Læknablaðið - 01.04.2017, Page 30
190 LÆKNAblaðið 2017/103
■ ■ ■ Þröstur Haraldsson
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Það var eftirvænting í loftinu þegar
læknar fylltu Hringsal Landspítala einn
föstudagsmorgun í mars. Þangað var von á
Óttari Proppé heilbrigðisráðherra í tveggja
mánaða gamalli ríkisstjórn til skrafs og
ráðagerða um stöðu og horfur í þessum
stóra málaflokki. Hvað gat hann sagt
þeim, svona glænýr í embætti og fjarri því
að vera hokinn af reynslu á sviði heilbrigð-
ismála?
Ráðherra gekk í salinn ásamt aðstoðar-
fólki sínu, þeim Sigrúnu Gunnarsdóttur
og Unnsteini Jóhannssyni. Þá gat fundur
hafist og Reynir Arngrímsson formaður
læknaráðs spítalans ávarpaði ráðherra,
bauð hann velkominn og minnti á tveggja
ára gamalt samkomulag lækna og fyrri
ríkisstjórnar um að ráðast í átak til að bæta
heilbrigðisþjónustu „með virkum stuðn-
ingi lækna og öflugri þátttöku þeirra í
stefnumótun sem byggist á bættri starfsað-
stöðu og betri nýtingu fjármuna“ eins og
þar segir í 1. grein.
Reynir hélt áfram: „Allt eru þetta mál
sem enn brenna á þjóðinni og okkur
læknum, mál sem þú ráðherra heilbrigð-
ismála færð í fangið. Skipulagsmál innan
heilbrigðiskerfisins, aðgengi að læknis-
þjónustu, uppbyggingin og endurreisnin
ásamt fullnægjandi og tryggri fjármögnun
með langtíma fjárhagsáætlun. Hjúkrunar-
rýmin og heimaþjónustan og lyfjamálin.
Heilsugæslu í hers höndum. Niðurstöð-
ur úttektar OECD sem sýnir skelfilega
frammistöðu okkar á síðustu árum í inn-
viðauppbyggingu þar sem við spilum í
neðstu deild.
Afgreiðsla síðustu fjárlaga og bar-
átta fyrir fjárframlögum til Landspítala
og ummæli forstjóra spítalans í þeirri
orrahríð bendir til að enn sé nokkuð í land
að markmið yfirlýsingarinnar náist. Að
minnsta kosti er útlit fyrir að ekki verði
stór framfaraskref stigin á yfirstandandi
ári, þó á sumum sviðum þokist mikilvæg
mál áfram.“ Þannig brýndi hann ráðherra
og vísaði meðal annars í nýlega skýrslu
um stöðu Landspítala sem ráðuneyti hans
gaf út á síðastliðnu hausti.
Í brattri lærdómskúrfu
Óttarr Proppé fékk svo orðið og fagnaði
þessu tækifæri til að ræða við lækna.
Hann sagðist vera í nokkuð sérkennilegri
stöðu sem oddviti síns flokks og um
leið ráðherra í þessu annasama embætti.
En þetta hafi hann viljað og því fylgdi
afar brött lærdómskúrfa sem hann væri
enn staddur í. – Ég er að læra á landslag
íslenska heilbrigðiskerfisins og erfi þar
mörg verkefni. Sem stendur erum við að
móta fjármálaáætlun til næstu 5 ára. Við
njótum þess að efnahagur landsins er góð-
ur um þessar mundir en þurfum að varast
að bæta ekki of miklu við þá þenslugleði
sem ríkir, sagði hann.
Hann vitnaði í stjórnarsáttmálann
þar sem fram kæmi skýr vilji um að
hraða uppbyggingu nýs meðferðarkjarna
Landspítala og taka heilbrigðismál út fyrir
sviga við gerð fjárlaga. Þótt stjórn hans
hafi ekki verið sest að völdum þegar fjár-
lög voru afgreidd sjái þessa þó stað þar
sem almenn útgjöld hækka um 8% á milli
ára en útgjöld til heilbrigðismála um 10%.
En það væri af mörgu að taka og bygging
spítalans bara eitt verkefni af mörgum sem
þyrfti að sinna. Nefndi hann þar til öldr-
unarþjónustu, heimaþjónustu, heilsugæsl-
una og geðheilbrigðismál sem öll þyrftu á
auknu fjármagni að halda.
Ráðherra sagðist vera hliðhollur spítal-
anum og vilja ýta undir uppbygginguna.
En samhliða því þyrfti starfsemin að halda
áfram um sinn í gömlu húsnæði og þar
þyrfti að endurnýja og bæta tækjabúnað-
inn. – Góðu fréttirnar eru þær að hér er
stunduð öflug starfsemi í miklu húsnæði,
þrátt fyrir að það leki sums staðar, sagði
Óttarr.
Í lokin svaraði hann tilvitnun Reynis
í skýrsluna Lykill að fullnýtingu tækifæra
Landspítalans á þann hátt að hann og
aðstoðarmennirnir hefðu ákveðið að
hefja nýtt átak í ráðuneytinu sem þau
kalla „Upp úr skúffunum“. Það felst í því
að í stað þess að skipa fleiri starfs- og
stefnumótunarhópa ætluðu þau að skoða
þær mörgu skýrslur sem gerðar hafa verið
undanfarin ár um vanda heilbrigðiskerfis-
ins, leita að góðum hugmyndum en fleygja
þeim vondu. Hvatti hann lækna og annað
heilbrigðisstarfsfólk til að hjálpa til við
þetta starf, koma með ábendingar og ráð
Þetta eru orðin,
nú haldið þið mér
við verkin!
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra ræddi
við troðfullan sal af læknum á fundi
læknaráðs Landspítalans