Læknablaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 4
164 LÆKNAblaðið 2017/103
F R Æ Ð I G R E I N A R
4. tölublað ● 103. árgangur ● 2017
167
Ólafur Baldursson
Teymisvinna við
greiningu lungna-
krabbameins á
Landspítala skilar
árangri
Sjúklingar eiga rétt á að fá
álit frá þeim sérfræðingum
sem best þekkja til hverju
sinni, óháð deildum, sviðum,
vaktaskipulagi, kjarasamn-
ingum og öðrum þeim hindr-
unum af mannavöldum sem
geta staðið í vegi fyrir sam-
vinnu og öryggi sjúklinga.
171
Hrönn Harðardóttir, Unnur A. Valdimarsdóttir, Tómas Guðbjartsson,
Andrés Sigvaldason, Sigrún Helga Lund, Thor Aspelund, Sif Hansdóttir,
Steinn Jónsson
Greiningarferli lungnakrabbameins á Landspítala:
sjúklingamiðuð nálgun
Greiningarferlið felst í því að á rúmum sólarhring eru skipulagðar rannsóknir til grein-
ingar og stigunar á hugsanlegu lungnakrabbameini. Leitast er við að skrá sjúklinga í
greiningarferlið innan tveggja vikna frá tilvísun til lungnalæknis og er það í samræmi
við alþjóðlegar leiðbeiningar. Sjúklingurinn er kallaður inn í rannsóknir á sjúkrahúsinu
sem gerir ráð fyrir innlögn yfir nótt. Í hverju tilfelli fyrir sig er metið hvaða rannsóknir
þarf að framkvæma. Biðtími að greiningu og meðferð hér á landi er í samræmi við
alþjóðlegar ráðleggingar.
179
Bryndís Baldvinsdóttir, Haraldur Hauksson, Kristín Huld Haraldsdóttir
Gallblöðrukrabbamein á Íslandi 2004-2013
Einkenni gallblöðrukrabbameins eru ósértæk. Á fyrstu stigum sjúkdómsins er hann
oft einkennalaus og eru einkenni oft tengd útbreiddari sjúkdómi. Helstu einkenni sem
fylgja gallblöðrukrabbameini eru verkur ofanvert og hægra megin í kvið, ógleði, upp-
köst og þyngdartap. Hækkuð lifrargildi í blóði eru oft tengd útbreiddari sjúkdómi.
185
Árni Jón Geirsson, Sigríður Þórdís Valtýsdóttir, Andrés Sigvaldason,
Margrét Sigurðardóttir
Æxli af óþekktum toga: Tilfelli
Margir sjúkdómar sem lengi hafa verið þekktir undir ýmsum nöfnum hafa nú verið
endurgreindir sem IgG4-tengdir sjúkdómar. Sjúkdómurinn getur birst með marg-
víslegum hætti, frá einu eða fleiri líffærakerfum í senn og oftar en ekki frá mörgum
líffærum samtímis.
169
Helga Ögmundsdóttir
Doktorsnám við
læknadeild Háskóla
Íslands
Fáeinum dögum eftir að
læknadeild fagnaði 140 ára
afmæli læknanáms á Íslandi
fór fram 120. doktorsvörn-
in hjá Læknadeild eftir að
komið var á skipulögðu
doktorsnámi við deildina.
Það var árið 1994 og fyrsta
doktorsvörnin var strax árið
1995.
L E I Ð A R A R
Mynd 1. Flæðiskema rannsókna greiningarferlisins á Landspítalanum. TS: tölvu sneiðmynd.