Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.2017, Page 36

Læknablaðið - 01.04.2017, Page 36
196 LÆKNAblaðið 2017/103 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Snemma í mars hlutu tveir barnalæknar viðurkenningu fyrir árangur í rannsókn- um úr Verðlaunasjóði Óskars Þórðarsonar læknis. Rannsóknir Orra Þórs Ormarsson- ar sérfræðings í barnaskurðlækningum beinast að hægðatregðu í börnum en Valtýr Stefánsson Thors sérfræðingur í barnalækningum og smitsjúkdómum barna rannsakaði veiru- og bakteríusýk- ingar í nefkoki barna. Báðir starfa þeir á Barnaspítala Hringsins. Í frétt frá Háskóla Íslands segir svo um rannsóknir þeirra: „Orri Þór Ormarsson hefur kannað öryggi og hægðalosandi áhrif stíla, sem innihalda fríar fitusýrur ( free fatty acids) fengnar úr fiskiolíu, í meðferð við hægða- tregðu hjá börnum og til tæmingar fyrir stutta ristilspeglun. Hægðatregða er ein algengasta orsök kviðverkja hjá börnum og er algengasta meðferðin að gefa lyf til inntöku en stundum eru lyf um endaþarm gefin samhliða. Skortur er á klínískum rannsóknum á þeim endaþarmslyfjum sem börn fá og sama má segja um rann- sóknir á úthreinsun fyrir bugðuristils- og endaþarmsspeglun, en ekki er vitað hvaða meðferð til úthreinsunar er best. Verkefnið fól í sér þrjár klínískar rann- sóknir á börnum og fullorðnum og eina faraldsfræðilega rannsókn á börnum með hægðatregðu. Hundrað og sextíu manns tóku þátt í rannsóknunum sem sýndu að stílarnir, sem til skoðunar voru, þolast vel og virka til meðferðar á börnum með hægðatregðu og til úthreinsunar fyrir speglanir í bugðuristli og endaþarmi. Faraldsfræðileg rannsókn leiddi í ljós að 40% barna með hægðatregðu fengu aftur hægðatregðu, 27% þeirra þurftu aftur að leita læknisaðstoðar og 33% fengu lyf gefið um endaþarm á ný. Niðurstaða rann- sóknanna sýnir jafnframt að lífsstílsþættir tengjast hægðatregðu í börnum. Í doktorsritgerð sinni, „The effects of viral infections on upper respiratory tract bacterial colonisation in children – observational and interventional stu- dies“ fjallar Valtýr Stefánsson Thors um veirusýkingar í efri loftvegum hjá ungum börnum og hvernig þær hafa áhrif á bakt- eríur sem jafnan eru til staðar í nefkokinu. Við rannsóknirnar var notast við svo- kallaða magnmælanlega kjarnsýrumögn- un (polymerase chain reaction - PCR) til að greina veirur og 6 bakteríutegundir og þéttni þeirra. Í rannsóknunum var samtals rúmlega 1300 sýnum safnað frá 312 börnum. Helstu niðurstöður voru þær að tíðni bakteríanna í nefkoki var að mestu leyti óbreytt við veirusýkingar en að þéttni baktería var nánast alltaf meiri í sýnum þar sem líka fannst veirusýking. Þessi aukna þéttni stuðlar líklega að auknu smiti milli barna, sérstaklega þar sem samneyti þeirra er náið. Þessar niðurstöður gætu varpað ljósi á samspil ónæmiskerfisins, veirusýkinga og baktería.“ Tveir barnalæknar verðlaunaðir fyrir rannsóknir ■ ■ ■ Þröstur Haraldsson Myndin er tekin við afhendingu viðurkenninganna. Frá vinstri: Engilbert Sigurðsson, forseti læknadeildar, Valtýr Stefánsson Thors, sérfræðingur í barnalækningum, Margaret Scheving Thorsteinsson, ásamt dóttur sinni Guðrúnu Scheving Thorsteinsson, Sif Ormarsdóttir, systir Orra Þórs Ormarssonar verðlaunahafa, Jón Atli Benediktsson, rektor Há- skóla Íslands og Ásgeir Haraldsson, prófessor í barnalækningum. Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.