Læknablaðið - 01.04.2017, Qupperneq 42
202 LÆKNAblaðið 2017/103
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Félag íslenskra lyflækna er eitt stærsta
sérgreinafélag íslenskra lækna og telur
um 200 félagsmenn. Félagið er komið
á virðulegan aldur og hélt upp á 70 ára
afmæli sitt á síðasta ári. Þá urðu einnig
formannaskipti en Runólfur Pálsson,
sem gegnt hafði embættinu frá því um
aldamótin, lét af embætti og tók við sem
Forseti Evrópusamtaka lyflækna. Runólfur
er fyrsti Íslendingurinn sem gegnir þessu
forsetaembætti en Davíð O. Arnar tók við
formennskunni hér heima.
Starfsemi sérgreinafélaga lækna er
ekki alltaf mjög sýnileg. Félag íslenskra
lyflækna hefur reyndar staðið fyrir Lyf-
læknaþingi sem haldið er annað hvert
ár. Það fór fram í desember síðastliðnum
og var það 22. í röðinni. Þessi þing eru
með stærri innlendum læknaþingum sem
haldin eru og hafa löngu sannað sig sem
vettvangur fyrir kynningu á vísindarann-
sóknum á sviði lyflækninga.
– Margir af okkar fremstu vísinda-
mönnum hafa einmitt stigið sín fyrstu
skref í kynningu rannsóknarverkefna á
þessu þingi. Þingið hefur vaxið að um-
fangi og nýtist einnig vel til að kynna
nýjungar í faginu með málþingum og yf-
irlitsfyrirlestrum, sem og til að ræða álita-
efni innan fagsins. Á þinginu í desember
var þemað „Lyflækningar framtíðarinnar“.
Þar var meðal annars rætt um spítala
framtíðarinnar, hvernig stór gagnasöfn
og tölvuforrit gætu nýst við klíníska þjón-
ustu, rætt um göngudeildarþjónustu lyf-
lækna og hvernig menn sæju hana þróast
á næstu árum, sagði Davíð þegar Lækna-
blaðið hitti hann nýverið á hjartadeild
Landspítala.
Alþjóðleg vottun framhaldsmenntunar í
lyflækningum mikilvægt skref
Eins og áður segir eru lyflækningar ein
af meginstoðum læknisfræðinnar og
undir þeim hatti má finna fjölmargar
undirsérgreinar, eins og hjarta-, lungna-
og meltingarlækningar, gigtlækningar,
smitsjúkdóma-, innkirtla-, krabbameins-
lækningar og fleira. Þessar greinar
eru auðvitað að mörgu leyti ólíkar og
viðfangsefnin fjölþætt. En hvað geta þess-
ar greinar sameinast um, hver eru helstu
verkefni Félags íslenskra lyflækna?
– Þau eru í raun fjölmörg. Stærsta
verkefnið hefur kannski verið að halda
Lyflæknaþing, eins og áður hefur komið
fram. En það hefur einnig verið ákveðin
endurreisn í lyflækningum á alþjóðavísu á
síðustu árum. Það er sífellt meiri þörf fyrir
lækna með breiða þekkingu og almennari
nálgun gagnvart sjúklingum. Lyflæknar fá
gjarnan þessa þjálfun í sínu sérnámi. Félag
íslenskra lyflækna getur klárlega stutt við
þessa jákvæðu þróun fagsins. Eins og við
ræddum í upphafi er forseti Evrópusam-
taka lyflækna Íslendingur og mikilvægt
fyrir félagið að styðja við hann í því starfi.
Ennfremur hefur verið verulegur upp-
gangur í framhaldsmenntun í lyflækning-
um hér á landi. Fyrir allmörgum árum var
byrjað með formlega framhaldsmenntun
hér á Landspítala sem lofaði góðu en
svo kom talsverð dýfa í það prógram,
ýmissa hluta vegna. Nú er hins vegar
heldur betur búið að blása lífi í það og
endurskipuleggja kennslu deildarlækna
á lyflækningasviði allverulega. Samfara
því hefur verið vaxandi áhugi unglækna á
lyflækningum. Þá var ákveðið að reyna að
treysta námið frekar í sessi með samstarfi
við Royal College of Physicians í Bretlandi
sem hefur reynst mikil lyftistöng. Nú geta
læknar lokið þriggja ára sérfræðinámi í
lyflækningum hérlendis og fengið það
vottað samkvæmt alþjóðlegum staðli sem
erlend háskólasjúkrahús viðurkenna. Áður
var það að vissu leyti tilviljunum háð
hvort menn fengu framhaldsnám hér á
landi viðurkennt utan landsteinanna.
Það breytir miklu fyrir íslensk
sjúkrahús að bjóða upp á fyrstu skref
framhaldsmenntunar hérlendis því með
þessu móti getum við haldið lengur í
unglækna hér heima. Oft hefur verið
bent á að íslenskt heilbrigðiskerfi njóti
starfskrafta lækna meðan þeir eru í
sérnámi að mjög takmörkuðu leyti þar
sem þeir taka stærstan hluta sérfræði-
námsins erlendis. Læknar í framhalds-
námi gegna mjög mikilvægum hlutverk-
um á erlendum háskólasjúkrahúsum hvað
varðar klíníska þjónustu, vísindastörf og
kennslu. Með því að njóta starfskrafta
unglækna lengur verður Landspítali líkari
erlendum sjúkrahúsum að þessu leyti.
Við höfum orðið vör við mikinn áhuga
unglækna á þessu námi og það gerir starf
okkar tvímælalaust áhugaverðara þegar
mönnun er góð af unglæknum á lyflækn-
ingasviðinu. Félag íslenskra lyflækna
getur sem fagleg samtök bæði stutt við
uppbyggingu námsins og veitt því faglegt
aðhald, svo sem við úttekt á náminu og
álitsgjöf um það.
Það má spyrja sig hvort ekki sé orðið
tímabært að auka hlut sérgreinafélag-
anna í skipulagi læknasamtakanna. Á
undanförnum árum hefur Læknafélag
Vaxandi þörf fyrir almenna
og víðtæka nálgun
gagnvart sjúklingum
■ ■ ■ Þröstur Haraldsson
Rætt við Davíð O.
Arnar sem er nýr
formaður Félags
íslenskra lyflækna og
nýráðinn yfirlæknir
hjartalækninga á
Landspítala