Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2018, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 11.01.2018, Qupperneq 24
Nýjast Maltbikar karla, undanúrslit KR - Breiðablik 90-71 KR: Kristófer Acox 18/11 fráköst, Jón Arnór Stefánsson 16, Sigurður Þorvaldsson 13, Darri Hilmarsson 12, Jalen Jenkins 9/9 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 7, Pavel Ermolinskij 5/12 fráköst/13 stoðs., Björn Kristjánsson 5, Zaccery Carter 3, Andrés Ísak Hlynsson 2. Breiðablik: Jeremy Smith 29, Árni Elmar Hrafnsson 14, Snorri Vignisson 14/15 frá- köst, Halldór Halldórsson 4, Sveinbjörn Jó- hannesson 3, Erlendur Stefánsson 3, Leifur Steinn Arnason 2, Brynjar Karl Ævarsson 2. Haukar - Tindastóll 75-85 Haukar: Paul Jones 20, Kári Jónsson 15, Hjálmar Stefánsson 8, Finnur Atli Magnús- son 8/12 fráköst, Emil Barja 7, Arnór Bjarki Ívarsson 6, Kristján Leifur Sverrisson 6, Haukur Óskarsson 5. Tindastóll: Sigtryggur Arnar Björnsson 35/11 fráköst, Brandon Garrett 17, Antonio Hester 9, Björgvin Ríkharðsson 7, Helgi Freyr Margeirsson 6, Axel Kárason 6, Hannes Ingi Másson 3, Pétur Rúnar Birgis- son 2/8 fráköst/8 stoðsendingar. Úrslitaleikurinn fer fram klukkan 13:30 á laugardaginn. Sömu lið og í fyrra? Það kemur í ljós í dag hvaða lið mætast í úrslitaleik maltbikars kvenna í körfubolta. í fyrri undan- úrslitaleiknum mætast Skalla- grímur og Njarðvík og í þeim seinni bikarmeistarar Keflavíkur og Snæfell. Keflavík og Skalla- grímur mættust í úrslitaleiknum í fyrra og þá höfðu Keflavíkurkonur betur og unnu sinn fjórtánda bikarmeistaratitil. Hin þrjú liðin sem eru í undanúrslitunum í ár hafa aðeins unnið bikarinn sam- tals tvisvar sinnum. Njarðvík er nokkuð óvænt í undanúrslitum en liðið hefur ekki unnið leik í Dom- ino’s-deildinni í vetur. liðið vann hins vegar tvö lið úr Domino’s- deildinni (Stjörnuna og Breiðablik) á leið sinni í Höllina. Úrslita- leikur- inn fer fram klukkan 16.30 á laugar- daginn. mæta ÚrvalSliði iNDóNeSíu íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir úrvalsliði frá indónesíu í vináttulandsleik í yogyakarta í dag. leikurinn hefst klukkan 11.30 að íslensk- um tíma. Úrvalslið indónesíu var valið af aðdáendum í kosningu á internet- inu. Á sunnudaginn mætir ísland svo landsliði indónesíu í Djakarta. margir óreyndir leikmenn eru í íslenska hópnum en aðeins þrír í honum hafa leikið 15 landsleiki eða fleiri. Sex nýliðar eru í íslenska hópnum, þ. á m. andri rúnar Bjarnason, markakóngur Pepsi- deildar karla 2017. Handbolti íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur leik á tíunda evr- ópumótinu í röð á morgun. Þá mæta strákarnir okkar Svíum sem íslend- ingurinn Kristján andrésson þjálfar. auk Svíþjóðar er ísland í riðli með Króatíu og Serbíu. Þrjú efstu liðin komast í milliriðla. ísland rúllaði yfir Japan, 42-25, í fyrsta leiknum fyrir em en tapaði svo tveimur leikjum gegn evrópu- meisturum Þýskalands með sam- tals 16 mörkum. Þjóðverjar eru með gríðarlega sterkt lið sem þykir líklegt til afreka á em. Þrátt fyrir það olli frammistaða íslendinga í leikjunum tveimur vonbrigðum. vörnin var slök í fyrri leiknum en í þeim seinni brást sóknin. Stefán Árnason, þjálfari Ka, segir að væntingastuðullinn fyrir em í Króatíu sé ekkert rosalega hár. „Það eru ekki miklar væntingar til liðsins. en stundum hefur gengið vel í undirbúningsleikjunum en svo allt annað verið uppi á teningnum í mót- inu sjálfu. og svo öfugt,“ sagði Stefán en skemmst er að minnast þess að ísland vann Þýskaland á útivelli í undirbúningnum fyrir em 2016. íslendingar komust svo ekki upp úr sínum riðli á em á meðan Þjóðverjar urðu evrópumeistarar. „Það er erfitt verkefni fyrir hönd- um en það er alveg möguleiki að gera eitthvað. Ég held að fyrsti leikurinn gegn Svíum sé galopinn og okkar menn munu mæta gríðarlega vel stemmdir.“ aron Pálmarsson lék ekki með íslandi í seinni leiknum gegn Þýska- landi vegna meiðsla í baki. ekki liggur ljóst fyrir hvort aron verður með á em en líkurnar á því þykja meiri en minni. „Það breytir öllu að hann sé með. Það er einn dagur á milli leikja í riðlakeppninni og það hjálpar,“ sagði Stefán en án arons er skot- ógnin fyrir utan hjá íslandi ekki jafn mikil og þegar hans nýtur við. „Þjóðverjarnir voru mjög aftarlega gegn okkur í seinni leiknum og stigu ekkert út. Skotógnin fyrir utan var ekki nægilega mikil. Án arons verður þetta brekka en með hann getum við unnið alla, ef allt gengur upp.“ Síðan geir Sveinsson tók við þjálfun íslenska landsliðsins fyrir tæpum tveimur árum hefur varnar- leikur þess verið nokkuð sterkur. Það voru hins vegar miklar brotalamir í honum í leiknum gegn Þjóðverjum. „Það er algjört lykilatriði að við höfum vörn og markvörslu til að byggja á,“ sagði Stefán sem telur allar líkur á því að ísland byrji í sinni hefð- bundnu 6-0 vörn en geti breytt yfir í 5-1 vörnina, sem liðið hefur spilað með ágætum árangri að undanförnu, ef þörf krefur. Stefán telur að möguleikar íslands liggi í leikjunum gegn Svíþjóð og Serbíu. „Króatarnir verða gífurlega erf- iðir á heimavelli og ég held að það sé klárt að þeir fari í það minnsta í undanúrslit,“ sagði Stefán sem var hrifinn af sænska liðinu á Hm í fyrra. „Það eru ekkert rosalega margir þekktir leikmenn hjá þeim. Þeir eru vel spilandi og með sitt á hreinu. en ég held að það sé ekkert verra að mæta þeim í fyrsta leik. Það er mikil hvatning fyrir okkur og það er gaman að spila gegn Svíunum.“ ing- vithor@frettabladid.is Minni væntingar en oft áður Væntingarnar til íslenska handboltalandsliðsins fyrir stórmót hafa oft verið meiri en nú. Stefán Árnason, þjálfari KA, segir algjört lykilatriði að Aron Pálmarsson verði með á EM og vörn Íslands verði sterk. Möguleiki á bikarþrennu hjá Vesturbæjarstórveldinu Enn og aftur komnir í úrslit KR bar sigurorð af 1. deildarliði Breiðabliks, 90-71, í undanúrslitum Maltbikars karla í körfubolta í gær. KR-ingar eiga því möguleika á að vinna bikarmeistaratitilinn þriðja árið í röð. Ekkert lið hefur afrekað það síðan Njarðvík á 9. áratug síðustu aldar. KR-ingar leiddu allan tímann í leiknum í gær og slitu sig svo frá Blikum í 4. leikhluta. KR mætir Tindastól í úrslitaleiknum á laugardaginn. FRéTTaBlaðið/anTon 6 Nýliðar eru í íslenska lands- liðshópnum sem mætir Indónesíu Varnarleikur íslenska liðsins verður að vera sterkur á EM í Króatíu sem hefst á morgun. noRdicpHoTos/gETTy 1 1 . j a n ú a r 2 0 1 8 F i M M t U d a G U r24 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð sport 1 1 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E B 7 -1 5 A 0 1 E B 7 -1 4 6 4 1 E B 7 -1 3 2 8 1 E B 7 -1 1 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.