Morgunblaðið - 08.08.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.08.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 VEISLUÞJÓNUSTA MARENTZU www.marentza.is - 553 8872 - info@marentza.is Allar gerðir af veislum sérsniðnar að þínum þörfum • Fermingarveislur • Brúðkaup • Erfidrykkjur • Veitingar fyrir fundi • Móttökur • Útskriftir Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Heimsmeistaramót íslenska hests- ins hófst í Oirschot í Hollandi í gær á byggingadómum kynbótahrossa. Þrjú íslensk hross eru efst í sínum flokki eftir daginn í gær en það eru þau Hervör frá Hamarsey, Þórálfur frá Prestsbæ og Finnur frá Ármóti. Frá Íslandi taka alls sex hross þátt í kynbótasýningu mótsins, eitt í hverjum aldursflokki en sýnt er í flokkum fimm vetra, sex vetra og sjö vetra og eldri stóðhesta og hryssna. Það má þó ekki fagna of snemma því margt getur breyst í röðun eftir að hæfileikadómum næstu daga lýkur. Reynir að verja titilinn Í dag hefst forkeppni í fjórgangi og þá munu þónokkrir íslenskir keppendur koma fram. Meðal ann- ars mun Guðmundur Fr. Björg- vinsson reyna að verja heimsmeist- aratitil sinn frá síðasta móti í þessari grein en hann sigraði í fjór- gangi á HM 2015 í Herning í Dan- mörku á Hrímni frá Ósi. Etja kappi við sterka knapa Vænst er mikils af íslensku kepp- endunum sem etja kappi við sterka knapa frá löndum eins og Svíþjóð, Þýskalandi, Danmörku, Noregi, Austurríki og Sviss en alls eiga 14 lönd í Evrópu þátttakendur á mótinu. Opnunarhátíð mótsins fer fram síðdegis á morgun og þar koma fram allir þátttakendur sem fulltrúar landa sinna. Þrjú íslensk hross efst í sínum flokkum  Heimsmeistaramót íslenska hestsins hófst á bygginga- dómum kynbótahrossa í gær  Forkeppni í fjórgangi í dag Ljósmynd/Hilda Karen Hross Þórálfur frá Prestsbæ og knapinn Þórarinn Eymundsson á HM í gær. Alexander Gunnar Kristjánsson alexander@mbl.is Sautján sveitarfélög, hið minnsta, munu veita grunnskólabörnum ókeypis námsgögn á komandi skóla- ári. Þetta kemur fram í samantekt Barnaheilla. Meðal þeirra eru Akranes, Reykja- nesbær, Hafnarfjörður og Akureyri sem munu sjá nemendum fyrir rit- föngum og stílabókum. Þá samþykkti bæjarráð Garðabæjar í síðustu viku að greiða fyrir námsgögn allt að 5.000 krónur fyrir hvern nemanda. Sveit- arfélögunum, sem þetta gera, hefur fjölgað ört að undanförnu en Ísa- fjarðarbær reið á vaðið fyrir nokkr- um árum og Sandgerði í fyrra. Erna Reynisdóttir, fram- kvæmdastjóri Barnaheilla, segir sveitarfélög hafa tekið við sér nú í júlí og ágúst og mörg bæst við listann. Vonir standi til að öll sveitarfélög landsins verði einn daginn á listanum. „Markmiðið er að glufunni í grunn- skólalögum sé lokað þannig að tekið verði fyrir að hægt sé að láta foreldra greiða fyrir hluta námsgagna,“ segir Erna. 65% undir kostnaðaráætlun Útboð vegna kaupa á námsgögnum fyrir Reykjanesbæ var haldið á veg- um Ríkiskaupa fyrr í sumar og var lægsta tilboð 65 prósentum lægra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Fimm sveitarfélög; Blönduós, Garð- ur, Hafnarfjörður, Hornafjörður og Mosfellsbær, hafa nú ákveðið að fela Ríkiskaupum að annast sameiginlegt örútboð á námsgögnum sem gert er að fyrirmynd þess í Reykjanesbæ. Alls stunda um 6.000 börn nám í grunnskólum þessara sveitarfélaga en í útboðsgögnum er meðal annars gert ráð fyrir 19.500 blýöntum og 12.000 strokleðrum. Búist er við að niðurstöður útboðsins liggi fyrir á næstu dögum. Fleiri útvega námsgögn frítt  Ríkiskaup sjá um sameiginlegt útboð fyrir fimm sveitarfélög Morgunblaðið/Eggert Ritföng Fleiri fá ritföng í skólanum. Ókeypis námsgögn » Kostnaður við námsgögn á innkaupalista grunnskólabarna nemur um 10 þúsund kr. » Barnaheill segja innkaupa- listana brot á Barnasáttmála SÞ um rétt til endurgjalds- lausrar grunnmenntunar Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is „Mosfellsbær er að fara að halda upp á 30 ára afmæli sitt en hann fékk kaupstaðarréttindi 9. ágúst árið 1987. Forseti Íslands kemur til okkar og ætlar að eyða með okkur deginum. Haldið verður upp á afmælið alveg fram að bæj- arhátíðinni Í túninu heima, sem er síðustu helgina í ágúst,“ segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, um það sem er efst á baugi hjá sveitarfélaginu. Mikil uppbygging í gangi „Unnið er að mikilli upp- byggingu í Helgafellshverfinu. Þar eru á milli 500 og 600 íbúðir tilbúnar eða að verða tilbúnar á næstu misserum. Þá er heilmikil uppbygging í Leirvogstungum, það hverfi verður fullbúið á næstu tveimur til þremur árum. Síðan í miðbænum er í farvatninu uppbygging á um 200-250 íbúð- um,“ segir Haraldur um vöxt bæj- arins. Búið er að úthluta lóðum fyr- ir hótel og ferðaþjónusturekstur í bænum auk þess að fjölga at- vinnulóðum við Desjamýri, sem er í hlíðum Úlfarsfells, að sögn Haraldar. Þá keyptu Reitir 15 hektara atvinnusvæði í Blika- staðalandi í júní sl., sem liggur við mörk Reykjavíkurborgar og Mosfellsbæjar. Aðspurður hvort þröng í Reykjavíkurborg, t.d. varðandi húsnæðismál, hafi leitt til aukins áhuga á búsetu eða að setja niður í starfsemi í Mosfellsbæ, svarar Haraldur að hann viti ekki hvort hinn aukni áhugi sé eitthvað sem að komi beint í gegnum Reykja- vík. „Það er einfaldlega vinsælt að búa í Mosfellsbæ. Bærinn stóð hæst í búsetukönnun Gallup um viðhorf íbúa til þjónustu í stærstu sveitarfélögum landsins. Mos- fellsbær er vinsælt sveitarfélag og það er eftirspurn eftir íbúðum hér. Það er meiri eftirspurn en framboð hér að undanförnu. Þess vegna er uppbygging í gangi,“ segir hann ennfremur. Íbúar Mosfellsbæjar urðu 10 þúsund í júní síðastliðnum en íbú- um bæjarins hefur fjölgað nokk- uð hratt undanfarin ár. „Við ger- um ráð fyrir því í aðalskipulagi okkar að hér fjölgi um þrjú pró- sent á ári að meðaltali. Það þýðir fjölgun um 300-400 íbúa á ári, eins og fjöldinn er núna. Við vor- um komin yfir 10.100 íbúa 1. júlí síðastliðinn. Þannig að það mun fjölga, hvort sem það verður hratt og örugglega eða hægt og sígandi í bænum á næstu árum og áratugum,“ segir Haraldur. Helgafellsskóli í smíðum Stærsta nýbyggingaverkefni bæjarins um þessar mundir er Helgafellsskóli. Verður skólinn bæði fyrir börn á leik- og grunn- skólastigi. Fyrsti áfangi skólans verður, að sögn Haraldar, tekinn í notkun um áramótin 2018 og 2019. Kostar fyrsti áfanginn um 1,3 milljarða króna en heild- arkostnaður við gerð skólans er um 3,5 milljarðar króna. Framkvæmdatillögur íbúa Önnur smærri verkefni eru í bígerð hjá bænum að sögn Har- aldar. „Við vorum nýlega með íbúakosningu, þ.e. verkefni sem við köllum „Okkar Mosó“. Íbúa- kosningin snerist um hvaða við- haldsverkefni og nýframkvæmdir bæjarbúar vildu sjá. Íbúar komu með ýmsar tillögur og í kjölfarið var kosið á milli tillagnanna. Út úr því komu tíu tillögur sem er verið að framkvæma í sumar. Við tókum t.d. í notkun nýjan strand- blaksvöll 17. júní,“ segir Har- aldur um tengsl íbúa við upp- byggingu í Mosfellsbæ. Haraldur Sverrisson er bæjarstjóri Mosfellsbæjar Morgunblaðið/Golli Gróska Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, segir að mikill vöxtur sé í bænum um þessar mundir. Mosfellsbær fagnar 30 ára stórafmæli  Haraldur Sverrisson er fæddur árið 1961 í Reykjavík en fluttist með foreldrum sínum til Mosfellsbæjar, þá Mosfells- sveitar, árið 1969. Viðskipta- fræðingur frá HÍ og lagði stund á framhaldsnám í fjármálum og stjórnun í Bandaríkjunum. Giftur Ragnheiði Gunnars- dóttur og eiga þau þrjú börn auk þriggja barnabarna.  Starfaði lengst af sem skrif- stofustjóri í fjármálaráðuneyt- inu. Hann tók við sem bæjar- stjóri Mosfellsbæjar árið 2007 og hefur leitt lista Sjálfstæð- isflokksins í Mosfellsbæ í tvennum sveitarstjórnarkosn- ingum, árin 2010 og 2014. Hver er hann?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.