Víkurfréttir - 18.10.2007, Side 30
30 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
Byrjuðum eins og
KÁLFAR
Vann gull, silfur og brons
á Special Olympics
Sundkappinn Valur Freyr Ástuson var sigursæll á
Special Olympics leikunum
í Sjanghæ sem fram fóru dag-
ana 2.-11. október síðastliðinn.
Hann vann til gull,-silfur og
bronsverðlauna í sundi. Valur
Freyr æfir með íþróttafélag-
inu NES en þrír úr því félagi
kepptu á leikunum.
Valur fékk gullverðlaunin fyrir
4x50m boðsund, silfurverð-
launin fyrir 50 metra bringu-
sund og brons í 50 metra skrið-
sundi. Hann segir árangurinn
að þakka góðum undirbúningi
sem hófst með stífum æfingum
í apríl og æfði hann fjórum
sinnum í viku fram að móti.
Tveir aðrir Nesarar, þeir Ragnar
Lárus Ólafsson og Jósep Daníels-
son kepptu einnig á leikunum
og gerðu það ágætt. Ragnar
varð í 5. sæti í sínum flokki
í golfi og Jósep var í 7. sæti í
400m hlaupi. Special Olympics
leikarnir eru mjög stórir í
sniðum. Keppendur frá um 140
þjóðum voru mættir til leiks að
þessu sinni. Frá Íslandi fóru 32
keppendur og eitt dómarapar
í h a n d b o l t a . Fé l a g a r n i r
Gísli Hlynur Jóhannsson og
Hafsteinn Ingibergsson dæmdu
handboltaleiki ytra en þeir
eru jafnframt eina handbolta
dómaraparið á Íslandi sem
kemur frá Suðurnesjum. Í ár
fagna þeir saman sínu 25 ára
dómaraafmæli. „Þetta var
sérstakt en dómgæslan gekk
vel hjá okkur. Allir stilltir og
prúðir en við dæmdum alls níu
leiki á mótinu,“ sagði Hafsteinn
í samtali við Víkurfréttir. „Við
eigum 25 ára dómaraafmæli í ár
við Gísli og það heyrist lítið frá
okkur þessa dagana þar sem við
erum að dæma svo vel,“ sagði
Hafsteinn léttur í bragði.
Mynd: Sjanghæ - fararnir
frá v.: Ragnar Lárus, Valur
Freyr og Jósep en þeir
æfa með íþróttafélaginu
Nesi. VF-mynd: elg.VF
-M
yn
d/
E
lle
rt
G
ré
ta
rs
so
n
Ís l a n d s m e i s t a r a r KR mæta í Röstina í
Grindavík í kvöld og
leika þar gegn heima-
mönnum sem að sögn
þjálfarans Friðriks Ragn-
arssonar hófu Íslands-
mótið í körfuboltanum
eins og kálfar. Grindavík
steinlá í Sláturhúsinu
gegn Keflavík í síðustu
viku og gulir eru stað-
ráðnir í því að sýna hvað
í þeim býr gegn sterku
liði KR.
„Við mættum ekki tilbúnir í leik-
inn gegn Keflavík og fengum
það sem við áttum skilið. Við
dvöldum ekki lengi við Keflavík-
urleikinn og höfum því hugsað
lengi um leik kvöldsins. Þetta
verður hörkuleikur en KR er
sjálfsagt besta liðið á pappírum
og þetta verður mikil áskorun
fyrir okkur,“ sagði Friðrik.
„Keflavík byrjaði mótið mjög
vel á meðan við lékum eins og
kálfar. Nú eru menn ákveðnir í
því að rífa þetta upp og stemmn-
ingin að undanförnu hefur verið
fín. Við höfum engu að tapa en
allt að vinna og við vitum að við
getum unnið KR,“ sagði Friðrik
en Grindavík hvílir á botni deild-
arinnar með 25 stig í mínus.
Njarðvíkingar halda Norður í
land og mæta Þór Akureyri sem
lagði bikarmeistara ÍR í fyrstu
umferð. Njarðvík vann sterkt
lið Snæfells sannfærandi í fyrstu
umferðinn svo von er á baráttu-
leik fyrir Norðan.
Keflvíkingar mæta svo Snæfelli-
gnum í Hólminum annað kvöld
og verður fróðlegt að sjá hvort
B.A. Walker, Bandaríkjamaður-
inn í liði Keflavíkur, geti haldið
uppteknum hætti. „Ég reyndi
bara að komast í takt við leik
liðsins og vera duglegur að spila
uppi liðsfélaga mína. Það skiptir
ekki máli hverjir skora stigin
svo framarlega sem við leikum
vel sem liðsheild,“ sagði Walker
sem gerði 31 stig gegn Grind-
víkingum síðasta fimmtudag.
„Leikurinn gegn Grindavík var
aðeins fyrsti leikurinn okkar í
deildinni en vonandi getum við
byggt á því góða úr leiknum. Þá
væri ekki verra ef ég ætti fleiri
svona góð kvöld,“ sagði Walker
í léttum dúr.
Allir leikir annarar umferðar
hefjast kl. 19:15, bæði í kvöld og
á morgun og er fólk hvatt til að
fjölmenna á vellina og styðja vel
við bakið á sínu liði.
Þorleifur Ólafsson reynir hér
skot yfir Magnús Gunnarsson
í Sláturhúsinu. Grindvíkingar
vonast til þess í kvöld að geta
lagt að baki slæma byrjun
sína á Íslandsmótinu er þeir
taka móti sterku liði KR í
Röstinni í Grindavík.