Víkurfréttir - 29.11.2007, Blaðsíða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 48. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Árni Sigfússon bæjarstjóri kynnti sl. föstu-dag fyrir stjórn félags eldri borgara nýjan
þjónustusamning um afnot af nýrri félags- og
þjónustumiðstöð á Nesvöllum.
Undirbúningur að skipulagi og uppbyggingu að-
stöðunnar hefur staðið yfir í samvinnu við FEB
frá árinu 2005 en gert er ráð fyrir að ný aðstaða
verði tekin í notkun í mars á næsta ári. Aðstaðan
verður með því besta sem gerist á landinu og er
það í samræmi við framtíðarsýn Reykjanesbæjar
þar sem lögð er áhersla á að bæta þjónustu, að-
stöðu og búsetukosti eldri borgara.
Í tilkynningu frá Reykjanesbæ kemur fram að
aðstaðan muni leysa af hendi húsnæði á ýmsum
stöðum í bæjarfélaginu s.s. Selið, Hvamm, Smiðj-
una og dagdvöl aldraðra. Tómstundaðastaða
eldri borgara verður þá komin á einn stað og í
tengslum við fjölbreytta þjónustu á Nesvöllum,
s.s. öryggisíbúðir, mötuneyti, hjúkrunarheimili og
aðra þjónustu s.s. hárgreiðslustofur, snyrtistofur
og fleira. Við undirbúning verkefnisins var leitað
til fyrirmynda erlendis og sérfræðinga jafn innan-
lands sem utan um bestu leiðir til að byggja upp
aðstöðu sem veitir bæjarbúum bestu möguleika
til að njóta lífsins á efri árum. Nú liggur fyrir
niðurstaða þessarar samvinnu sem felst í því að
verið er að byggja upp byggðakjarna með 2500m²
þjónustumiðstöð með útivistarsvæði, ásamt ör-
yggisíbúðum, hjúkrunaríbúðum, sérbýlum og fjöl-
býlum á svæðinu við Njarðarbraut á milli Stapans
og Samkaups.
Reykjanesbær og Stjórn FEB fagna því að nú sé öll
starfsemi félagsins og Reykjanesbæjar loks komin
á einn stað, þar sem mögulegt verður að byggja
upp öflugt starf í framúrskarandi umhverfi og
menningu.
Þjónustusamningur kynntur
fyrir eldri borgurum
VF-mynd/Þorgils - Bæjarstjóri ásamt stjórn FEB
Reykjanesbær: