Læknablaðið - 01.04.2017, Side 35
LÆKNAblaðið 2017/103 195
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
LANDSPÍTALI ... ÞJÓNUSTA VIÐ LÍFIÐ SJÁLFT
NÁMSSTÖÐUR DEILDARLÆKNA Í ÖLDRUNARLÆKNINGUM VIÐ LANDSPÍTALA
Lausar eru til umsóknar námsstöður deildarlækna í öldrunarlækningum við Landspítala. Um
fullt starf og nám er að ræða og eru stöðurnar veittar til eins árs frá 1. september 2017 eða eftir
samkomulagi en möguleiki er á skemmri eða lengri ráðningu.
Starfsnámið er fjölbreytt og tekur til allra þátta öldrunarlækninga. Einnig er starfsnámið gott
innlegg til sérnáms í öldrunar-, heimilis- og lyflækningum og fleiri greinum sem og góð endur-
menntunarstaða fyrir starfandi heimilislækna. Þá má benda á möguleikann á starfsþjálfun í
öldrunarlækningum sem viðbótarsérgrein við heimilislækningar, sem er nýjung í sérfræði-
reglugerð lækna á Íslandi. Starfsvettvangur er á Landakoti og í Fossvogi. Vaktir eru á Landakoti.
Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2017
Sjá nánari upplýsingar um starfið á heimasíðu Landspítala; www.landspitali.is/mannaudur
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra
fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi.
Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
sóknir ferðafólks á útivistarsvæðið vestast
á Nesinu.
– Ég komst að þeirri niðurstöðu að
þetta hús væri of stórt fyrir Lækninga-
minjasafnið eitt en með því að tryggja
meiri nýtingu kæmi það læknafélögunum
til góða, sagði Halldór Björn Runólfsson.
Enn tefst málið …
Að sögn þeirra Högna og Halldórs Björns
hefur þessi hugmynd um fjölnotahús verið
kynnt fyrir ýmsum framámönnum, bæði
ráðherrum, safnamönnum, fulltrúum
Seltjarnarnesbæjar og fólki sem tengist
veitingarekstri, og alls staðar fengið góðar
undirtektir. Ýmislegt hefur þó orðið til að
tefja fyrir.
– Kosningarnar þýddu það að öllum
ákvörðunum varð að slá á frest og eftir
það tók við óvenju tímafrek stjórnarmynd-
un, segir Högni. – Svo er Halldór Björn
hættur en arftaki hans, Harpa Þórsdóttir,
kemur ekki til starfa fyrr en í maí. Við
höfum reynt að reka á eftir því að fá fund
með núverandi fjármálaráðherra, Benedikt
Jóhannessyni, en það hefur gengið erfið-
lega að finna tíma. Við vitum hins vegar
að bæði hann og forsætisráðherra sýna
þessum hugmyndum velvilja, segir hann.
Þá er bara að bíða og sjá hvað setur,
erum við ekki orðin vön því?