Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 1

Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 8. Á G Ú S T 2 0 1 7 Stofnað 1913  188. tölublað  105. árgangur  ÖÐLUÐUST ÓMETANLEGA REYNSLU Í ÚRSLITUM EFTIR FRÁ- BÆRT KAST TÓNLIST ER RISASTÓR ATVINNUGREIN HM Í LONDON ÍÞRÓTTIR KJARTAN ÓSKARSSON 30HJÁLPARSTARF 12 Á fimmta tug fíkniefnamála kom upp í Vestmanneyjum um helgina. Í langflestum tilfellum var um að ræða neysluskammta af örvandi hvítum efnum, amfetamíni og kókaíni. Lög- reglan á Suðurlandi bókaði 252 mál í dagbók sína um verslunarmanna- helgina. Töluverð læti voru á tjald- svæðinu á Flúðum um helgina en þar fór fram fjölskylduhátíðin Flúðir um versló. Að sögn lögreglunnar á Suð- urlandi var ölvun og fíkniefnavíma áberandi á hluta tjaldsvæðisins. Alls komu 15 fíkniefnamál til kasta lög- reglu á Flúðum, þar af nokkur þar sem hald var lagt á umtalsvert magn fíkniefna. Á höfuðborgarsvæðinu var 31 ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis um helgina. Fleiri kynferðisbrot en í fyrra Neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Landspítalanum hefur fengið upplýsingar um fimm kynferðisbrotamál sem komu upp um helgina. Tvö kynferðisbrot voru tilkynnt lögreglunni í Vestmanna- eyjum og tvö hjá lögreglunni á Suð- urlandi. »4, 10, 11 og 15 Erilsöm helgi í löggæslu  Fimm kynferðisbrot tilkynnt  252 mál á Suðurlandi Morgunblaðið/Ófeigur Ljós Dalurinn lýstist upp í flug- eldasýningu á laugardagskvöldið. Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er nú stödd á landinu. Eftir að hafa leikið á Opna breska meistaramótinu í Skotlandi á fimmtudag og föstudag var hún mætt til leiks á hinu árlega góð- gerðarmóti Einvíginu á Nesinu, sem fram fer á Nes- vellinum á Seltjarnarnesi. Um fjögur hundruð manns komu til að fylgjast með Ólafíu og tíu öðrum kylfingum í ágætu veðri í gær. Í dag stendur annað góðgerðarmót fyrir dyrum hjá Ólafíu en í samstarfi við KPMG stendur hún fyr- ir móti á Leirdalsvelli í dag og hefst það klukkan 13. Þar mæta erlendir kylfingar til leiks. » Íþróttir Morgunblaðið/Árni Sæberg Ólafía Þórunn hefur nóg fyrir stafni Fjölmenni horfði á einvígið á Nesvellinum í gær Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Það er sorglegt að sjá hvað þessir krakk- ar missa af miklu, þau fá ekki aðstoð í fé- lagslegum aðstæðum, þeim líður illa á hverjum einasta degi í skólanum, sér- staklega út frá hávaða. Það virðist vanta skilning og áhuga á aðstæðum þeirra. Vonandi mun þessi rann- sókn stuðla að auknum skilningi á þörfum barnanna,“ segir Gunnhildur Ásta Jóhanns- dóttir, sérkennari við Hofsstaðaskóla í Garðabæ, en í lokaritgerð sinni til meistaraprófs í sérkennslufræðum skoðaði hún að- stæður fjögurra nemenda með greiningu á einhverfurófi. Einnig ræddi hún við mæður þeirra og umsjónarkenn- ara. Gunnhildur segir úrtakið vissulega lítið, og því erfitt að alhæfa út frá niðurstöð- unum, en það sé mikill samhljómur í henn- ar rannsókn við aðrar og jafnvel stærri rannsóknir. Hún komst m.a. að því að samstarf heimilis og skóla sé oftast óformlegt og skólarnir hafi sjaldnast frumkvæði að samskiptum. Mikið álag sé á for- ráðamönnum nemendanna og hlutverk umsjónarkennara sé óskýrt. Gunnhildur vill sjá skólana verða að axla ábyrgð á raunverulegu samstarfi við heimilin. Kennarar verði að fá meiri stuðning, rann- sóknin sýni að þeir standi oft einir og þurfi að berjast einir fyrir nemendur sína. Vantar skilning og áhuga  Rannsókn á högum einhverfra nemenda Einhverfa » Nemendum á einhverfurófi hefur fjölgað verulega. » Engu skiptir hvort einhverfan er mikil eða lítil, vandi nemenda innan skólanna er sá sami. MRáðaleysi vegna nemenda … »20  Árangur íslensku keppendanna á heimsleikunum í crossfit, sem fram fóru í Madion í Wisconsin-ríki Bandaríkjanna um helgina, skilar þeim alls 21,3 milljónum króna í verðlaunafé. Annie Mist Þórisdóttir náði best- um árangri Íslendinga á mótinu og hlaut 77 þúsund dali í verðlaun fyr- ir þriðja sætið í einstaklingskeppni kvenna, eða um 8,1 milljón ís- lenskra króna. Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir fékk um 5,2 millj- ónir fyrir fjórða sætið og Katrín Tanja Davíðsdóttir, sem hafði unn- ið síðustu tvenna heimsleika, hlaut um 3,9 milljónir fyrir það fimmta. Björgvin Karl Guðmundsson náði sjötta sætinu í einstaklingskeppni karla og fær um það bil 3,2 millj- ónir í sinn hlut fyrir það afrek. »15 Íslendingarnir taka 21,3 milljónir heim Morgunblaðið/Ómar Hraust Annie Mist fékk rúmar 8 milljónir.  Hildur Björk Þorsteinsdóttir og Óskar Ragn- arsson voru gefin saman í Papey um helgina. Er þetta í fyrsta sinn síðan sum- arið 1963 sem hjónavígsla fer fram í eynni, eða í 54 ár. Það var reyndar ekki fyrr en í síðustu viku sem parið ákvað að athöfnin skyldi fara fram í Papey. Papeyjarkirkja er með allra minnstu kirkjum landsins og þurfti þorri gesta að fylgjast með athöfn- inni utan frá. »2 Brúðkaup í Papey eftir 54 ára hlé Papeyjakirkja. „Unnið er að mikilli uppbyggingu í Helgafellshverfinu. Þar eru á milli 500 og 600 íbúðir tilbúnar eða að verða tilbúnar á næstu misserum. Þá er heilmikil uppbygging í Leirvogstungu, það hverfi verður fullbúið á næstu tveimur til þremur árum. Síðan í miðbænum er í far- vatninu uppbygging á um 200-250 íbúðum,“ segir Haraldur Sverris- son, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, um þann vöxt sem er í sveitarfélaginu um þessar mundir. Kaupstaðurinn heldur upp á 30 ára afmæli sitt á morgun, 9. ágúst, þar sem forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mun koma í heimsókn. Haldið verður upp á afmælið fram að bæjarhátíðinni Í túninu heima síð- ustu helgina í ágúst. Íbúar Mosfellsbæjar urðu 10 þús- und í júní sl. en íbúum bæjarins hef- ur fjölgað nokkuð hratt undanfarin ár. „Við gerum ráð fyrir því í aðal- skipulagi okkar að hér fjölgi um 3% á ári að meðaltali. Það þýðir fjölgun um 300-400 íbúa á ári, eins og fjöld- inn er núna,“ segir Haraldur. »6 500-600 íbúðir að klárast í Mosfellsbæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.