Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.2017, Qupperneq 19

Læknablaðið - 01.04.2017, Qupperneq 19
LÆKNAblaðið 2017/103 179 R A N N S Ó K N Inngangur Gallblöðrukrabbamein eru sjaldgæf, eða um 0,5% af öllum krabba- meinum sem greind eru.1-3 Algengi gallblöðrukrabbameins er að nokkru leyti svæðisbundið á heimsvísu og er nýgengi þess um 35/100.000 í Chile, Japan og norðurhluta Indlands en hins vegar er það sjaldgæft mein á Vesturlöndum með nýgengi kringum 1,5/100.000.1,2,4-6 Gallblöðrukrabbamein er 2-6 sinnum algengara hjá konum en körlum.1,3 Helstu áhættuþættir sem tengjast mynd- un gallblöðrukrabbameins eru langvarandi bólga, kalkanir, separ (>1 cm) í gallblöðru, trefjunargallgangabólga (primary sclerosing cholangitis) ásamt meðfæddu afbrigði af inngangi bris- og gall- gangs í skeifugörn (pancreaticobiliary maljunction).1,2,7 Aðrir áhættu- þættir eru meðal annars offita, reykingar og sykursýki.1,8 Gall- steinar einir og sér hafa ekki verið taldir til áhættuþátta en þeir eru taldir tengjast langvarandi ertingu á slímhúð gallblöðru og bólgumyndun9 og flestir sjúklingar sem greinast með gallblöðru- krabbamein eru með gallsteina. Einkenni gallblöðrukrabbameins eru ósértæk. Á fyrstu stigum sjúkdómsins er hann oft einkennalaus og eru einkenni oft tengd útbreiddari sjúkdómi. Helstu einkenni sem fylgja gallblöðru- krabbameini eru verkur ofanvert og hægra megin í kvið, ógleði, Inngangur: Gallblöðrukrabbamein er um 0,5% allra krabbameina sem greinast. Horfur sjúklinga með gallblöðrukrabbamein eru almennt slæmar og skurðaðgerð er eini meðferðarmöguleikinn sem getur leitt til lækningar. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða algengi sjúkdómsins hérlendis og afdrif sjúklinga sem greindust á rannsóknartímabilinu. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn þýðisrannsókn. Listi yfir sjúklinga sem greindust með gallblöðrukrabbamein á Íslandi á árunum 2004-2013 var fenginn frá Krabbameinsskrá Íslands. Upplýsinga var aflað úr sjúkraskrám Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Eftirfylgd var að meðaltali 6 ár. Niðurstöður: Á rannsóknartímabilinu greindust 24 sjúklingar með gall- blöðrukrabbamein á Íslandi, 16 konur og 8 karlar. Átján voru greindir á Landspítala og sex á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Meðalaldur við grein- ingu var 73 ár. 18 eru látnir, meðallifun eftir greiningu voru 5 mánuðir. Sex (25%) eru enn á lífi og var meðallifun þeirra frá greiningu 3,7 ár. Kirtilfrumukrabbamein (adenocarcinoma) var algengasta æxlisgerðin (n=19). Þrír sjúklingar (3/24, 12,5%) gengust undir umfangsmeiri aðgerð í kjölfar greiningar á gallblöðrukrabbameini. Níu (9/24, 37,5%) sjúklingar voru með óskurðtækan sjúkdóm við greiningu og létust þeir að meðaltali innan tveggja mánaða eftir greiningu. Ályktun: Gallblöðrukrabbamein er sjaldgæft krabbamein á Íslandi og hefur slæmar horfur. Tæplega þriðjungur sjúklinga hafði ekki tengsl við Landspítala í kjölfar greiningar. Róttækar skurðaðgerðir í kjölfar greiningar voru fáar. Gallblöðrukrabbamein á Íslandi 2004-2013 Bryndís Baldvinsdóttir1 læknir, Haraldur Hauksson2 læknir, Kristín Huld Haraldsdóttir1 læknir 1Skurðlækningadeild Landspítala, 2skurðlækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Fyrirspurnum svarar Kristín Huld Haraldsdóttir, kristinh@landspitali.is https://doi.org/10.17992/lbl.2017.04.131 Greinin barst blaðinu 23. nóvember 2016, samþykkt til birtingar 20. febrúar 2017. uppköst og þyngdartap. Hækkuð lifrargildi í blóði eru oft tengd útbreiddari sjúkdómi.10,11 Æxlisvísar eru notaðir í greiningu og eftirfylgd sjúklinga með gallblöðrukrabbamein. Þeir æxlisvísar sem aðallega eru mældir hér á landi eru CA19-9 og CEA. Æxlisvísar eru hins vegar ósér- tækir og eykst næmi með útbreiddari sjúkdómi. Einkennalausir sjúklingar geta haft eðlilega æxlisvísa.10 Greining á gallblöðrukrabbameini getur verið tilviljunarkennd í kjölfar gallblöðrutöku og af þeim sem fara í gallblöðrutöku greinast um 0,3-2,0% með gallblöðrukrabbamein.12-15 Einungis greinist um þriðjungur sjúklinga með gallblöðrukrabbamein fyrir aðgerð16 og þar af eru 15-47% með skurðtækan sjúkdóm.17 Helm- ingur sjúklinga hefur eitlameinvörp. Fimm ára lifun sjúklinga með gallblöðrukrabbamein er 5% en meðallifun eftir greiningu eru 6 mánuðir.1,8 Algengasta æxlisgerð gallblöðrukrabbameins er kirtilfrumukrabbamein (adenocarcinoma), eða um 98% tilfella.1,11-13 Gallblöðrukrabbamein er algengast í efsta hluta gallblöðrunnar ( fundus) og dreifir sér oft með beinum vexti yfir í lifur þar sem engin himna (serosa) er milli gallblöðru og lifrar. Einnig dreifist það með beinum vexti niður í gallvegi, í sogæðakerfið og með vexti yfir í bláæðakerfi lifrar og aðlæg líffæri.18 Stigun æxlisins fyrir aðgerð á myndrannsóknum, svo sem ómskoðun, sneiðmynd, segulómskoðun og PET,19 er notuð til mats á möguleikum á um- fangsmeiri aðgerð í lækningaskyni (en bloc resection), þar sem fjar- lægð eru aðlæg lifrarhólf (segments), IVB og V, gallpípla (ductus cysticus), eitlastöðvar aðlægt gallblöðru og í ákveðnum tilvikum gallrás utan lifrar (ductus choledochus). Í nýlegum leiðbeiningum frá National Comprehensive Cancer Network (NCCN) er mælt með viðbótaraðgerð ef krabbameinið vex niður í vöðvalag gall- Á G R I P Meðferð við bráðum þvagsýrugigtarköstum Fyrirbyggjandi meðferð gegn þvagsýrugigtarkasti í upphafi meðferðar með þvagsýrulosandi lyfjum Lyf gegn þvagsýrugigt Colrefuz (Colchicin) – 500 míkrógramma töflur / 100 stykkja pakkningar A ct a v is / 6 1 9 0 2 1

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.