Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.2017, Page 38

Læknablaðið - 01.04.2017, Page 38
198 LÆKNAblaðið 2017/103 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Um miðjan mars var efnt til málþings um tóbaksvarnir í Hörpu undir heitinu Hættu nú alveg! Að því stóðu Háskóli Íslands, Læknafélag Íslands, Krabba- meinsfélagið og landlæknir. Tveir er- lendir fyrirlesarar fluttu erindi, greint var frá rannsókn á kostnaði íslensks samfélags af reykingum og heilbrigðis- ráðherra ávarpaði samkomuna, en þurfti svo að flýta sér á annan fund. Í stuttu ávarpi sem hann flutti kom fram að nýtt frumvarp um rafrettur verði vænt- anlega lagt fram á Alþingi á næstu vikum og ef marka má það sem á eftir fór fer ekki hjá því að margir bíði spenntir eftir því hvernig þar verður tekið á þessari nýjung sem hefur breiðst hratt út á undanförn- um árum. En eins og fram hefur komið í fréttum hefur dregið ört úr reykingum á undanförnum árum hér á landi, svo ört að áðurnefnd könnun Hagfræðistofnunar á kostnaði samfélagsins við reykingar studdist við gamlar og úreltar tölur. Þar var sagt að 12% Íslendinga reyki daglega, en nýjustu tölur sýna að sú tala hefur lækkað í 10%. Svo bætist raunar við álíka stór hópur sem stundar það sem stunduð er kallað „félagslegar reykingar“, það er reykir bara á tyllidögum og í mannfögn- uðum. Að gera út á smugurnar í skattalögunum Því er sem sé ekki að leyna að Íslendingar hafa náð umtalsverðum árangri í tóbaks- vörnum, eru jafnvel komnir fram úr Sví- um sem enn glíma við munntóbakið þótt reykingar hafi minnkað mikið. Spænski hagfræðingurinn Ángel López frá háskól- anum í Cartagena lýsti því skiljanlegum áhyggjum sínum af því hvað hann gæti sagt þessari þjóð sem stæði sig svona vel. Eins og titill hans gefur til kynna er hann upptekinn af fjárhagslegri hlið tóbaksvarna og hann ætlaði að brýna fyrir okkur ákveðna breytingu sem þyrfti að gera á skattlagningu tóbaksvara, en fann svo út rétt áður en hann kom til landsins að Íslendingar breyttu skattlagningunni í rétta átt um síðustu áramót! Hann lýsti ágætlega átökum tóbaksfyr- irtækja gegn öllum hömlum á útbreiðslu tóbaks á Spáni og víðar í heiminum sem er síður en svo á undanhaldi. Meðal annars þurftu tóbaksfyrirtækin að bregðast við efnahagshruninu sem olli því að ríkis- stjórnir margra landa ákváðu að draga úr fjárlagahallanum með því að auka skatt- lagningu á tóbaki. Í þeirri orrahríð fundu Að reykja eða rafreykja, þar er efinn Heilbrigðisráðherra boðar nýtt frumvarp um rafrettur sem voru til umræðu á málþingi um tóbaksvarnir ■ ■ ■ Þröstur Haraldsson Charlotte Pisinger í pallborði að loknum erindum. Með henni eru Birgir Jakobsson landlæknir og hinir frummælendurnir tveir, Ángel Lopez og Jónas Atli Gunnarsson frá Hag- fræðistofnun Háskóla Íslands.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.