Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 8

Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan ERFIDRYKKJUR Sjá heimasíðu www.veislulist.is æmi um verð í Veislusal Verð er fyrir 151-250 veislu og leigu á veislusal Ef sambærileg veisla er án veislusals kr. 1.553 pr. mann Verð kr. 2.103 Veislulist sér um veitingar fyrir erfidrykkjur af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal okkar eða í aðra sali og heimahús. Í yfir 35 ár hefur Veislu- list lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskarand matreiðslu. Sigurður Már Jónsson gerirgervigreind að umfjöllunar- efni í pistli á mbl.is og segir með- al annars frá deilu tveggja fram- sækinna manna í viðskiptalífinu, Marks Zuckerbergs og Elons Musk: „Til að lýsa deilunni í stuttu máli má segja að Musk hafi áhyggjur af þróun gervi- greindar og telur að stjórnvöld þurfi að marka sér stefnu og lagaum- gjörð áður en lengra er haldið. Ef ekki sé að gætt geti gervigreindin orðið mannkyninu skeinuhætt og með þeim viðvörunarorðum tekur hann undir með ekki ómerkari mönnum en Stephen Hawking og fleiri vísindamönnum. Bill Gates hefur einnig orðað ákveðnar áhyggjur af þróun gervigreindar. Zuckerberg telur hins vegar að Musk sé allt of neikvæður á þróun gervigreindar og hefur átalið hann fyrir að taka sér stöðu heimsendaspámannsins þegar ný tækni er annars vegar.“    Síðar segir Sigurður Már: „Þaðer hægt að taka undir þau orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar að hvort sem Elon Musk eða Mark Zuckerberger hefur rétt fyrir sér um hætturnar af gervigreind verður óhjá- kvæmilegt að ræða þessa þróun á sviði stjórnmála og vera undir hana búin þannig að hún nýtist til framfara fyrir mannkynið en ógni því ekki. Sá vandi fylgir hins veg- ar gervigreind að við vitum ekki nákvæmlega hvaða hættur geta fylgt því að kenna vélum að kenna sér sjálfar og um leið veita tölvuforriti einhverskonar sjálfs- vitund eins undarlega og það hljómar.“    Þetta er mikilvæg umræða semof lítið fer fyrir. Gervigreind býður upp á gríðarleg tækifæri, en fylgja einhverjar hættur með í kaupunum? Sigurður Már Jónsson Áhættulaust? STAKSTEINAR Veður víða um heim 7.8., kl. 18.00 Reykjavík 13 léttskýjað Bolungarvík 10 léttskýjað Akureyri 11 skýjað Nuuk 10 skýjað Þórshöfn 13 skýjað Ósló 14 rigning Kaupmannahöfn 20 heiðskírt Stokkhólmur 21 heiðskírt Helsinki 17 léttskýjað Lúxemborg 24 heiðskírt Brussel 23 heiðskírt Dublin 17 skýjað Glasgow 17 skýjað London 19 léttskýjað París 26 heiðskírt Amsterdam 20 léttskýjað Hamborg 22 heiðskírt Berlín 23 heiðskírt Vín 25 heiðskírt Moskva 21 heiðskírt Algarve 28 heiðskírt Madríd 35 heiðskírt Barcelona 30 léttskýjað Mallorca 32 heiðskírt Róm 35 heiðskírt Aþena 35 heiðskírt Winnipeg 23 léttskýjað Montreal 16 skýjað New York 19 rigning Chicago 22 skýjað Orlando 32 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 8. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:59 22:09 ÍSAFJÖRÐUR 4:46 22:31 SIGLUFJÖRÐUR 4:29 22:15 DJÚPIVOGUR 4:24 21:43 Reykjalundur hefur ákveðið að breyta frárennsliskerfi setlaugar við sundlaug heilbrigðisstofnunarinnar. Tilefnið er mengunarslys sem varð í Varmá 13. júlí sl. þegar setlaugin var tæmd vegna skipta á sandi í síum, með þeim afleiðingum að klórvatn rann út í ána. „Þegar sundlaug og setlaug Reykjalundar voru byggðar á sínum tíma voru frárennslismál laugarinn- ar hönnuð með þeim hætti að affall er leitt í ofanvatnskerfi bæjarins í stað fráveitu þess. Á starfstíma sundlaugarinnar, sem tók til starfa árið 2000, hefur ekki verið skipt um sand í síum lauganna fyrr en nú og var stjórnendum Reykjalundar ekki ljóst að atvik sem þetta gæti átt sér stað vegna viðhalds á laugakerfinu,“ segir í m.a. í tilkynningu sem Reykjalundur sendi frá sér. Samstarf við Mosfellsbæ Nú liggi fyrir að gera þurfi ráð- stafanir til að breyta fráveitumálum laugarinnar, til að mengunarslys endurtaki sig ekki. Að því verkefni verður unnið í samstarfi Reykja- lundar og bæjaryfirvalda í Mos- fellsbæ, sem stofnunin segir að hafi unnið mikið starf í því skyni að rekja uppruna mengunarinnar síðan atvik- ið varð. Reykjalundur breytir frárennslinu  Mengun í Varmá rakin til klórvatns úr setlaug sundlaugar Reykjalundar Morgunblaðið/RAX Reykjalundur Klórvatn úr setlaug sundlaugarinnar fór út í Varmá. Friðarsinnar munu minnast þess annað kvöld, 9. ágúst, að 72 ár verða liðin frá því að kjarnorkusprengjum var varpað á borgirnar Hi- roshima og Nagasakí í Japan. Fórn- arlambanna verður m.a. minnst með kertafleyt- ingum á Reykjavíkurtjörn og Minjasafns- tjörninni á Akureyri. Jafnframt er verið að árétta kröfu um heim án kjarnorkuvopna. Samstarfshópur friðarhreyfinga stendur fyrir þessum athöfnum. Í Reykjavík fer hún fram kl. 22.30 á suðvesturbakka Tjarnarinnar, við Skothúsveg. Halla Gunnarsdóttir al- þjóðastjórnmálafræðingur flytur ávarp og fundarstjóri verður Stefán Pálsson. Flotkerti verða seld á staðnum. Þetta er 33. kertafleyt- ingin hér á landi en athöfnin á upp- runa sinn í japanskri hefð og fer fram víða um heim. Athöfnin á Akureyri hefst kl. 22 annað kvöld og þar verður Logi Ein- arsson, formaður Samfylkingar- innar, ræðumaður. Minnast árásanna  Kertafleytingar að kvöldi 9. ágúst Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.