Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.2017, Page 39

Læknablaðið - 01.04.2017, Page 39
LÆKNAblaðið 2017/103 199 tóbaksfyrirtækin leið framhjá skattagleði stjórnvalda sem höfðu einblínt á tilbúnar sígarettur í pökkum. Álögurnar á reyktóbak sem menn gátu notað til að rúlla sínar eigin sígarettur stóðu hins vegar í stað svo þar var sóknarfæri. Þessu hafði hann ætlað að koma til skila við Ís- lendinga, sem sé að búa ekki til smugur fyrir tóbaks- framleiðendur í skattakerfinu með því að vera með mis- háa skatta á hinum ýmsu gerðum tóbaks. Nema hvað íslensk stjórnvöld höfðu einmitt breytt reglugerðinni um síðustu áramót svo þar eru þessar smugur hvergi finnanlegar. Æsingur á málþingum vísindamanna Það sem viðstaddir hlýddu á með hvað mestri andakt var þó erindi danskrar konu, Charlotte Pisinger, en hún hefur starfað að rannsóknum á sviði reykinga og tóbaksvarna undanfarna tvo áratugi. Hún fjallaði um rafretturnar sem valdið hafa miklum átökum og umróti á síðustu árum. Hún sagðist aldrei hafa upplifað annan eins æsing í fólki síðan hún hóf afskipti af tóbaksvörn- um og í umræðunum um rafretturnar. – Dagfarsprúðir vísindamenn og starfsfólk lýðheilsustofnana öskrar hvert á annað á málþingum, sagði hún. – Ég var spennt fyrir rafrettunum þegar þær komu fram en með tímanum hafa áhyggjur mínar aukist. Staðhæfingar rafrettuframleiðenda eru á þá leið að þetta sé eiginlega bara hreint vatn, gufa, með góðu ávaxtabragði, hættulaust fyrir nærstadda, heilsusam- legur valkostur við reykingar, stórkostleg aðstoð við reykingafólk sem vill hætta að reykja og kemur í veg fyrir að ungt fólk byrji að reykja. Auglýsingarnar ganga flestar út á það sama og tóbak, þetta auðveldar þér að ná þér í elskendur eða maka, styrkir félagslega stöðu þína og eykur sjálfstraust. Eitt hefur svo bæst við: ör- yggið. Nú geturðu óhræddur reykt með barnið þitt í fanginu, sagði Charlotte. Þörf á meiri og betri rannsóknum Hún hefur á undanförnum árum unnið að safngrein- ingu á þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið á áhrif- um rafretta, fyrst á eigin vegum en frá 2014 á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofunarinnar, WHO. Í þeirri vinnu hefur hún greint vel á þriðja hundrað rannsókna, en er þó engan veginn komin að endanlegri niðurstöðu um það hvort rafrettur eru jákvæð viðbót við vöruframboðið eða lítið skárri en tóbakið sjálft sem er með því eitraðasta sem manninum hefur dottið í hug að setja ofan í sig. Hún hefur komist að því að mikil þörf er fyrir frek- ari – og betri – rannsóknir á rafrettum áður en dómur er kvaddur upp. Fyrirbærið er það nýtt að ekki hefur verið hægt að gera rannsóknir á langtímaáhrifum þess

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.