Morgunblaðið - 08.08.2017, Síða 4

Morgunblaðið - 08.08.2017, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 Bibione Feneyjar Verona Ljubljana Bled ADRIAHAF Króatía - Porec & Umag TRIESTE Garda TRIESTE Frá kr. 39.950 báðar leiðir m/sköttum og tösku. á flugsæti FY RI R2 1 ÁÐUR KR. 79.900 NÚ KR. 39.950FL UG SÆ TI flugsæti í sólina Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Rútubílstjóri hafði samband við Jafnréttisstofu nýverið eftir að hún fékk ekki að fara fjögurra daga rútu- ferð því ferðamennirnir vildu ekki kvenkyns bílstjóra. „Það kom upp mál í vor þar sem kona á rútu sótti hóp ferðamanna út á Keflavíkurflugvöll. Svo átti hún að halda áfram daginn eftir en þá var henni tilkynnt að þeir vildu ekki að kona keyrði. Svo kom upp núna í síð- ustu viku mjög svipað mál og sú kona hafði samband,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. „Þeir vilja ekki hafa konu sem bílstjóra og leiðsögumann því það stríðir gegn þeirra venjum,“ segir Kristín en konan sem kvartaði til Jafnréttisstofu segir sig hafa orð- ið fyrir vinnutapi vegna málsins. „Hún missti af fjögurra daga túr. Við erum búin að hafa samband við Ferðamálastofu og láta vita af þessu. Þetta gengur auðvitað þvert gegn okkar lögum og venjum að fólk geti ekki sinnt öllum störfum hvort sem það er karlar eða konur.“ Nauðsynlegt að kæra Kristín segir einnig að ef við- komandi aðili vilji gera eitthvað þá þurfi að leggja fram kæru. Málið sem kom upp í vor var ekki kært en þýska ferðaskrifstofan bað konuna afsökunar. Samtök ferðaþjónust- unnar segja að kvartanir af þessu tagi hafi ekki komið inn á þeirra borð. Þórir Garðarsson, stjórn- arformaður ferðaþjónustufyrirtæk- isins Gray line, segir það algengt að ferðaskrifstofur og hópar séu með kröfur um tiltekna leiðsögumenn og bílstjóra en minnist þess ekki að slíkar skrifstofur hafi gert kröfur um kyn starfsmanna. Ferðamennirnir vildu ekki kvenkyns bílstjóra Morgunblaðið/Styrmir Kári Ferðamenn Rútuferðir eru gríð- arlega vinsælar hjá ferðamönnum. Meira var um alvarleg útköll hjá björgunarsveitum um verslunar- mannahelgina en undanfarin ár. Þetta segir Jónas Guðmundsson, að- gerðarstjóri hjá Landsbjörg. Það sé í samræmi við þróunina það sem af er ári. „Það er búið að vera nokkuð um verkefni um allt land, en við komum ágætlega undan helginni.“ Færri en brýnni Jónas segir verkefnin örlítið færri en í fyrra og sé það í takt við árið í heild sinni. Það sem valdi hins vegar áhyggjum sé mikil fjölgun alvarleg- ustu útkallanna, svokallaðra F1- útkalla þar sem líf og limir eru í hættu. „Þar eru aukning um tugi pró- senta milli ára,“ segir Jónas. Hann segir alvarlegustu slysin á borði björgunarsveitanna ekki koma upp á útihátíðum þó að einhver þeirra séu á fólki á leið til og frá hátíðum. Jónas segir álag á björgunarsveit- irnar alltaf meira um versl- unarmannahelgi en venjulega helgi. „Íslendingar eru allir á faraldsfæti og svo erum við með þennan mikla fjölda erlendra ferðamanna líka, þannig að helgin er bara búin að vera mjög þétt. Það verður að segjast eins og er.“ Minna sé þó um það en áður að ein- staka sveitir taki að sér gæslu á há- tíðum í fjáröflunarskyni, þó að það tíðkist enn. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fjórum sinnum um helgina, seinast seinni partinn í gær þegar tveir voru fluttir með þyrlu á sjúkra- hús í Reykjavík eftir bílveltu á Stein- grímsfjarðarheiði. Þá kom Gæslan björgunarsveitarmönnum til að- stoðar í Biskupstungum sl. laugar- dag. alexander@mbl.is Tugir útkalla hjá Landsbjörg  Þyrla Landhelgisgæslunnar í fjögur útköll um verslunarmannahelgina Ljósmynd/Landsbjörg Annir Þyrla Gæslunnar og Lands- björg að störfum um helgina. Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is „Ég held að það sé ekki hægt að segja annað en að það hafi gengið vel í heild sinni yfir helgina, miðað við þennan gríðarlega fjölda,“ segir Jó- hannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum, í samtali við Morgunblaðið, en Þjóðhátíðin hefur sjaldan verið fjölmennari. Þrettán fíkniefnamál komu upp í Heimaey á sunnudag og samanlagð- ur fjöldi fíkniefnamála á Þjóðhátíð var á fimmta tug. Í langflestum til- fellum var að um að ræða neyslu- skammta af örvandi hvítum efnum, amfetamíni eða kókaíni. Að sögn Jó- hannesar var lagt hald á óvenjulítið af kannabisefnum, miðað við fyrri ár. Alls voru átta líkamsárásir kærðar til lögreglu í Vestmannaeyjum yfir helgina. Í alvarlegasta atvikinu brotnuðu tennur í fórnarlambinu, en annars voru meiðsli brotaþola minni- háttar. Mikið djamm á Flúðum Á Flúðum fór fram fjölskylduhá- tíðin Flúðir um versló og voru rúm- lega 10 þúsund manns á svæðinu þegar mest var á laugardag. Að sögn Bessa Theódórssonar, eiganda So- nus-viðburða, sem skipulagði hátíð- ina, gengu allir viðburðir á þeirra vegum vonum framar. „Allir við- burðir sem við vorum með frá fimmtudegi; tónleikar, skemmti- kvöld og dansleikir, fóru gríðarlega vel fram,“ segir Bessi. Töluverð læti voru þó á tjaldsvæð- inu á Flúðum framan af helgi og að sögn lögreglunnar á Suðurlandi var ölvun og fíkniefnavíma áberandi á hluta tjaldsvæðisins, sérstaklega á laugardagskvöld. Alls komu 15 fíkni- efnamál til kasta lögreglu, þar af nokkur þar sem hald var lagt á um- talsvert magn fíkniefna, sem grunur leikur á að hafi verið ætluð til sölu. Margt ungt fólk var á svæðinu og segir Sveinn Rúnar Kristjánsson, yf- irlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, að aldurssamsetningin á Flúðum hafi verið öðruvísi en búist var við. „Það var meira af yngra fólki og meira af djömmurum,“ segir Sveinn Rúnar. Á höfuðborgarsvæðinu var 31 öku- maður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis um helgina. Víðast hvar annars staðar á land- inu hafði lögregla lítið að gera þessa helgina og skemmtanahald fór al- mennt vel fram. Á fimmta tug fíkni- efnamála í Eyjum  Mest um örvandi hvít efni  Lögregluerill á Flúðum Neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Landspítala hefur fengið upplýsingar um fimm kynferðisbrotamál, sem upp komu um helgina. Í Vestmannaeyjum var eitt kynferðisbrot tilkynnt lögreglu aðfaranótt laugardags og annað á laugardag. Í báðum tilvikum þekktust meintur gerandi og fórnarlamb. Þá komu upp tvö kynferðis- brotamál í umdæmi lögregl- unnar á Suðurlandi. Bæði málin komu upp á tjaldsvæðum og eru til rannsóknar hjá lögreglu. Einn var handtekinn í tengslum við annað málið, en enginn er í haldi lögreglu. Tilkynntum kynferðisbrotum fjölgar frá fyrra ári, en eitt brot tengt útihátíð kom upp um verslunarmannahelgina í fyrra. Fleiri brot tilkynnt í ár KYNFERÐISOFBELDI „Miðað við þann fjölda fólks sem var á ferðinni og allt það sem var í gangi, sem oft kallar á að menn séu van- svefta og jafnvel undir áhrifum áfengis, þá held ég að það sé mestan partinn svo að fólk hafi verið til fyr- irmyndar,“ segir Einar Magnús Magnússon, sérfræðingur hjá Sam- göngustofu, í samtali við Morgun- blaðið. Hann þakkar ökumönnum það að umferðin hafi gengið stór- áfallalaust fyrir sig um helgina. „Það sem mér finnst athyglisvert er að lögreglan á Vestfjörðum stöðv- aði engan undir áhrifum áfengis alla helgina, en þeir stoppuðu nánast hvern þann sem fór um Ísafjarð- ardjúpið. Þó voru allavega 17 teknir fyrir ölvunarakstur við Landeyja- höfn, en sem betur fer tókst að stoppa þá áður en að þeir urðu valdir að einhverju misjöfnu,“ segir Einar Magnús, en á annað þúsund öku- menn fengu að blása hjá lögreglu við Landeyjahöfn áður en þeir keyrðu af stað. 31 ökumaður hið minnsta var stöðvaður fyrir ölvunar- eða fíkni- efnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina, samkvæmt dagbók lög- reglu. Einar segir það skyggja að- eins á góða ferðahelgi. „Ég veit ekki hvort þetta sé vegna aukins eftirlits eða aukinnar neyslu, en ég vil bara hrósa lögreglu fyrir að taka á þessu. Þetta er mjög óhugnanlegt og á sama tíma og maður getur hrósað vel flestum þá eru á því undantekn- ingar sem eru skelfilegar. Það er áhyggjuefni.“ athi@mbl.is Flestir ökumenn til fyrirmyndar  Umferðin gekk vel um helgina Morgunblaðið/GSH Blásið Þjóðhátíðargestir fengu að blása í áfengismæli hjá lögreglu við Landeyjahöfn áður en þeir héldu af stað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.