Fréttablaðið - 11.01.2018, Síða 2

Fréttablaðið - 11.01.2018, Síða 2
Veður Vaxandi suðaustanátt í dag. Hvass- viðri eða stormur með rigningu síð- degis og í kvöld, fyrst suðvestan til á landinu. Búist er við mikilli rigningu suðaustanlands um kvöldið. sjá síðu 28 íþróttir Stjórn KSÍ samþykkti einróma á stjórnarfundi sínum á þriðjudag að sambandið myndi borga fyrir tíu úr stuðningsmanna- hópi Tólfunnar til að styðja við íslenska landsliðið í knattspyrnu á meðan Heimsmeistaramótið í Rúss- landi fer fram. „Við gerum okkur grein fyrir hvað Tólfan gegnir mikilvægu hlut- verki fyrir hinn almenna stuðn- ingsmann,“ segir Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ. Klara segir að fulltrúar KSÍ fundi í dag með forsvarsmönnum Tólf- unnar til að útfæra samkomulagið. „Við eigum eftir að fá frekari upp- lýsingar frá Rússlandi um stuðnings- mannasvæðin eða Fan Zone og sam- komulagið mun því eitthvað taka mið af því hvernig þetta verður allt saman,“ segir Klara Í aðdraganda Evrópumótsins í Frakklandi fóru nokkrir forsvars- menn Tólfunnar til Frakklands til að sitja fundi með öðrum stuðnings- mannasveitum þar sem línurnar voru lagðar. Klara segir að sam- komulagið nái ekki til þess heldur aðeins mótsins sjálfs sem hefst eins og flestir vita 16. júní þegar leikið verður gegn Lionel Messi og félög- um í landsliði Argentínu. „KSÍ mun allavega greiða fyrir tíu tólfur og þeir þurfa að meta hve marga trommuleikara og annað þarf á hvern leik. Það er ekki mitt að meta,“ segir Klara. – bb Tíu tólfur fá frítt til Rússlands KSÍ kann vel að meta Tólfuna. FréTTablaðið/anTon brinK „Við höfum klárlega fundið fyrir mikilli aukningu og sífellt fleiri eru að koma til að klifra hjá okkur,“ segir Benjamín Mokry, framkvæmdastjóri Klifurhússins. Íþróttafélagið flutti fyrir fjórum árum í nýtt 800 fermetra húsnæði í Ármúla sem Benjamín segir hálfpartinn sprungið utan af starf- seminni. Erfitt sé að finna fullkomið athvarf fyrir klifur. Það þyrfti helst að vera um 1.000 fermetrar og með 12 metra lofthæð. FréTTablaðið/Vilhelm Klifurköttum fjölgar ört N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Amadeus borðstofuhúsgögn Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Komið og skoðið úrvalið lögreglumál Tveir íslenskir karl- menn á þrítugsaldri voru úrskurð- aðir í gæsluvarðhald í fyrradag vegna gruns um innflutning á tals- verðu magni af fíkniefnum. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Sérsveit ríkislögreglustjóra fylgdi lögreglunni á mánudag á tvo staði þar sem mennirnir voru hand- teknir. Samkvæmt frétt Stöðvar 2 var annar  handtekinn á veitinga- staðnum Hvíta riddaranum í Mos- fellsbæ. Á svipuðum tíma réðst sérsveit ríkislögreglustjóra inn í húsnæði Skáksambands Íslands í Faxafeni og handtók mann sem var þar innan- dyra. Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lög- reglu, segir talið að  starfsmenn Skáksambandsins tengist ekki mál- inu. – gar Tvær handtökur vegna fíkniefna samfélag Verktakafyrirtæki í Mos- fellsbæ hefur skotið skjólshúsi yfir fjölskylduna sem missti allt sitt þegar timburhús hennar, Reykja- braut í Mosfellsbæ, brann til kaldra kola aðfaranótt þriðjudags. Fjölskyldan hefur búið á gisti- heimili frá því hún voru útskrifuð af sjúkrahúsi. Vonir standa til að þau geti flutt strax í dag í einbýlis- hús sem verktakafyrirtækið lánar fjölskyldunni tímabundið á meðan leitað er að varanlegu húsnæði fyrir hana. Þetta staðfestir Nanna Vilhelmsdóttir, nágranni  þeirra, sem hóf söfnun á nauðsynjum fyrir fjölskylduna, í samstarfi við Rauða krossinn í Mosfellsbæ. „Söfnunin hefur gengið framar vonum,“ segir Nanna en hún var í húsi Rauða krossins í Þverholti í gær og tók á móti gjöfum til fjöl- skyldunnar. „Núna þurfum við að heyra aftur í því fólki sem var að bjóða húsbúnað og húsgögn en ég afþakkaði allt slíkt í gær,“ segir Nanna og segist ekki hafa þorað að taka við húsgögnum og húsbúnaði enda ekki legið fyrir hve fljótt húsnæðisvandi fjölskyld- unnar leystist. Hún lýsir ánægju með að húsnæði hafi fundist jafn fljótt og raun ber vitni. Nanna segir að börnin hafi þegar fengið vilyrði fyrir kojum en hjónin vanti rúm og elsta soninn sem er um tvítugt vanti einnig rúm. „Svo vantar auðvitað bara allt til heimilishalds- ins. Það er búið að bjóða potta- og hnífasett en þau eru auðvitað alls- laus að mestu.“ Nanna segir að börnin séu orðin býsna vel útbúin í bili með fatnað og þess háttar en enn þá vanti mjög föt á karlmennina. Þá hefur fjölskyldan einnig fengið framlög í formi gjafakorta og inneigna í matvöruverslunum og Nanna segir þessar gjafir nýtast afar vel. Aðspurð segir hún slíkar gjafir allar vera frá einstaklingum. En þó eru líka fyrirtæki að láta af hendi rakna. Þannig fái fjölskyldan bæði síma og spjaldtölvur frá fyrir- tækjum. Nanna verður í húsi Rauða kross- ins eftir hádegi í dag og tekur á móti framlögum og gjöfum til fjölskyld- unnar. Hjónin sjálf eru yfir sig þakklát fyrir allan stuðninginn. Að sögn fjöl- skylduvinar sem Fréttablaðið ræddi við vilja þau koma á framfæri þakk- læti til allra sem hafa stutt þau og ekki síst mikinn andlegan stuðning sem þau hafa fengið frá foreldrum, vinum og vandamönnum. adalheidur@frettabladid.is Fjölskylda úr eldsvoða í húsaskjól hjá verktaka Verktakafyrirtæki í Mosfellsbæ lánar fjölskyldunni sem missti allt sitt í bruna í Mosfellsbæ hús til að búa í næstu mánuði. Stefnir að því að flytja inn í dag. Söfnun fyrir fjölskylduna gengur vel. Enn vantar þó húsbúnað og húsgögn. hús fjölskyldunnar brann til grunna aðfaranótt þriðjudags. FréTTablaðið/ernir Núna þurfum við að heyra aftur í því fólki sem var að bjóða húsbúnað og húsgögn en ég afþakkaði allt slíkt í gær. Nanna Vilhelms- dóttir, nágranni brunafjölskyld- unnar í Mosfellsbæ 1 1 . j a n ú a r 2 0 1 8 f i m m t u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 1 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E B 6 -D 0 8 0 1 E B 6 -C F 4 4 1 E B 6 -C E 0 8 1 E B 6 -C C C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.