á því að sjúklingur taki lyfið
eykur líkur á því að lyfið sé tekið á réttum tíma
samanborið við lyf sem taka þarf oftar
♦♦
♦♦
♦♦
Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto. 2. Patel MR et al. N Engl J Med 2011; 365:883-891.
3. Bae JP et al. Am J Manag Care 2012; 18:139-146. 4. Coleman CI et al. Curr Med Res Opin 2012; 28:669-680.
Fyrsti beini hemillinn á storkuþátt Xa til inntöku
3
2
2
*1
4
4
L.IS.11.2014.0086
Öryggisupplýsingar: Eins og almennt gildir um segavarnarlyf og blóðflöguhemla
verður að nota rivaroxaban með varúð hjá sjúklingum með aukna blæðingarhættu.1
Algengar aukaverkanir (≥1/100 til <1/10): Blæðingar: Í tannholdi, margúll, flekkblæðing,
blóðnasir, blóðhósti, blæðing í auga, blæðingar í húð og undirhúð, blæðing eftir aðgerðir, blæðing í meltingarvegi,
blæðing í þvag- og kynfærum. Aðrar: Blóðleysi, verkir í meltingarfærum og kvið, meltingartruflanir, ógleði, harðlífi,
niðurgangur, uppköst, lágur blóðþrýstingur, kláði, útbrot, verkir í útlim, sundl, höfuðverkur, skert nýrnastarfsemi,
hækkun á transamínasa, sótthiti, bjúgur í útlimum, skertur almennur styrkur og orka, marmyndun, rennsli úr sárum.1
Ekki er mælt með notkun Xarelto hjá sjúklingum með gervihjartalokur.1
*sem fyrirbyggjandi meðferð gegn heilablóðfalli og segareki hjá
fullorðnum sjúklingum með gáttatif án lokusjúkdóms og einn eða
fleiri áhættuþætti, svo sem hjartabilun, háþrýsting, aldur ≥ 75 ára,
sykursýki, sögu um heilablóðfall eða skammvinnt blóðþurrðarkast1
Anna Hallin (f. 1965) hefur löngum unnið listaverk í leir en
jafnframt hefur hún teiknað, málað, stýrt teiknimyndum
og fleira. Verk hennar eru innblásin af lífrænum formum
og afsprengi margháttaðra tilrauna með efniviðinn sjálf-
an. Leirlist byggist sem kunnugt er á flóknu ferli þar sem
efnafræði glerungsins tekur hálfpart-
inn völdin af listamanninum sem sér
ekki endanlega útfærslu fyrr en eftir
brennslu. Ljósmyndin á forsíðu Lækna-
blaðsins er af leirverki Önnu, Torso frá
2016, en í baksýn sést í annað þrívítt
verk og teikningu frá sama ári sem er
án titils. Skúlptúrinn er líkamlegur og
innblásinn af sígildum búk- og brjóst-
myndum höggmyndasögunnar. Hann
er þó langt frá því að vera fígúratífur.
Þvert á móti er hann ósamhverfur, en
formið er ávalt og lífrænt. Návist líkam-
ans kemur ekki síst fram í keramikverk-
um Önnu í því hvernig form þeirra kallar
á snertingu og nánd. Fjölbreytt áferðin
er ýmist mött, gróf, slípuð eða glans-
andi sem dregur fram kitl í fingurgómana. Hið grófa yfir-
borð verksins, sem minnir á mosagróður, stangast á við
háglansandi totur sem standa upp úr og minna á spena.
Maður skynjar umbreytingu efnisins við brennsluna, sér
hvernig glerungurinn bráðnar og harðnar svo í miðju ferli.
Samhliða skúlptúrum sínum hefur
Anna unnið teikningar sem ramba eins
og leirverkin á mörkum hins stýriláta
og ósjálfráða. Markviss lína kallast á
við slettur og kám. Anna var skipti-
nemi við Myndlista- og handíðaskóla
Íslands veturinn 1988-1989. Árið
1990 útskrifaðist hún úr keramikdeild
Háskólans í Gautaborg í Svíþjóð og
á árunum 1994 til 1996 stundaði hún
nám við Mills College í Kaliforníu í
Bandaríkjunum hjá prófessor Ron
Nagle og útskrifaðist þaðan með
mastersgráðu í studio arts.
Markús Þór Andrésson
L I S T A M A Ð U R M Á N A Ð A R I N S
Læknar læra að kenna
Framhaldsnám í læknisfræði á Landspítala er smám saman að komast í fastar skorður. Teymi frá The
Royal College of Physicians í London er með íslenska lækna í handleiðslu svo þeir geti kennt sínum
læknastúdentum réttu aðferðirnar. Bæði lyflæknar og skurðlæknar hafa sest á þennan skólabekk, og
agavandamál eru fátíð. Í marslok sátu um 20 skurðlæknar af ýmsum toga í húsnæði Læknafélags Íslands
og meðtóku boðskapinn frá RCP. Á efstu myndinni eru frá vinstri Gróa Jóhannesdóttir, Ragnheiður
I. Bjarnadóttir, Elfar Úlfarsson og Eiríkur Jónsson. Á neðri myndunum eru Ástríður Jóhannesdóttir,
Steinunn Arnardóttir og Chris Wolfenssperger. Og hægra megin bregða kennararnir Simon Cooper og
David Parry á leik. - VS