Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 30

Læknablaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 30
190 LÆKNAblaðið 2017/103 ■ ■ ■ Þröstur Haraldsson U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Það var eftirvænting í loftinu þegar læknar fylltu Hringsal Landspítala einn föstudagsmorgun í mars. Þangað var von á Óttari Proppé heilbrigðisráðherra í tveggja mánaða gamalli ríkisstjórn til skrafs og ráðagerða um stöðu og horfur í þessum stóra málaflokki. Hvað gat hann sagt þeim, svona glænýr í embætti og fjarri því að vera hokinn af reynslu á sviði heilbrigð- ismála? Ráðherra gekk í salinn ásamt aðstoðar- fólki sínu, þeim Sigrúnu Gunnarsdóttur og Unnsteini Jóhannssyni. Þá gat fundur hafist og Reynir Arngrímsson formaður læknaráðs spítalans ávarpaði ráðherra, bauð hann velkominn og minnti á tveggja ára gamalt samkomulag lækna og fyrri ríkisstjórnar um að ráðast í átak til að bæta heilbrigðisþjónustu „með virkum stuðn- ingi lækna og öflugri þátttöku þeirra í stefnumótun sem byggist á bættri starfsað- stöðu og betri nýtingu fjármuna“ eins og þar segir í 1. grein. Reynir hélt áfram: „Allt eru þetta mál sem enn brenna á þjóðinni og okkur læknum, mál sem þú ráðherra heilbrigð- ismála færð í fangið. Skipulagsmál innan heilbrigðiskerfisins, aðgengi að læknis- þjónustu, uppbyggingin og endurreisnin ásamt fullnægjandi og tryggri fjármögnun með langtíma fjárhagsáætlun. Hjúkrunar- rýmin og heimaþjónustan og lyfjamálin. Heilsugæslu í hers höndum. Niðurstöð- ur úttektar OECD sem sýnir skelfilega frammistöðu okkar á síðustu árum í inn- viðauppbyggingu þar sem við spilum í neðstu deild. Afgreiðsla síðustu fjárlaga og bar- átta fyrir fjárframlögum til Landspítala og ummæli forstjóra spítalans í þeirri orrahríð bendir til að enn sé nokkuð í land að markmið yfirlýsingarinnar náist. Að minnsta kosti er útlit fyrir að ekki verði stór framfaraskref stigin á yfirstandandi ári, þó á sumum sviðum þokist mikilvæg mál áfram.“ Þannig brýndi hann ráðherra og vísaði meðal annars í nýlega skýrslu um stöðu Landspítala sem ráðuneyti hans gaf út á síðastliðnu hausti. Í brattri lærdómskúrfu Óttarr Proppé fékk svo orðið og fagnaði þessu tækifæri til að ræða við lækna. Hann sagðist vera í nokkuð sérkennilegri stöðu sem oddviti síns flokks og um leið ráðherra í þessu annasama embætti. En þetta hafi hann viljað og því fylgdi afar brött lærdómskúrfa sem hann væri enn staddur í. – Ég er að læra á landslag íslenska heilbrigðiskerfisins og erfi þar mörg verkefni. Sem stendur erum við að móta fjármálaáætlun til næstu 5 ára. Við njótum þess að efnahagur landsins er góð- ur um þessar mundir en þurfum að varast að bæta ekki of miklu við þá þenslugleði sem ríkir, sagði hann. Hann vitnaði í stjórnarsáttmálann þar sem fram kæmi skýr vilji um að hraða uppbyggingu nýs meðferðarkjarna Landspítala og taka heilbrigðismál út fyrir sviga við gerð fjárlaga. Þótt stjórn hans hafi ekki verið sest að völdum þegar fjár- lög voru afgreidd sjái þessa þó stað þar sem almenn útgjöld hækka um 8% á milli ára en útgjöld til heilbrigðismála um 10%. En það væri af mörgu að taka og bygging spítalans bara eitt verkefni af mörgum sem þyrfti að sinna. Nefndi hann þar til öldr- unarþjónustu, heimaþjónustu, heilsugæsl- una og geðheilbrigðismál sem öll þyrftu á auknu fjármagni að halda. Ráðherra sagðist vera hliðhollur spítal- anum og vilja ýta undir uppbygginguna. En samhliða því þyrfti starfsemin að halda áfram um sinn í gömlu húsnæði og þar þyrfti að endurnýja og bæta tækjabúnað- inn. – Góðu fréttirnar eru þær að hér er stunduð öflug starfsemi í miklu húsnæði, þrátt fyrir að það leki sums staðar, sagði Óttarr. Í lokin svaraði hann tilvitnun Reynis í skýrsluna Lykill að fullnýtingu tækifæra Landspítalans á þann hátt að hann og aðstoðarmennirnir hefðu ákveðið að hefja nýtt átak í ráðuneytinu sem þau kalla „Upp úr skúffunum“. Það felst í því að í stað þess að skipa fleiri starfs- og stefnumótunarhópa ætluðu þau að skoða þær mörgu skýrslur sem gerðar hafa verið undanfarin ár um vanda heilbrigðiskerfis- ins, leita að góðum hugmyndum en fleygja þeim vondu. Hvatti hann lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk til að hjálpa til við þetta starf, koma með ábendingar og ráð Þetta eru orðin, nú haldið þið mér við verkin! Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra ræddi við troðfullan sal af læknum á fundi læknaráðs Landspítalans

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.